Morgunblaðið - 30.07.2016, Blaðsíða 21
UMRÆÐAN 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 2016
Frá
morgni
líkama
og sál
fyrir alla
fjölskylduna í
þínu
hverfi t i l kvölds
Sími: 411 5000 • www.itr.is
Fyrir
líkama
Laugarnar í Reykjavík
Íslenska sveitin sem teflir á Ól-
ympíumóti ungmenna 16 ára og
yngri í Poprad í Slóvakíu var í 18.
sæti með 9 stig og 19 ½ vinning af
32 mögulegum fyrir lokaumferð
mótsins sem fram fór í gær. Eftir
erfiða byrjun í fyrstu fjórum um-
ferðum mótsins fóru hjólin að snú-
ast og í sjöundu umferð vann
sveitin Hong Kong 3:1 og síðan
Belga 3 ½: ½.
Alls eru tefldar níu umferðir og
nýtt stórveldi skákarinnar virðist
vera að koma fram: Íranir. Þeir
hafa þegar tryggt sér ólympíu-
gullið með 15 stig, í 2. sæti koma
Rússar og Armenar í 3. sæti. Í
lokaumferðinni dróst Ísland á móti
sterkri sveit Moldavíu.
Fyrirkomulag mótsins er nýtt;
fimm í sveit þar af ein stúlka en
teflt er á fjórum borðum. Vara-
maður sveitarinnar, Svava Þor-
steinsdóttir, er að stíga sín fyrstu
skref á þessum vettvangi, hún
vann sannfærandi í fyrstu umferð
og byggði upp góðar stöður í
næstu tveim skákum en tapaði.
Vignir Vatnar Stefánsson sem er
13 ára gamall hefur teflt vel og er
með 4 ½ vinning af sjö mögu-
legum. Bárður Örn Birkisson er
einnig með 4 ½ vinning af sjö á 2.
borði. Björn Hólm hefur hlotið 3
½ vinning af átta og Hilmir Freyr
Heimisson er í banastuði; eftir
jafntefli í tveim fyrstu umferð-
unum vann hann fimm skákir í
röð, 6 vinningar af sjö mögulegum
á 4. borði!
Þátttökuþjóðirnar eru 54 talsins
og Íslandi var fyrirfram raðað í
32. sæti. Indland verður vettvang-
ur Ólympíumóts 16 ára og yngri
árið 2017 samkvæmt mótaáætlun
FIDE.
Niðurstaða þessa móts er í takt
við stöðu Íslands á alþjóðavett-
vangi meðal ungra skákmanna og
talsvert betri ef eitthvað er.
Hjörvar við toppinn
í Kaupmannahöfn
Íslenskir skákmenn sitja einnig
að tafli í Kaupmannahöfn þar sem
fram fer hið svonefnda Xtracon-
mót sem hét áður Politiken cup.
Stórmeistarinn Hjörvar Steinn
Grétarsson gerði jafntefli í sjö-
undu umferð og var með 5 ½ vinn-
ing í toppbaráttunni en Egyptinn
Amin Bassem er efstur með 6 ½
vinning.
Á opna tékkneska meist-
aramótinu í Pardubice í Tékklandi
bar helst til tíðinda að Oliver Aron
Jóhannesson vann stórmeistarann
Jansa í fjórðu umferð. Oliver Aron
og Dagur Ragnarsson eru báðir
með 3 ½ v. af sjö mögulegum og
voru að ná árangri umfram vænt-
ingar í A-flokknum þar sem Ar-
meninn Movsesian og Indverjinn
Ganguly voru efstir.
Magnús Carlsen sigraði með
yfirburðum
Magnús Carlsen vann hið sterka
mót í Bilbao á Spáni sem lauk um
síðustu helgi. Gefin voru þrjú stig
fyrir sigur og eitt fyrir jafntefli og
lokaniðurstðan var þessi:
Carlsen 17 stig, 2. Nakamura 12
stig, 3. – 4. So og Wei Yi 11 stig,
5. Karjakin 9 stig, 6. Giri 7 stig.
Heimsmeistarinn á síðasta orðið.
Andstæðingi hans virðist standa
stuggur af nálega öllum leikjum
Magnúsar, saklausum peðsleikjum
eins 9. a3 og 10. b4. Og svo kemur
hrina snilldarleikja, 17. De1, 18.
Rd2, 19. Rc4. So leggur niður
vopnin þegar hann stendur frammi
fyrir mátsókn:
Bilbao 2016; umferð:
Magnús Carslen – Wesley So
Spænskur leikur
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 Rf6
4. d3 Bc5 5. Bxc6 dxc6 6. De2
De7 7. Rbd2 Bg4 8. h3 Bh5 9. a3
Rd7 10. b4 Bd6 11. Rc4 f6 12. Re3
a5 13. Rf5 Df8 14. bxa5 Hxa5 15.
