Ægir - 01.08.2016, Síða 30
30
„Tölur sýna að vinnuslysum í
fiskvinnslu hefur fjölgað á síð-
ustu árum, slysin tengjast oft-
ast vélum og tækjum og al-
gengast er að yngra fólk slasist.
Ég finn fyrir miklum áhuga inn-
an greinarinnar á bæta úr
þessu, enda er hagurinn aug-
ljós,“ segir Karl Eskil Pálsson hjá
framleiðsludeild sjónvarps-
stöðvarinnar N4 á Akureyri, en
deildin ætlar að sérhæfa sig í
að framleiða öryggismyndbönd
fyrir sjávarútveginn.
„Við höfum á undanförnum
árum gert fjölda þátta um ís-
lenskan sjávarútveg, þannig að
hérna er til staðar nokkuð góð
þekking á atvinnugreininni. Í
samvinnu við Rannsóknarsjóð
síldarútvegsins er að hefjast
vinna við að framleiða um tíu
myndbönd um öryggismál í
fiskvinnslu, sem verða aðgengi-
leg öllum sem vilja. Myndbönd-
unum er ætlað að vera fræð-
andi og benda á mikilvægi þess
að allir sem koma að framleiðsl-
unni séu meðvitaðir um að ör-
yggis- og hreinlætismál séu í
góðu lagi. Sérfræðingar Vinnu-
eftirlits ríkisins veita okkur fag-
lega ráðgjöf, auk þess sem við
erum í samstarfi við nokkur fyr-
irtæki í greininni sjálfri,“ segir
Karl.
Handbækurnar liggja óhreyfðar á
kaffistofunni
„Við erum núna að ljúka við að
gera öryggismyndbönd fyrir
stórt fyrirtæki sem starfrækir
fiskiðjuver og handrit fyrir
næsta fyrirtæki er núna í
vinnslu. Þetta eru nokkur
myndbönd og tekið er á öllum
helstu þáttum í vinnuvernd.
Þau eru þýdd á pólsku, þannig
tryggjum við að boðskapurinn
nái til allra starfsmanna. Á öll-
um stöðum eru til handbækur
um öryggismál, en staðreyndin
er að slíkar bækur ná ekki til
allra starfsmanna, slíkar hand-
bækur liggja gjarnan óhreyfðar
á kaffistofunni.“ segir Karl Eskil.
„Öryggi, allra hagur“
Hilda Jana Gísladóttir sjón-
varpsstjóri N4 segist binda
miklar vonir við framleiðslu ör-
yggismyndbanda fyrir sjávarút-
veginn. „Við erum tæknilega vel
búin og starfsfólk N4 þekkir vel
til í greininni og vonandi gerir
framleiðsludeildin fljótlega ör-
yggismyndbönd fyrir sjómenn.
Mér sýnist það fræðsluefni sem
til er, vera komið nokkuð til ára
sinna. Það er hagur allra að slíkt
efni sé uppfært reglulega og
við á N4 ætlum að leggja okkar
að mörkum, að sjálfsögðu í
góðri samvinnu fyrir greinina
og alla þá sem láta sig þessi mál
varða. Yfirskrift myndbandanna
sem verða aðgengileg öllum er
„Öryggi, allra hagur.“ Þessi yfir-
skrift segir í raun og veru allt
sem segja þarf. Fyrr á þessu ári
gerðum við myndbönd um
uppsjávarvinnslu, sem nýtist
sem kennsluefni og þá erum
við þessar vikurnar að klippa
nýja þáttaröð um „Auðæfi hafs-
ins,“ sem sýnd verður hérna á
N4. Við erum sem sagt nánast
allt árið að framleiða efni sem
tengist þessari undirstöðuat-
vinnugrein okkar,“ segir Hilda
Jana.
Sindri Þór Sverrisson og Karl Eskil Pálsson hjá framleiðsludeild N4 vinna að gerð öryggismyndbananna fyrir sjávarútveginn.
Framleiða öryggismynd-
bönd fyrir sjávarútveginn
Karl Eskil segir öryggishandbækur ekki alltaf ná til alls starfsfólks og liggi stundum óhreyfðar á kaffistofun-
um.
Ö
ry
g
g
ism
á
l