Morgunblaðið - 30.07.2016, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 2016
Frekari upplýsingar á vefverslun okkar
www.donna.is
Hjartahnoð og hjartastuðtæki
björguðu lífi mínu
Er næsta hjartastuðtæki
langt frá þér?
Verð frá kr. 199.600
Hin árlega Ábæjarmessa verður
haldin í Ábæjarkirkju í Austurdal í
Skagafirði á morgun, sunnudag.
Athöfnin hefst kl. 14 en vissara er
fyrir messugesti að leggja tíman-
lega af stað því síðasti spölurinn að
kirkjunni er ekki ökufær, enda fara
Skagfirðingar í hópreið sem leggur
af stað kl. 10 frá Gilsbakka.
Einar K. Guðfinnsson, forseti Al-
þingis, mun flytja hugvekju, sr.
Gísli Gunnarsson þjónar fyrir altari
og honum til aðstoðar verður sr.
Halla Rut Stefánsdóttir. Agnar H.
Gunnarsson, oddviti Akrahrepps,
verður meðhjálpari og organisti
verður Stefán Gíslason, faðir Höllu
Rutar. Að lokinni athöfn verður
messukaffi á bænum Merkigili, sem
systkini Helga heitins Jónssonar sjá
um, síðasta ábúandans á Merkigili.
Einar K. í Ábæjar-
messu á morgun
Ábæjarkirkja Árleg messa á morgun.
STANGVEIÐI
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
„Þetta er búið að vera algjört æv-
intýri og meðalþyngdin geggjuð,“
segir Haraldur Eiríksson leiðsögu-
maður um veiðina í Laxá í Dölum í
sumar. Á meðan flestar aðrar ár í
Dölum og á Vesturlandi glíma við
verulegt vatnsleysi í blíðunni und-
anfarnar vikur, segir hann Hrúta-
fjarðarþokuna hafa náð reglulega
upp á Laxárdalsheiði með tilheyr-
andi úrkomu, og fyrir vikið hafi verið
mjög gott vatn í ánni í allt sumar.
„Það var meira að segja svo gott í
morgun,“ sagði Haraldur í gær, „að
Brúarstrengur var óveiðandi og
Dönustaðagrjót illveiðandi.“
Eftir niðursveiflu síðustu ár vekur
góður gangur í Laxá athygli en að-
eins hefur verið veitt þar á fjórar
stangir og einungis á flugu. Í liðinni
viku veiddust 150 laxar og rúmlega
fimm á stöng á dag.
„Kjaftfull af laxi“
„Áin er í rosalega góðu standi, hún
er kjaftfull af laxi,“ segir Haraldur.
„Næstsíðasta holl var með 85 á
þremur dögum og það síðasta fékk
60,“ segir hann og bætir við að nú sé
fyrsta sex stanga hollið að byrja í
dag og þá verði í fyrsta skipti farið á
marga staði þar sem vitað er af fiski
en veiðimen hafa ekki haft tíma til að
veiða á.
„Vatnið er frábært í ánni, það er
eins og rigni á heiðina eftir pöntun.
Menn standa á skrælnuðum bökkum
niðri í dalnum og það hækkar samt í
ánni yfir tvær tommur yfir nóttina.
Það er með ólíkindum.“ Segir Har-
aldur fallega stórlaxa enn að ganga í
bland við vænan smálax.
104 cm úr Svalbarðsá
Í liðinni viku veiddist 701 lax í
Ytri-Rangá og á vesturbakka Hóls-
ár, eða eitt hundrað á dag á stang-
irnar 20, fimm að meðaltali á stöng
og má teljast hörkufín veiði. Enn
betri er hún þó í Miðfjarðará þar
sem veiðiævintýrið heldur áfram og
ekkert virðist hafa dofnað yfir veið-
inni eins og gerst hefur í ám austar í
Húnaþingi, þar sem meðalveiðin á
stöng var um tveir laxar á dag í Víði-
dal, Vatnsdal og Blöndu; meðalveiði
á stöng í Miðfirði í liðinni viku var
7,6 laxar á dag. Og einn daginn
veiddust 99 og þar á meðal fallegir
nýrenningar um og yfir 100 cm.
Í Húseyjarkvísl hafa um 160 laxar
verið færðir til bókar á stangirnar
tvær en heldur hefur dofnað yfir
tökunni síðustu daga, eftir frábæra
byrjun. Veiðimenn sjá mikið af
stórum laxi í ánni, sem sumir eru
orðnir æði dökkir en taka þó af og
til; hins vegar finnst þeim smálaxa-
gangan minni en undanfarin ár.
