Morgunblaðið - 30.07.2016, Blaðsíða 37
DÆGRADVÖL 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 2016
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Reyndu að koma fram við aðra
eins og þú vilt að aðrir komi fram við þig.
Ef þér finnst gengið á hlut þinn þá er það
örugglega rétt hjá þér.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er einhver óvissa í loftinu og því
er hætt við að umræður um mikilvæg fjöl-
skyldumál leiði til ruglings og deilna. Með
góðri skipulagningu tekst þér að klára öll
verkefnin sem þér voru falin fyrir frí.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Til þinna kasta kemur með mjög
viðkvæmt einkamál. Stattu vörð um einka-
lífið. Bilanir eða tölvuvandræði geta
annaðhvort aukið álagið eða neytt þig til
að gera hlé á vinnunni.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Orðum þarf að fylgja einhver at-
höfn því annars missa þau marks. Láttu
ekki æsa þig upp út af smámunum.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú ættir að reyna að bæta á ein-
hvern hátt við menntun þína eða starfs-
þjálfun á næstunni. Samband sem þú hef-
ur efast um lengi fær þig til að
endurskoða ýmislegt í þínu lífi.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Afþreying og daður einkenna dag-
inn hjá þér. Þér er ekki skemmt við fréttir
sem þú færð. Þú færð stöðuhækkun ef þú
biður um hana.
23. sept. - 22. okt.
Vog Hvað varðar fjármálin, þá er allt á
uppleið. Vinnufélagi kemur á óvart og fé-
lagslífið hjá þér blómstrar þessar vikurnar.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Nú kemur að því að ein-
hverjum verður ljóst hvert þú ert að fara.
Notaðu skipulagshæfileikana til þess að
sýna ást þína á skapandi hátt.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú hefur orðið fyrir von-
brigðum og þarft því að gera þér grein
fyrir hvaða væntingar þú gerir til annarra.
Forðastu deilur, þær leysa ekki vanda
þinn.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú lendir í átökum um eitthvað
heima fyrir í dag. Rausnarskapur þinn lað-
ar að þér fólk sem á talsvert af öllu sem
þú óskar þér helst.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Leyfðu vinum þínum að sýna
þér þakklæti fyrir það sem þú hefur fyrir
þá. Að brosa leysir margt en ekki allt.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Að eðlisfari veistu nákvæmlega
hver þú ert og hvert þú vilt fara. Hlutir
sem eru spennandi núna þarfnast eft-
irfylgni og mikillar vinnu.
Síðasta laugardagsgáta var semendranær eftir Guðmund Arn-
finnsson:
Á ferðalagi fékk ég það.
Fann það áðan greypt í svörð.
Sá ég skunda ský með hrað.
Skipi róið yfir fjörð.
Guðrún Bjarnadóttir svarar „far-
ið um landið“ og bætir við:
Sem puttalingur fékk ég far,
á Fitjum merkti leir með skó.
Far á skýjum skondið var,
á Skjálfanda á fari spjó.
Hér er lausn Helga R. Ein-
arssonar:
Upp á borði ekkert var
og ekkert rak á fjörurnar,
svo læddist að mér lítið svar.
Líklega er hér átt við far.
Helgi Seljan svaraði með bestu
kveðju í bæinn:
Löngum var ágætt far að fá,
farið í mold er eftir skó.
Far á skýjunum flott ég sá,
fari er róið vítt um sjó.
Sjálfur skýrir Guðmundur gát-
una þannig:
Með norðurleiðum fékk ég far,
far í svörðinn greypt ég sá.
Skýja þar of skrautlegt var
skjótt mun farið landi ná.
Og bætir við limru:
Vísum flíkar Valdimar.
Vinsæll og dáður alstaðar
sá indælis piltur
er ofurstilltur
en óeirðarmaður um kvennafar.
Segist síðan hafa bangað saman
gátu um morguninn:
Í viðmóti hlýja og vinsemd er.
Velgengni líka stundum.
Ástin, sem býr í brjósti þér.
Blæjalognið á sundum.
Á laugardag fyrir viku heilsaði
Páll Imsland hinu þögla Leirliði í
dumbungsupphafi helgarinnar:
Nú er Leirinn í lamannna sessi.
Þar lifandi hnígur ei vessi.
Þetta ástand er leitt
og orkar ei neitt.
En Fjandinn er í sínu essi.
