Ægir - 01.08.2016, Qupperneq 28
28
Áframhaldandi styrking krón-
unnar mun að öllu óbreyttu rýra
afkomu sjávarútvegsins eins og
annarra útflutningsgreina en
góð afkoma sjávarútvegsins á
heildina litið gerir hann betur í
stakk búinn að mæta afleiðing-
um þess. Þetta kom m.a. fram á
Sjávarútvegsdeginum 2016 sem
SFS, SA og Deloitte efndu til nú í
byrjun mánaðarins. Ræðumenn
á fundinum voru þau Jónas
Gestur Jónasson, meðeigandi
hjá Deloitte, Lilja Alfreðsdóttir
utanríkisráðherra, Ásdís Krist-
jánsdóttir, forstöðumaður efna-
hagssviðs Samtaka atvinnulífs-
ins og Dr. Ágúst Einarsson pró-
fessor.
22,6 milljarðar í opinber gjöld
Jónas Gestur Jónasson, löggiltur
endurskoðandi og meðeigandi
hjá Deloitte fór yfir fróðlegar
hagtölur varðandi sjávarútveg-
inn en Deloitte hefur lengi safn-
að í gagnabanka þar um. Í máli
Jónasar kom m.a. fram að fram-
legð í greininni hafi aukist á milli
áranna 2014 og 2015 og skuldir
hennar lækkað úr 494 milljörð-
um króna árið 2009 í 333 millj-
arða 2015. Fjárfesting í nýjum
skipum hafi samfara þessu auk-
ist stórlega. Fram kom í máli
Jónasar að sjávarútvegurinn
hefði greitt samtals 22,6 millj-
arða í opinber gjöld árið 2014
og sömu tölu árið 2015. Þar af
væru veiðigjöld nær óbreytt á
milli ára en hefðu þó lækkað úr
8,1 milljarði 2014 í 7,5 milljarða
2015 eða um 600 milljónir.
Brexit setur strik í reikninga
Í máli Lilju Alfreðsdóttur kom
fram að Íslendingar hafi flutt út
sjávarafurðir til Bretlands á síð-
asta ári fyrir ríflega 48 milljónir
króna sem er um 18% af útflutn-
ingi sjávarafurða. Utanríkisráð-
herra taldi viðbrögð við út-
göngu Breta úr ESB vera for-
gangsverkefni í utanríkisþjón-
ustnni en sjávarafurðir okkar
nytu sérstakra ívilnana sam-
kvæmt EES samningi, sem ekki
væri sjálfgefið að við fengjum
þegar Bretar hefðu yfirgefið ESB.
því þyrfti að vaka vel yfir hags-
munum Íslendinga á þeim vett-
vangi á næstu mánuðum.
Gjaldeyrisvaraforðinn kostar sitt
Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðu-
maður efnahagssviðs Samtaka
atvinnulífsins, ræddi gengisþró-
un undanfarinna missera og
áhrif hennar á sjávarútveginn.
Rakti hún í máli sínu þær gífur-
legu breytingar sem hafi orðið á
hagkerfi Íslendinga á síðustu ár-
um, ekki síst vegna tilkomu
uppgangs í ferðaiðnaðinum
sem hefði styrkt mjög gjaldeyr-
issköpun þjóðarbúsins.
Ásdís sagði Seðlabankann
hafa spornað gegn frekari styrk-
ingu krónunnar síðustu árin
með inngripum sínum á gjald-
eyrismarkaði og með því styrkt
gjaldeyrisforðann svo um mun-
ar. Nú væri svo komið að forðinn
uppfyllti öll alþjóðleg viðmið og
vel það. Ásdís benti þó á að svo
ríflegur varaforði sé þjóðarbúinu
ekki að kostnaðarlausu en árleg-
ur kostnaður af varaforðanum
slagar hátt í 40 milljarða króna.
Ásdís lagði áherslu á að þrátt
fyrir góða stöðu sjávarútvegsins
og þjóðarbúsins almennt, fælust
miklar áskoranir í því á næstu
misserum að viðhalda hér þeim
stöðugleika sem hefði náðst.
24.000 manns í sjávarútvegi
Dr. Ágúst Einarsson, prófessor
emeritus við Háskólann á Bif-
röst, fór yfir söguna og bar sam-
an ýmsar athyglisverðar hag-
stærðir í erindi sínu. Kom m.a.
fram að á undanförnum 30 ár-
um hafi aflaverðmæti íslenskra
skipa tvöfaldast á föstu verðlagi,
þökk sé góðri fiskveiðistjórnun
undir ráðgjöf fiskifræðinga og
betri skipulagningu í útvegin-
um, bæði við veiðar og vinnslu.
Ágúst sagði að sjávarútvegurinn
skilaði meira til landsframleiðsl-
unnar en aðrar atvinnugreinar
eða um og yfir 20%. Mikil fram-
leiðsla og þjónusta væri við sjáv-
arútveginn og fullyrti hann að
um 24.000 manns störfuðu með
einum eða öðrum hætti í grein-
inni þegar allt væri talið.
Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins, rakti í erindi sínu þær gífurlegu breytingar sem hafi orðið á hagkerfi Ís-
lendinga á síðustu árum, ekki síst vegna tilkomu uppgangs í ferðaiðnaðinum.
Fundarmenn á Sjávarútvegsdeginum 2016 fylgdust áhugasmair með málflutningi ræðumanna.
Sjávarútvegurinn
er enn kjölfestan
um 24.000 mann starfa í
sjávarútvegi og tengdum
greinum
S
já
v
a
rú
tv
eg
sd
a
g
u
rin
n