Morgunblaðið - 30.07.2016, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 2016
Söluaðilar:
10-11, Hagkaup, Iceland verslanir, Kostur, Kvosin, Melabúðin, Nettó,
Samkaup, Pure Food Hall flugstöðinni Keflavík, Sunnubúðin.
Graflaxinn okkar hlaut 1. verðlaun!
Grafinn með
einstakri
kryddblöndu
hefur þú smakkað hann?
2 0 1 6
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Grundfirðingar bera mjög góðan
hug til kirkjunnar sinnar, eru tryggir
henni. Kirkjunni hefur alltaf verið
vel haldið við og þar er mikið starf,“
segir Ragnheiður
Þórarinsdóttir,
formaður afmæl-
isnefndar Grund-
arfjarðarkirkju.
Á morgun verða
50 ár liðin frá
vígslu kirkjunnar
og verður af því
tilefni hátíðar-
guðsþjónusta og
opnuð sýningin
„Listamaðurinn í kirkjunni“ í Fjöl-
brautaskóla Snæfellinga.
Skipað var í afmælisnefnd vegna
vígsluafmælis Grundarfjarðarkirkju
fyrir tveimur árum. „Við vorum fljótt
ákveðin í því að hafa viðburði í kirkj-
unni í hverri viku allt afmælisárið,“
segir Ragnheiður. Byrjað var í byrj-
un febrúar með sýningu á myndum
leikskólabarna. Þau máluðu öll sól-
armyndir. Grundfirðingar sjá ekki
sólina frá heimilum sínum í tæpa tvo
mánuði og fagna því sólinni vel þegar
hún birtist aftur undir lok janúar.
Um páskana var sett upp sýning á
skírnarkjólum sem notaðir hafa ver-
ið við skírnir grundfirskra barna.
Ragnheiður segir að mikið hafi bor-
ist að og þurft hafi að velja úr.
Í apríl var síðan sýning á myndum
grunnskólanema þar sem trú, von og
kærleikur voru einkunnarorðin.
Þess á milli hafa verið ýmsir tón-
listarviðburðir í kirkjunni.
Varpa ljósi á listafólkið
Hápunktur afmælisársins er á
morgun, sunnudag, en þá eru liðin 50
ár frá vígslu kirkjunnar. Biskup Ís-
lands, séra Agnes M. Sigurðardóttir,
predikar við hátíðarmessu. Reiknað
er með að allir þeir prestar sem þjón-
að hafa kirkjunni og enn eru á lífi
verði viðstaddir og þeir sem tóku
þátt í byggingu kirkjunnar, auk
heimafólks.
Að lokinni messu verður boðið upp
á kaffi í Fjölbrautaskóla Snæfellinga
og opnuð sýningin Listamaðurinn í
kirkjunni. „Þar erum við að varpa
ljósi á þá listamenn sem hafa gert
stærstu listaverkin okkar, meðal
annars steindu gluggana, altaristöfl-
una og predikunarstólinn. Einnig
buðum við Jóni Þorsteinssyni, sem
var prestur hér í sextán ár, að sýna
myndlist og leirverk. Þá erum við
með kynningu á prestunum sem
starfað hafa í Grundarfjarðarkirkju
á þessum fimmtíu árum,“ segir
Ragnheiður.
Þannig stóð á að um síðustu helgi
var haldin bæjarhátíðin „Á góðri
stund“ og var ákveðið að hafa sýn-
inguna opna fyrir gesti hennar þótt
formleg opnun yrði á vígsluafmæl-
inu.
Líf og fjör alla daga
Mikil samstaða var um byggingu
kirkju í Grundarfirði á sínum tíma.
Þurfti á því að halda því söfnuðurinn
var ekki stór. Grundfirðingar áttu
áður sókn að Setbergi. Magnús Guð-
mundsson prestur stóð fyrir kirkju-
byggingunni og dreif Grundfirðinga
með sér. Hann fékk einnig liðstyrk
frá ungmennasamtökum kirkjunnar.
Þess vegna kom fjöldi ungmenna frá
mörgum löndum til að aðstoða við
bygginguna. Kirkjan var byggð í
tveimur áföngum því turninn var
reistur síðar.
„Við höfum verið heppin með
presta sem tóku við keflinu af séra
Magnúsi og hafa ötullega unnið að
stækkun á kirkjunni og eflingu safn-
aðarstarfsins. Mikið ungliðastarf er í
kirkjunni og þrír kórar æfa þar.
Skátastarfið fer fram í kirkjunni.
Það er líf og fjör í kirkjunni alla daga
vikunnar. Kirkjan er alltaf opin og
þangað kemur ferðafólk, bæði Ís-
lendingar og erlendir ferðamenn, og
á góða stund í fallegu og friðsælu
umhverfi,“ segir Ragnheiður.
Morgunblaðið/Sverrir
Stolt bæjarins Grundarfjarðarkirkja var byggð í tveimur áföngum. Haldið er upp á 50 ára vígsluafmæli á morgun.
Grundfirðingar bera
góðan hug til kirkjunnar
Ragnheiður
Þórarinsdóttir
Haldið upp á 50 ára vígsluafmæli Grundarfjarðarkirkju
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
EFTA-dómstóllinn komst í gær að
þeirri niðurstöðu að íslenska ríkið
hafi ekki endurheimt innan tilskil-
ins tímafrests ríkisaðstoð við
fimm fyrirtæki sem Eftirlitsstofn-
un EFTA (ESA) taldi að gengju
gegn EES-samningnum. Um er
að ræða fyrirtækin Verne, Becro-
mal og GMR endurvinnslu, en
samningar við Kísilfélagið og
Thorsil komust aldrei til fram-
kvæmda og því voru aldrei veittir
styrkir til þeirra.
