Ægir - 01.06.2016, Blaðsíða 12
12
Heiðrún Lind Marteinsdóttir var
á dögunum ráðinn fram-
kvæmdastjóri Samtaka fyrir-
tækja í sjávarútvegi og hefur
hún störf á næstunni. Heiðrún
tekur við starfinu af Kolbeini
Árnasyni sem sagði því lausu í
vor og réðist til starfa fyrir LBI,
gamla Landsbankann.
Heiðrún er lögfræðingur að
mennt og starfandi héraðs-
dómslögmaður, lauk lagaprófi
árið 2007 og hefur starfað óslit-
ið síðan hjá LEX lögmannsstofu,
fyrst sem fulltrúi og síðar sem
eigandi.
Hún hefur að meginstefnu
veitt ráðgjöf á sviði samkeppn-
is-, verktaka- og útboðsréttar,
auk alhliða ráðgjafar til fyrir-
tækja og sveitarfélaga. Einnig
hefur Heiðrún Lind sinnt mál-
flutningi í nokkrum mæli. Hún
lauk prófi í verðbréfaviðskipt-
um árið 2013.
Samtök fyrirtækja í sjávarút-
vegi eru hagsmunasamtök ís-
lenskra fyrirtækja í sjávarútvegi.
Tilgangur þeirra er meðal ann-
ars að stuðla að hagkvæmni ís-
lensks sjávarútvegs og íslenskra
sjávarútvegsfyrirtækja og styðja
við nýsköpun og menntun
tengda sjávarútvegi.
Intellecta hafði umsjón með
ráðningarferlinu en um þrjátíu
umsóknir bárust um starfið.
Stýrir Sam-
tökum fyrir-
tækja í
sjávarútvegi
Heiðrún Lind Marteinsdóttir, nýráðinn framkvæmdastjóri SFS.
F
réttir
Marás ehf.
Miðhrauni 13 - 210 Garðabæ
Sími: 555 6444 - Fax: 565 7230
www.maras.is
Fagleg ráðgjöf, sala og þjónusta
Bjóðum aðeins viðurkenndan búnað
Allt fyrir sjávarútveginn
Allt fyrir nýsmíðina
Stærð allt að 6200 hö
Stjórntæki og GírarRafstöðvar
Hliðarskrúfur
Kraftur
Ending
Sparneytni
Áreiðanleiki
Vökvakranar fyrir skip og báta
asdropLS H A F T - S E A L S
AUTOMATION TECHNOLOGY
Bás B25 Bás B26
Velkomin til okkar
Laugardalshöll 28-30 september 2016