Morgunblaðið - 30.07.2016, Blaðsíða 11
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Guðni Th. Jóhannesson verður
settur í embætti forseta Íslands á
mánudaginn, 1. ágúst. 233 gestir
verða viðstaddir athöfnina.
Athöfnin hefst með helgistund í
Dómkirkjunni klukkan 15.30. Þar
prédikar biskupinn yfir Íslandi,
Agnes M. Sigurðardóttir. Dóm-
kirkjuprestarnir séra Hjálmar
Jónsson og séra Sveinn Valgeirs-
son þjóna fyrir altari. Kári Þormar
dómorganisti leikur á orgel, Dóm-
kórinn syngur og Bergþór Pálsson
syngur einsöng. Hann flytur lagið
„Þó þú langförull legðir“ eftir Sig-
valda Kaldalóns og Stephan G.
Stephansson.
Athöfn í Alþingishúsinu
Sjálf innsetningarathöfnin hefst
í Alþingishúsinu klukkan 16.
Handhafar forsetavalds stjórna at-
höfninni, Markús Sigurbjörnsson,
forseti Hæstaréttar, Sigurður Ingi
Jóhannsson forsætisráðherra og
Einar Kristinn Guðfinnsson, for-
seti Alþingis.
Forseti Hæstaréttar lýsir for-
setakjöri og útgáfu kjörbréfs. Að
því búnu vinnur hinn nýi forseti
drengskaparheit og síðan fær hann
kjörbréfið afhent.
Því næst ganga forsetahjónin út
á svalir Alþingishússins. Þar minn-
ist forseti Íslands fósturjarðar-
innar og flytur ávarp. Í lok athafn-
arinnar er þjóðsöngur Íslendinga
leikinn og sunginn.
Dómkórinn í Reykjavík syngur
við athöfnina og Jóhanna Vigdís
Arnardóttir syngur einsöng. Hún
flytur lagið Lífsbókin eftir Berg-
þóru Árnadóttur og Laufeyju Jak-
obsdóttur.
Lögin við athöfnina eru valin af
forsetaefninu.
Búist er við fjölda fólks á Aust-
urvöll á mánudaginn. Athöfninni
verður útvarpað svo að fólk geti
fylgst með því sem fram fer. Þá
verður Ríkissjónvarpið með beina
útsendingu frá embættistökunni og
hefst útsendingin klukkan 15:50.
Innsetningarathöfnin verður
anna. Leiddi sú athugun í ljós að
þær athafnir voru flestar látlausari
en tíðkast hefur á Íslandi fram til
þessa, að sögn Ragnhildar Arn-
ljótsdóttur ráðuneytisstjóra.
Hinn nýi forseti, Guðni Thorla-
cius Jóhannesson, er 48 ára gam-
all. Eiginkona hans er Eliza Jean
Reid, fædd í Kanada. Börn þeirra
eru fjögur: Duncan Tindur (f.
2007), Donald Gunnar (f. 2009),
Sæþór Peter (f. 2011) og Edda
Margrét (f. 2013). Guðni á einnig
dótturina Rut (f. 1994) með fyrri
eiginkonu sinni, Elínu Haralds-
dóttur, viðskiptafræðingi og lista-
konu. Rut stundar nám við Há-
skóla Íslands.
Guðni og Eliza búa á Seltjarnar-
nesi. Þau munu flytja á Bessastaði
innan tíðar. Þar standa nú yfir
endurbætur og viðgerðir.
233 gestir verða viðstaddir
embættistöku forsetans
Forsetahjónin koma fram á svalir Alþingishússins að athöfn lokinni
Morgunblaðið/Eggert
Forsetahjónin nýju Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Jean Reid.
Forsetar lýðveldisins
Heimild: Wikipedia
Sveinn Björnsson 17. júní 1944til 25. janúar 1952 2.778 dagar 63-70 ára
Ásgeir Ásgeirsson 1. ágúst 1952 til 1. ágúst 1968 5.844 dagar 58 - 74 ára
Kristján Eldjárn 1. ágúst 1968 til 1. ágúst 1980 4.383 dagar 51 - 63 ára
Vigdís Finnbogadóttir 1. ágúst 1980 til 1. ágúst 1996 5.844 dagar 50 – 66 ára
Ólafur Ragnar Grímsson 1. ágúst 1996 til 1. ágúst 2016 7.304 dagar 53-73 ára
með sama hætti og tíðkast hefur
frá upphafi, eða frá árinu 1945. En
eins og fram hefur komið hér í
blaðinu verða þó gerðar minni
kröfur um klæðaburð, orður og
heiðursmerki. Er það gert að ósk
forsetaefnisins, Guðna Th.
