Ægir - 01.08.2016, Blaðsíða 15
15
Frystigámar / Sala og leiga 10 / 20 og 40 ft.
Seljum einnig og leigjum gámahús, geymslugáma og salernishús í
ýmsum stærðum og gerðum. Fjöldi sérlausna í boði, sniðnar að
þörfum hvers og eins viðskiptavinar.
www.stolpigamar.is
Hafðu
samband
568 0100 Klettagörðum 5 | 104 Reykjavík | Óseyrarbraut 12 | 220 Hafnarfirði
Fyrirtækið Smástál ehf. á
Djúpavogi framleiðir vél sem
sker skötubörð en hana hann-
aði og smíðaði Karl Jónsson,
vélsmiður á Djúpavogi og eig-
andi fyrirtækisins. „Upphafið
að þessu má rekja til þess þegar
Vísir hf. var á sínum tíma með
starfsemi á Djúpavogi. Þá voru
þeir að vinna skötubörð, laus-
frysta og selja til útflutnings.
Skatan var skorin handvirkt og
það er bæði seinlegt og erfið
vinna. Þetta varð til þess að ég
fór að þróa vél til að leysa
handskurðinn af hólmi og hún
er nú fullhönnuð og komin með
CE vottun,“ segir Karl.
Þegar skata er nefnd kemur
Þorláksmessa upp í huga Ís-
lendinga og þá söltuð og kæst
skata. Karl segist fullviss um að
kæst skata þekkist hvergi ann-
ars staðar í heiminum en við Ís-
lendingar þekkjum hins vegar
ekki að borða skötuna ferska.
Stærsti markaður fyrir skötu er í
Frakklandi og þar er hún mat-
reidd líkt og nautasteik.
Herramannsmatur í Frakklandi
„Frakkar elda skötubörðin ein-
faldlega þannig að þau eru
steikt 1-2 mínútur á hvorri hlið
og kryddað með salti og pipar.
Og þykir alveg herramannsmat-
ur þar í landi. Sjálfur hef ég
reyndar ekki prófað að elda
skötuna á þann hátt en ég er
ekki í vafa um að þetta er fyrir-
taksmatur,” segir hann.
Eins og áður segir hefur Vísir
hf. verkað skötubörð og flutt út
lausfryst og keypti fyrirtækið á
sínum tíma tvær vélar frá Smá-
stáli ehf. Þriðja vélin sem hann
hefur smíðað var sýnd á sýning-
unni Sjávarútvegi 2016 í sept-
ember síðastliðnum.. Vélin
vinnur þannig að skötunni er
rennt undir hnífa sem skera
bæði börðin af í einu. Karl segir
skötuna geta verið allt upp í
rúmlega 2 kg að stærð og hvort
barð getur þannig verið hátt í
500 grömm að þyngd.
Vannýtt hráefni úr sjónum
„Hér á landi eru aðilar að verka
skötu fyrir innanlandsmarkað
en ég er þess fullviss að hægt er
að vinna skötu til útflutnings í
meira mæli. Þetta er meðafli á
línubátunum og stærstur hluti
skötunnar sem kemur á línuna
er ekki nýttur. Eins og í allri ann-
arri fiskvinnslu skiptir máli að
meðhöndla hráefnið strax úti á
sjó, kæla fiskinn og tryggja
þannig sem mestan ferskleika á
hráefninu þegar það kemur til
vinnslu. Markaðirnir eru fyrir
hendi, enda veiðist skata víða í
heiminum. Ég hef hitt mann
sem víða hefur farið og þekkir
vel til vinnslu og sölu á skötu
og hann sagðist hvergi hafa séð
áður vélbúnað sem sker sköt-
una. Hver veit nema vélin geti
orðið útflutningsvara. En fyrst
og fremst ætla ég núna að fara
að auka kynningu á henni hér
heima því að mínu mati eru
möguleikar á að gera með
henni verðmæti úr hráefni sem
er hvergi nærri fullnýtt í dag,“
segir Karl.
T
æ
k
n
i
Karl Jónsson, stálsmiður á Djúpavogi, við hina einstöku vél sína sem sker skötubörð.
Einstök vél á heimsvísu