Í fréttatilkynningu frá atvinnu-
vega- og nýsköpunarráðuneytinu
kemur fram að íslensk stjórnvöld
hafi unnið að lausn málsins á und-
anförnum mánuðum í samráði við
umrædd fyrirtæki. Stefnt sé að því
að öllum fimm málunum verði lok-
ið á allra næstu vikum.
Máli Verne lokið
Um er að ræða ríkisaðstoð sem
byggir á fjárfestingasamningum
og er staða mála eftirfarandi:
„Samningar við Kísilfélagið og
Thorsil komust aldrei til fram-
kvæmda og því voru aldrei veittir
styrkir á grundvelli þeirra.
Máli vegna Verne er lokið og
samkomulag hefur náðst í tilviki
Becromal.
Samkomulag um endurheimtu á
styrkjum til GMR endurvinnslu er
á lokastigum,“ segir í tilkynning-
unni.
Endurheimt er á lokastigi
EFTA-dómstóllinn gagnrýnir stjórn-
völd fyrir seinagang við endurheimt
Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hef-
ur samþykkt byggðaaðstoð til
Silicor Materials vegna bygg-
ingar á sólarkísilverksmiðju á
Grundartanga.
Aðstoðin er virði um 4,640
milljarða íslenskra króna og
verður í formi skattahagræðis
og ívilnandi reglna um leigu og
fyrningu. Gert er ráð fyrir að
verksmiðjan skapi um 450
störf. ESA segir að aðstoðin
stuðli að atvinnusköpun og laði
til sín fyrirtæki.
Aðstoðin
samþykkt
ESA UM SILICOR
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
„Jú, það er þannig, það er mest um
giftingar yfir sumarið. Ég sjálfur er
að sjá um einar, tvær, þrjár á laug-
ardögum. Þetta er aðallega um
helgar. En svo eru sumar giftingar
á virkum dögum. Þá er kannski mið-
að við upphaf þeirra kynna eða þeg-
ar þau hittust fyrst og þess háttar.
Oftast eitthvað svona persónulegt,“
segir Hjálmar Jónsson dómkirkju-
prestur.
„Ég er að gifta út um allt yfir
sumarið. Ég hef í gegnum tíðina gift
á Þingvöllum, í Heiðmörk og öðrum
fallegum stöðum, bæði á helgum
stöðum eða stöðum sem eru fólkinu
heilagir, heimaslóðum þeirra til
dæmis. Ég held að það sé ívið meira
um giftingar í sumar miðað við fyrri
ár. En það sem er áberandi er að
það er ekki íburður í dag, ekki enda-
laus glamúr, fyrst og fremst inni-
hald.“
Sækjast eftir fallegri umgjörð
Þegar blaðamaður Morgunblaðs-
ins ræðir við prestinn Kristínu Þór-
unni Tómasdóttur telur hún að svip-
að mikið sé um giftingar nú í sumar
og fyrri sumur. „En það er alltaf
þannig að fólk giftir sig frekar á
sumrin en á veturna. Vinsælu kirkj-
urnar halda sér í sessi. Það er mikið
gift í Garðakirkju, Lágafellskirkju í
Mosfellsbænum, Háteigskirkju og
líka í litlu kirkjunum eins og Árbæj-
arkirkju. Fólk er að sækjast eftir
fallegri umgjörð,“ segir Kristín.
Hilmar Örn Hilmarsson
allsherjargoði segir að giftingar hafi
verið ansi margar í sumar. „Sem
betur fer dreifist þetta á ansi mörg
okkar í Ásatrúarfélaginu. Þetta er
búið að vera mjög mikið í sumar,
kannski ekki metsumar en ansi mik-
ið. Það er líka mikið af útlendingum
sem eru að láta gifta sig hjá okkur.
Ég þori ekki að fara með það hvað
þetta er mikill fjöldi, en ætli þetta
séu ekki 70-80 á ári. Það er með því
skemmtilegasta sem maður gerir að
gifta fólk, þetta eru mjög fallegar
stundir.“
Mikil aukning hjá Siðmennt
Samkvæmt Bjarna Jónssyni hjá
Siðmennt er það að aukast mjög
mikið að fólk láti gifta sig hjá þeim.
„Það er ekki fyrr en árið 2013 sem
við fáum vígsluréttindi,“ segir
Bjarni.
„Við vorum með um 36 athafnir
árið 2013, allt árið í fyrra vorum við
að framkvæma 199 athafnir en það
sem af er árinu núna þá erum við
komin í 136 athafnir. En í þeirri tölu
eru einnig nafngiftir og jarðarfarir.
Aðalatriðið í þessu fyrir okkur er að
menn eigi möguleika á veraldlegum
athöfnum yfirhöfuð. Það verður að
geta þess að í 28 ár höfum við verið
með fermingar. Við höfum verið að
sjá að fólk sem hefur verið í ferm-
ingum er að koma og gifta sig. Við
erum búin að vera með viðhorfsk-
annanir og fólk virðist ánægt, töl-
urnar úr könnununum eru eins og í
Norður-Kóreu, 98 – 99 prósent eru
ánægðir,“ segir Bjarni.
Sumarið er tím-
inn fyrir ástina
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gleði Gifting er oftast gleðistund og áhugavert að flest þeirra sem sjá um
athöfnina vilja meina að íburður og glamúr sé minni en áður var.
Giftingar fara fram um sumarið