Ægir - 01.08.2016, Page 14
14
„Við erum afskaplega ánægðir
með þetta allt saman. Það
gengur vel, viðtökur hafa verið
ljómandi góðar og andrúms-
loftið er jákvætt. Betra verður
ekki á kosið,“ segir Garðar
Snorri Guðmundsson sem
ásamt bróður sínum Kjartani
Páli á og rekur fyrirtækið K&G
ehf. í Sandgerði. Þeir keyptu
útgerð og fiskvinnslu Hvamms í
Hrísey árið 2014 og eru þar með
öfluga starfsemi, bæði í veið-
um og vinnslu. „Okkur líst vel á
að starfa fyrir norðan,“ segir
Suðurnesjamaðurinn.
Bræðurnir hafa lengi starfað
á vettvangi sjávarúvegs, en fé-
lagið K&G ehf. hafa þeir rekið í
Sandgerði til fjölda ára, stofn-
uðu það árið 1998. Starfsemin
hefur vaxið í áranna rás, m.a.
keyptu þeir fiskvinnsluna Tros í
Sandgerði á sínum tíma, sem
og einnig húsnæði vinnslunnar.
Þeir eiga og gera út tvo báta,
Pálínu Ágústsdóttur GK 1 og
Darra EA 75, en sá síðarnefndi
fylgdi með ásamt kvóta þegar
hlutabréf í útgerðarfélaginu
Hvammi í Hrísey voru keypt fyr-
ir tveimur árum.
17 starfsmenn í Hrísey
Bátarnir, Darri og Pálína eru
báðir yfirbyggðir plastbátar
með beitningarvél, þeir eru
gerðir út á línu um þessar
mundir og eru við veiðar fyrir
norðan. „Þeir róa báðir frá Hrís-
ey og leggja upp afla hjá vinnsl-
unni þar. Það hefur verið ágætis
veiði undanfarið,“ segir Garðar.
Alls eru 8 sjómenn á bátunum
tveimur og í vinnslunni í landi
þar sem aflinn er unninn starfa
9 manns, þannig að 17 manns
starfa í Hrísey á vegum K&G ehf.
Sáum tækifæri fyrir norðan
„Það hefur gengið vel fyrir
norðan þann tíma sem við höf-
um rekið fyrirtækið þar, allt
gengið eins og best verður á
kosið. Við fundum strax fyrir
mikilli velvild í okkar garð þegar
við hófum starfsemi í eynni.
Það má segja að með því að
kaupa reksturinn höfum við
hleypt nýju blóði inn í útgerð
og vinnslu í Hrísey. Staðan var
ekki góð og til stóð að loka
vinnslunni, en úr því varð ekki
og menn eru ánægðir með það.
Við sáum tækifæri fyrir okkar
fyrirtæki að hasla okkur völl
norðan heiða og í heildina hef-
ur vel til tekist. Það vilja allir að
atvinnulíf í sínu byggðarlagi sé
öflugt og fjölbreytt,“ segir Garð-
ar.
Aflinn er unninn í fiskvinnsl-
unni í landi, flakaður og frystur,
hluti aflans er seldur frystur en
einnig er talsvert um að hann
sé sendur ferskur beint í flug á
markaði í Evrópu og einnig
vestur um haf.
Á fullum dampi í vetur
Sumarið var að sögn Garðars
gott, mikil veiði og salan er góð
um þessar mundir. „Við reiknum
með að halda uppi fullum
dampi á komandi vetri, halda
starfseminni í svipuðu horfi og
verið hefur síðustu mánuði og
erum bjartsýnir á að áfram mun
vel ganga að halda úti útgerð
og fiskvinnslu í Hrísey. Þar er
gott starfsfólk með mikla
reynslu og þekkingu og það var
mikið lán fyrir okkur að fyrrum
eigandi Hvamms, Jóhann P. Jó-
hannsson gekk til liðs við okkur.
Hann er öllum hnútum kunn-
ugur og sér um daglegan rekst-
ur í Hrísey,“ segir Garðar.
K&G ehf. tók við útgerð og fiskvinnslu í Hrísey
Ljómandi viðtökur og
jákvætt andrúmsloft
Bræðurnir Garðar Snorri og Kjartan Páll Guðmundssynir reka fyrirtækið K&G fiskverkun í Sandgerði. Þeir
keyptu útgerð og fiskvinnslu Hvamms í Hrísey árið 2014 og eru þar með öfluga starfsemi, bæði í veiðum og
vinnslu.
K&G fiskverkun á tvo yfirbyggða plastbáta, Pálínu Ágústsdóttur GK-1
og Darra EA-75. Báðir eru um þessar mundir gerðir út frá Hrísey.
F
isk
v
in
n
sla