Dagbjartur Dagbjartsson segir á
Boðnarmiði að hann hafi rekist á
þessa vísu undir afdráttarhætti „í
gömlu góssi“.
Semja ljóðin fljóðin fljót
flétta hróður löngum.
Ásmundur Orri Guðmundsson
fann einn afdrátt eftir Eggert
Loftsson:
Svalur geltir, drjúpa dropar.
Drósir hvarma bleyta.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Með ráðninguna
í farteskinu
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
SÍÐAST ÞEGAR HANN BROSTI
SVONA VAR ÞEGAR HANN
KEYPTI ÓDÝRA KATTAMATINN
AF ÖLLUM ÞEIM
SEM ÉG HEFÐI
GETAÐ GIFST…
ÞÚ GIFTIST
HERRAMANNI!
ÉG LAÐAST AÐ LJÓSKUM!ER ÞAÐ?
HVAÐ GERIR ÞIG
AÐ HERRAMANNI?
MJÖG
FLOTT
ÞEGAR VERKIÐ YRÐI KLÁRAÐ YRÐI
ÞAÐ HENGT UPP Á BESTA STAÐ Á
ÍSSKÁPSHURÐINNI.
„TAKTU EINA AF ÞESSUM MEÐ VATNI HÁLFTÍMA
ÁÐUR EN ÞÚ VAKNAR Á MORGNANA.“
…að vera hjálplegur,
ekki hæðinn
Í þau örfáu skipti sem Víkverji fer ísjálfsalann í vinnunni lendir hann
undantekningarlaust í miklum vand-
ræðum. Í fyrra skiptið af tveimur
sem hann lenti í nýverið fólst vanda-
málið í því að sjálfsalinn neitaði að
taka við peningum Víkverja.
x x x
Víkverji ákvað nefnilega með sjálf-um sér að greiða aldrei með
korti í þessa sjálfsala heldur nota
klink til þess. Þetta er liður í því að
reyna að taka sig örlítið á í fjármál-
unum og nota ekki kortið endalaust í
einhvern óþarfa. Óþarfi telst í raun
flest allt sem er í sjálfsalanum því
þar er sykurinn í fyrirrúmi að und-
anskildum samlokunum og
tyggjóinu. Hið síðara er stundum al-
gjörlega lífsnauðsynlegt, sér-
staklega fyrir vinnufélaga Víkverja.
x x x
Í fyrstu tilraun vildi sjálfsalinn ekkisjá eina mynt með hundrað krón-
um sem Víkverji setti staðfastlega
aftur og aftur inn í raufina en alltaf
kom sá hinn sami peningur út aftur.
Jæja, hugsaði Víkverji með sér „ég
þarf ekki að kaupa mér ropvatn í
flösku á uppsprengdu verði.“ Þegar
Víkverji ýtti á takka til að fá pen-
ingana aftur til baka kom ekki öll
smámyntin sem hann setti í raufina.
Víkverji var snuðaður.
x x x
Daginn eftir hélt Víkverji ótrauðuráfram en ákvað í þetta sinn að
freista þess að setja tvær 50 króna
myntir í staðinn fyrir hundraðkall-
inn sem sjálfsalinn gubbaði út úr
sér. Sigri hrósandi greip hann gull-
peningana sem hann fullvissaði sig
um að væru ekki alveg splunkunýir
heldur búnir til árið 1987 því hann
taldi sjálfum sér trú um að það væri
vænlegra til vinnings.
Sjálfsalinn var ekki sama sinnis
og vildi ekki sjá neina gullpeninga
frá Víkverja heldur tók einungis við
fjórum tíu króna peningum. Þegar
Víkverji bað um að fá þessa peninga
aftur til baka skilaði sjálfsalinn ein-
göngu 10 krónum til baka. Sjálfs-
alinn snuðaði Víkverja aftur. Í
gremju sinni dró Víkverji fram vísa-
kortið og pantaði sér súkkulaði sem
datt ofan í hólfið og Víkverji át með
samviskubiti. víkverji@mbl.is
Víkverji
Drottinn, til himna nær miskunn þín,
til skýjanna trúfesti þín.
(Sálm. 36:6)
Verslun Tunguhálsi 10 - Sími 415 4000 – www.kemi.is - kemi@kemi.is
INTERFLON
Matvælavottaðar efnavörur
Nýjar umbúðir, sömu gæða efnin