Ægir - 01.06.2016, Side 44
44
Árið 2015 nam verðmæti þess
afla sem seldur var í beinni sölu
útgerðar til vinnslustöðva 81,4
milljörðum króna, sem er um
54% af heildaraflaverðmæti.
Verðmæti sjófrystra afurða var
tæpir 44 milljarðar eða 29% af
aflaverðmæti. Verðmæti fisks
sem fluttur var óunninn út í
gámum var 4,7 milljarðar. Afla-
verðmæti fisks sem keyptur var
á markaði til endurvinnslu inn-
anlands var um 20,4 milljarðar
króna. Verðmæti afla sem land-
að var beint erlendis til
bræðslu nam rúmum 171 millj-
ónum króna. Þetta kemur fram
í samantekt Hagstofu Íslands
um fiskveiðar og verðmæti fisk-
afla í fyrra.
Þriðjungurinn á
Austfjarðahöfnum
Af þeim 1.319 þúsund tonnum
sem landað var af íslenskum
skipum árið 2015 var mestu
landað á Austurlandi eða tæp-
um 433 þúsund tonnum. Sem
er 32,8% heildaraflans. Næst
mestu var landað á Suðurlandi,
250 þúsund tonnum eða 19%
af heildarafla. Minnstum afla
var landað á Norðurlandi
vestra, tæpum 30 þúsund tonn-
um sem eru um 2,3% heildarafl-
ans. Stærstum hluta botnfisks
var landað á Norðurlandi
eystra, tæpum 80 þúsund tonn-
um, eða 18,1% botnfiskaflans.
Þar var landað mest af þorski
tæpum 53 þúsund tonnum,
karfa rúmum 8 þúsund tonnum
og af ýsu rúmum 7 þúsund
tonnum. Rúm 41 þúsund tonn
af þorskafla fóru til Suðurnesja,
tæp 40 þúsund tonn til Vestur-
lands annars vegar og rúm 26
þúsund til Vestfjarða. Ýsuaflinn
skiptist einnig tiltölulega jafnt
milli landssvæða en þó var
mestu af honum landað á
Norðausturlandi, rúmum 7 þús-
und tonnum.
Á höfuðborgarsvæðið barst
einna mest af flatfiski á land á
árinu 2015 eða rúm 7,2 þúsund
tonn sem er 31% flatfiskaflans.
Uppistaða aflans var að mestu
grálúða, sem nam rúmum 6
Afli og verðmæti á árinu 2015
Austfjarðahafnir stærstar
í löndun og vinnslu
Löndun úr togaranum Ásbirni í Reykjavíkurhöfn. Höfuðborgarsvæðið er stærst í botnfiskvinnslunni.
A
fli og
v
erðm
æ
ti
Ker Umbúðamiðlunar eru
eingöngu ætluð til leigu
undir matvæli.
Afli sem seldur var beint frá útgerð til vinnslustöðva stóð að baki 54%
heildarverðmæta sjávarafla í fyrra. Verðmæti sjófrystra afurða námu á
sama tíma um 30%.