Jóhannessonar.
Í framhaldi af þeirri ósk aflaði
forsætisráðuneytið upplýsinga um
innsetningu forseta Frakklands,
fleiri Evrópuþjóða og Bandaríkj-
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 2016
Vertu upplýstur!
blattafram.is
VIÐ VILJUM GETA TREYST.
ÞAÐ TRAUST ROFNAR
AUÐVELDLEGA ÞEGAR HIÐ
VERSTA GERIST.
HVAÐ GERIR ÞÚ ÞEGAR
TRAUSTIÐ ROFNAR?
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Lokað
laugardag ogmánudag
Gleðilega
verslunarmannahelgi
gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900
Kaupmannahöfn
Opið í dag 10-15
ÚTSALAN
í fullum gangi
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Við erum á facebook
Útsalan hefst 2. ágúst
Lokað í dag laugardag
Suðurlandsbraut 30 • sími 553 3755
Eftirfarandi texta mun hinn ný-
kjörni forseti Íslands undirrita
við embættistökuna á mánu-
daginn:
„Ég undirritaður, Guðni
Thorlacius Jóhannesson, sem
kosinn er forseti Íslands um
kjörtímabil það er hefst 1. ágúst
2016 og lýkur 31. júlí 2020, heiti
því að viðlögðum drengskap
mínum og heiðri að halda
stjórnarskrá lýðveldisins Ís-
lands.“
Drengskapar-
heit forseta
EMBÆTTISTAKA
Isavia hyggst setja upp hávaða-
mæla til þess að mæla hljóðmengun
frá flugumferð af Keflavíkurflug-
velli. Reykjanesbær hefur gert at-
hugasemdir við aukna flugumferð
yfir Njarðvík en rekja má þessa
auknu flugumferð til endurbóta á
norður-suður flugbraut flugvallar-
ins og er því aukið álag á austur-
vestur flugbrautinni.
Á vef Isavia segir að til að íbúar
geti betur fylgst með hljóðmengun
frá flugumferð hafi Isavia ákveðið
að setja upp rauntímamæla sem
mæla hljóðmengun frá flugumferð.
Þegar rauntímamælarnir hafa ver-
ið settir upp verður hægt að fylgj-
ast með mælingum þeirra á vef
Isavia. Þangað til rauntímamæl-
arnir verða settir upp hefur Isavia
tekið á leigu hljóðmæli sem félagið
mun nota til þess að fylgjast betur
með hljóðmengun frá flugumferð
og gera prófanir sem miða að því
að minnka ónæði af völdum flug-
umferðar yfir byggð.
Stefnt er að því að þessum fram-
kvæmdum ljúki í síðasta lagi í októ-
ber og þá verður norður-suður
brautin aftur tekin í notkun.
Setja upp hljóðmæla í Keflavík
Ónæði í Njarðvík vegna aukinnar flugumferðar yfir svæðið
Vinna er hafin
við að fjarlægja
dekkjakurl af
fótboltavöllum
við grunnskóla í
Hafnarfirði.
Dekkjakurlið
verður fjarlægt
af völlum við
fjóra grunn-
skóla í bænum.
Byrjað er að
fjarlægja kurlið
af fótboltavelli við Hraunvalla-
skóla en framkvæmdir við
Hvaleyrarskóla, Setbergsskóla og
Öldutúnsskóla munu hefjast í lok
ágúst. Vonast er til þess að allt
dekkjakurl verði farið af völl-
unum áður en skólar hefjast í
haust.
Við Hraunvallaskóla verður
notað nýtt vottað gúmmíefni sem
uppfylliefni á völlinn en við Hval-
eyrarskóla, Setbergsskóla og
Öldutúnsskóla verður skipt alveg
um grasmottur og verða þeir
vellir án gúmmíuppfylliefna en
sett verður gúmmímotta undir
gervigrasið sem tryggir betri
endingu, stöðugleika og gæði.
Fyrirtækið Metatron átti
lægsta tilboðið í verkið en reikn-
að er með að vellirnir verði til-
búnir til notkunar í lok október.
elvar@mbl.is
Dekkjakurl fjarlægt
af sparkvöllum við
skóla í Hafnarfirði
Dekkjakurl Ný fylli-
efni verða notuð í
stað kurlsins.
- með morgunkaffinu