Ægir - 01.08.2016, Síða 26
26
Þann 1. júlí síðast liðinn tók ný Hafrannsóknastofnun rannsókna-
og ráðgjafastofnun hafs og vatna til starfa með sameiningu Haf-
rannsóknastofnunar og Veiðimálastofnunar. Þremur mánuðum
áður var Sigurður Guðjónsson fyrrverandi forstjóri Veiðimálastofn-
unar ráðinn forstjóri hinnar nýju stofnunar og hóf hann þegar að
undirbúa sameininguna. „Það veitti svo sannarlega ekki af því
byrja strax að undirbúa þessi tímamót. Við fórum í stefnumótunar-
vinnu með öllu starfsfólki, mótuðum framtíðarsýn, breyttum
skipulagi og náðum að ráða í flestar yfirmannastöður fyrir 1. júlí
og erum að klára að ráða í síðustu stöðurnar um þessar mundir,“
segir Sigurður.
Spennandi verkefni
Sigurður er doktor í fiskifræði
og segist hafa verið áhugamað-
ur um þessi fræði frá blautu
barnsbeini. Hann hóf störf sem
sumarstarfsmaður hjá Veiði-
málastofnun 1983 og tók við
sem forstjóri 1997 og gegndi
því starfi fram að sameining-
unni. Sigurður segir nýja starfið
leggjast mjög vel í sig. „Mér
hefur verið afskaplega vel tekið
og er þakklátur fyrir það. Við
búum við þann lúxus hér að
obbi starfsmanna hefur ástríðu
fyrir starfinu. Þau eru að gera
það sem þeim finnst skemmti-
legast að fást við og geta varla
hætt þótt vinnudegi sé lokið.
Hér eru spennandi verkefni sem
gaman er að fást við.“
Hafrannsóknastofnun og
Veiðimálastofnun voru annars
vegar 50 ára og hins vegar 70
ára gamlar og rótgrónar stofn-
anir en mjög ólíkar að stærð.
Um 140 manns störfuðu hjá
Hafrannsóknastofnun en 20 hjá
Veiðimálastofnun. Sigurður
segir að ágæt sátt hafi verið um
skipulag nýrrar stofnunar sem
nú skiptist í fimm fagsvið: fersk-
vatnssvið, botnsjávarsvið, upp-
sjávarsvið, umhverfissvið og
fiskeldissvið. Síðan eru svið sem
veita þjónustu þvert á öll svið.
„Auðvitað má búast við ein-
hverjum agnúum sem þarf að
slípa af og menn þurfa tíma til
að semja sig að nýjum siðum.
Nú vinnum við með nýju lagi
og fræðimenn segja mér að
gera megi ráð fyrir að það taki
þrjú ár að slípa þetta en saman.
En það er fyrir mestu að fólk af
báðum bæjum hefur verið
mjög jákvætt og tilbúið í breyt-
ingar þannig að við kvíðum
engu.“
„Afmælisgjöf“
Fjárhagsrammi nýrrar stofnunar
er nokkuð þröngur en hún fær
jafnhátt framlag og báðar
stofnanir áður auk tímabund-
innar fjárveitingar til að mæta
kostnaði vegna þeirra sem
kunna að hætta við sameining-
una. Sigurður segir það mikið
lán að starfsfólk sé tilbúið að
halda áfram að vinna í breytt-
um heimi. Örfáir hafi óskað eftir
að hætta en það segir hann yfir-
leitt fólk sem komið er nálægt
starfslokum.
„Reyndar fengum við það
sem kalla mætti „afmælisgjöf“ á
síðasta ári sem hefur auðveldað
okkur stöðuna að vissu leyti.
Þegar Hafrannsóknastofnun
varð 50 ára ákvað ríkisstjórnin
að setja fjármuni í að kortleggja
hafsbotninn í kringum Ísland á
næstu 12 árum. Þetta felur í sér
ákveðið úthald á rannsókna-
skipum og auðveldar okkur
reksturinn á þeim.“
Gríðarlegar umhverfisbreytingar
Nú er allt að hlýna og þar á
meðal sjórinn í kringum landið
og það hefur áhrif á haf-
strauma. Á síðustu tíu árum
hefur sjórinn hlýnað um þrjár
gráður, sem er gríðarlega mikið.
Sigurður segir dramatískar
breytingar að verða í lífríkinu
þar sem hlýsjávartegundir
koma hingað á sama tíma og
aðrir stofnar virðast á leiðinni
norður. Þetta geti haft bein
efnahagsleg áhrif og gríðarleg
Getum ekki
búið við óbreytt
ástand áfram
segir Sigurður Guðjónsson nýr forstjóri Hafrannsóknastofnunar
H
a
fra
n
n
sók
n
ir