Úr Þistilfirðinum fréttist að um
160 hafi einnig veiðst á stangirnar
tvær í Svalbarðsá og er allt á upp-
leið; síðasta holl fékk um 30. Þar á
meðal var einn 104 cm hængur.
„Búið að vera algjört ævintýri
og meðalþyngdin geggjuð“
Hrútafjarðarþoku fagnað við Laxá í Dölum Hundrað á dag úr Ytri-Rangá
Morgunblaðið/Einar Falur
Myndarlegur Sigtryggur Bjarni Baldvinsson með 79 cm hæng sem hann veiddi í Laxhyl í Húseyjarkvísl.
Aflahæstu árnar
Heimild: www.angling.is
Ytri-Rangá & Hólsá (20)
Miðfjarðará (10)
Eystri-Rangá (18)
Blanda (14)
Þverá - Kjarrá (14)
Norðurá (15)
Haffjarðará (6)
Langá (12)
Laxá í Aðaldal (18)
Haukadalsá (5)
Víðidalsá (8)
Hítará (6)
Elliðaárnar (6)
Laxá í Dölum (4)
Vatnsdalsá (6)
Veiðivatn (Stangafjöldi) Veiði
Á sama
tíma í
fyrra
Á sama
tíma
2014
Staðan 27. júlí 2016
1685
1883
556
2263
1241
1880
916
916
1216
492
475
546
442
172
431
534
639
877
1388
747
670
490
490
190
407
260
233
327
51
293
3250
1996
1885
1681
1300
953
820
731
623
534
520
488
455
425
451
Lögreglan á höf-
uðborgarsvæðinu
stöðvaði tvær
kannabisrækt-
anir í Hafnarfirði
í vikunni og lagði
hald á samtals um
300 kannabis-
plöntur. Önnur
ræktunin var í
íbúðarhúsi í bænum, en hin í iðn-
aðarhúsnæði. Einn var handtekinn í
tengslum við rannsóknina á kanna-
bisræktuninni í iðnaðarhúsnæðinu
og játaði viðkomandi sök. Skýrslu-
tökum í hinu málinu er hins vegar
ólokið, en þar var kannabisræktun í
tveimur herbergjum hússins. Þessu
til viðbótar handtók lögreglan sölu-
mann fíkniefna í Hafnarfirði, en við
húsleit á heimili hans í bænum var
lagt hald á kannabisefni og e-töflur.
Þar var einnig að finna fjármuni
sem grunur leikur á að séu tilkomnir
vegna fíkniefnasölu.
Lögðu hald á 300
kannabisplöntur
Byggðastofnun vinnur nú að nýrri
byggðaáætlun fyrir tímabilið
2017-2023. Hægt er að leggja
fram tillögur um verkefni gegnum
heimasíðu stofnunarinnar. Þær
verða síðan lagðar fyrir verkefn-
isstjórn byggðaáætlunar og hún
mun taka afstöðu til þeirra.
Á þessu vefsvæði má m.a. finna
upplýsingar um áætlunarvinnuna,
fyrri byggðaáætlanir og sóknar-
áætlanir landshluta.
Tillögur að nýrri byggðaáætlun
eiga að liggja fyrir í atvinnuvega-
og nýsköpunarráðuneytinu 1. nóv-
ember nk. og ráðherra byggða-
mála mun síðan leggja fram þings-
ályktunartillögu fyrir Alþingi.
Samkvæmt nýjum lögum skal
byggðaáætlun nú ná til sjö ára í
stað fjögurra áður, ná til landsins
alls og mótast í samráði við sveit-
arfélög og landshlutasamtök
þeirra, ráðuneytin og stýrihóp
Stjórnarráðsins um byggðamál.
Snorri Björn Sigurðsson, for-
stöðumaður þróunarsviðs Byggða-
stofnunar, segir það áður hafa
verið gert að óska eftir tillögum í
byggðaáætlun, en nú sé það gert
með markvissari hætti.
„Núna erum við að nýta okkur
betri tækni og erum komin með
tillöguform sem hægt er að fylla
út rafrænt og senda okkur á ein-
faldan hátt. Það er eftirsókn-
arvert að fá fram skoðanir og við-
horf svo ekki sé talað um beinar
tillögur. Og við höfum nú þegar
fengið viðbrögð og beinar til-
lögur.
Þarna erum við að stíga spor í
átt að því að opna ferlið enn meir
en með því að halda fundi um
byggðaáætlunina og viljum líka
með því auka umræður og áhuga
á áætluninni,“ segir Snorri Björn.
Ljósmynd/Óli Arnar
Byggðastofnun Starfsmenn vinna
nú að gerð nýrrar byggðaáætlunar.
Unnið að byggða-
áætlun til 2023
Senda má inn tillögur rafrænt