Ægir - 01.06.2016, Blaðsíða 53
53
Nú liggur fyrir að sýningin Sjáv-
arútvegur 2016/Iceland Fishing
Expo 2016, sem haldin verður í
Laugardalshöll dagana 28.-30.
september nk., verður ein
stærsta sýning sem haldin hef-
ur verið hér á landi en hún
verður í báðum sölum Laugar-
dalshallar auk útisvæðis fyrir
framan höllina. Er ljóst af við-
tökum sýnenda að mikill áhugi
er á því að kynna vörur og þjón-
ustu í fjölbreyttri og kraftmik-
illi atvinnugrein.
Gríðarlegur áhugi
Fyrir skömmu efndu aðstand-
endur sýningarinnar til kynn-
ingarfundar um undirbúning
hennar. Þar komu langflestir
fulltrúar á annað hundrað sýn-
enda til skrafs og ráðagerða og
fengu þeir í hendur ítarlegt
upplýsingarit um hvaðeina sem
varðar sýninguna sjálfa, áhersl-
ur og markmið. Á fundinum fór
Ólafur M. Jóhannesson, fram-
kvæmdastjóri sýningarinnar yfir
öll helstu framkvæmdaatriði og
einnig voru þar fulltrúar allra
samstarfsaðila sýningarhaldara
og svöruðu þeir spurningum
fundarmanna, m.a. um sýning-
arkerfi, kynningarmál, öryggis-
mál, veitingar o.s.frv.
Í íslenskum höndum
Fram kom í máli Ólafs að að-
standendur sýningarinnar leggi
metnað í að undirbúa glæsilega
íslenska en jafnframt alþjóðlega
sýningu. Framkvæmd sýningar-
innar er í íslenskum höndum,
verði sýningarbása er stillt í hóf
og einnig verður boðið uppá þá
nýjung að sýnendur fá eins
marga boðsmiða inn á sýning-
una eins og þeir óska, þeim að
kostnaðarlausu. Ólafur sagði að
þannig gæfist fyrirtækjum, jafnt
stórum sem smáum, gott tæki-
færi til að kynna vörur sínar fyrir
innlendum sem og erlendum
aðilum.
Undirbúningur Sjávarút-
vegs 2016 í fullum gangi
Báðir sýningarsalir Laugardalshallar verða vettvangur sýningarinnar, auk útisvæðis.
Það var góð stemning á kynningarfundi fyrir skömmu vegna sýningarinnar Sjávarútvegur 2016 sem verður
haldin í Laugardalshöll dagana 28.-30. september nk.
Ólafur M. Jóhannesson, framkvæmdastjóri sýningar-
innar messaði yfir fundarmönnum og upplýsti um
gang mála.
Stungið saman nefjum. Inga Ágústsdóttir frá Athygli
ehf., sem annast kynningarmál vegna sýningarinnar,
ræðir við einn sýnenda, Ásgeir Þorláksson í Stólpa
Gámum.
S
já
v
a
rú
tv
eg
ssý
n
in
g