Ægir - 01.06.2016, Page 13
13
Gangi framkvæmdir að óskum
er stefnt að því að ný bolfisk-
vinnsla HB Granda á Vopnafirði
hefji starfsemi í nóvember og
mun 35-40 manns fá vinnu við
hana, samkvæmt upplýsingum
frá HB Granda. Vinnslan er því
húsi sem áður hýsti frystihús
Tanga hf. en vinnslusalurinn er
um 500 fermetrar að stærð. Iðn-
aðarmenn á Vopnafirði hafa
síðustu vikur unnið að breyt-
ingum og lagfæringum á hús-
næðinu.
Tíu ár eru síðan HB Grandi
vann síðast bolfisk á Vopnafirði
en sem kunnugt er hefur fyrir-
tækið byggt upp uppsjávar-
vinnslu á Vopnafirði á síðustu
árum. Í febrúar síðastliðnum
ákvað stjórn HB Granda að
bregðast við samdrætti í upp-
sjávarveiðum, sér í lagi niður-
sveiflu í loðnuveiðum, með því
að byggja upp bolfiskvinnslu á
nýjan leik og tryggja þannig
starfsfólki verkefni.
Eins og áður segir var hús-
næðið sjálft til staðar en allur
búnaður er nýr, þar með talið
frystikerfi, loftræstikerfi og
fleira. Hausarar og flökunarvél-
ar í nýju vinnslunni eru frá Curio
ehf. í Hafnarfirði, karabúnaður,
roðkælir og roðrifubúnaður frá
Skaganum hf. á Akranesi og
loks verður í vinnslunni Flexicut
vatnsskurðarvél, sem og snyrti-
og pökkunarlína frá Marel.
Fyrr í sumar tryggði HB
Grandi sér aflaheimildir í bol-
fiski fyrir vinnsluna á Vopnafirði
með kaupum á 1600 tonna
heimildum frá Hafnarnesi VER í
Þorlákshöfn. Ríflega helmingur
þeirra aflaheimilda er þorskur.
Síldarvinnsla í uppsjávarvinnslunni á Vopnafirði. Bolfiskvinnslunni er
ætlað að mæta niðursveiflu sem nú er í loðnuveiðum og –vinnslu.
F
isk
v
in
n
sla
Ný bolfiskvinnsla hefur starf-
semi á Vopnafirði í nóvember