O-O Df7 16. a4 Rc5 17. De1 b6 18.
Rd2 Hxa4 19. Rc4 Bf8 20. Be3
Kd7 21. Dc3 Rxe4
22. Rxb6+ cxb6 23. dxe4 Dc4
24. Dd2+ Kc7 25. g4 Bg6 26.
Hfd1
- og svartur gafst upp.
Hilmir Freyr vann
fimm í röð á ÓL 16
ára og yngri
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Það var í mars sem hringt var í
mig frá DV og spurt hvort ég vildi
blaðið frítt í 3 mánuði. Ég var treg
til þess enda kaupi ég Morgun-
blaðið, en lét samt tilleiðast. Í maí
var tvívegis hringt í blaðið og ósk-
að eftir því að hætta að senda mér
blaðið en það kemur enn. Svo fæ
ég rukkun um mánaðargjald með
dráttarvöxtum fyrir júní og á ég
líka að borga mánaðarlega til
fyrsta september því ég fékk blaðið
frítt á undan. Ég veit um fjórar
konur hér sem fengu þetta tilboð
eins og ég, en við erum allar á ní-
ræðisaldri. Þær lenda sennilega í
sömu málum og ég með þetta. Er
hægt að koma svona fram við gam-
alt fólk?
Guðlaug Vagnsdóttir.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Losna ekki við DV
Morgunblaðið/Sverrir
Blaðið DV Bréfritari er ekki sáttur við framkomu í sinn garð.
Kaup HB Granda á
aflahlutdeildum í bolfiski
frá Hafnarnesi VER,
sem nemur 1.600 þorsk-
ígildistonnum, eru váleg
tíðindi fyrir Þorlákshöfn.
Þau eru váleg tíðindi fyr-
ir öll sveitarfélög, sem
ekki eru heimastöðvar
kvótasterkra útgerðar-
fyrirtækja með ríkuleg-
ar aflaheimildir í bæði
bolfiski og uppsjávarstofnum.
Fyrr á árinu keypti Skinney/
Þinganes Auðbjörgu í Þorlákshöfn og
með þeim kaupum hurfu 1.800 þorsk-
ígildistonn úr byggðarlaginu, þannig að
blóðtakan á þessu ári er gríðarleg.
Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum
keypti Meitilinn í Þorlákshöfn 1991 og
lofaði að fiskvinnslan í sveitarfélaginu
yrði efld. Fram til þess tíma hafði bol-
fiskvinnsla gengið ágætlega þrátt fyrir
nokkurn skort á hráefni. Vinnslustöð-
inni hafði gengið síður í bolfiskvinnslu.
Ekki leið á löngu þar til Vest-
mannaeyingum fannst ófært að kvóti
þeirra væri unninn í Þorlákshöfn og
lyktir þeirra mála urðu að Frostfiskur
keypti fiskvinnslu Meitilsins. Eftir
aldamót var skráning skipa Meitilsins
flutt til Eyja og þau auðkennd VE.
Kvóti Meitilsins er þar með kominn til
Eyja.
Staðan er því sú að allur kvóti er far-
inn frá Þorlákshöfn, að slepptum þeim
kvóta sem Þormóður rammi hefur yfir
að ráða. Stærsti vinnustaðurinn er
Frostfiskur sem á engan kvóta og býr
við mun hærra hráefnisverð en kvótas-
terku fyrirtækin, sem í skjóli ríkisins
landa afla til eigin vinnslu á allt að
helmingsafslætti frá fiskmarkaðsverði,
sem kvótalausar vinnslur þurfa að
greiða. Síðan koma þessi kvótasterku
fyrirtæki á kauphliðinni inn á fisk-
markaði og greiða þar mun hærra verð
en þau miða við í skiptum til eigin sjó-
manna. HB Grandi hefur t.a.m. verið
stærsti kaupandi ufsa og hefur verið að
færast í aukana í kaupum á þorski eftir
að fiskvinnslan á Akranesi var stækk-
uð.
Ekkert lært af Borgunarmálinu
Allt gerist þetta í skjóli ríkisins og
ríkisbankans, Landsbankans. Bank-
inn hefur verið leiðandi í sjávarútvegi
og beitt afli sínu til að ganga milli bols
og höfðuðs á smærri
fyrirtækjum í sjávar-
útvegi í þágu hinna
stærri. Stjórnendur
Landsbankans hafa
greinilega ekkert lært
af Borgunarsölunni,
sem rýrði bankann
trausti svo að ríkis-
stjórnin varð að hverfa
frá áformum um sölu á
hlut sínum í bankanum
á þessu ári. Eftir að upp
komst um Borgunar-
hneykslið lofuðu stjórn-
endur bankans að stærri eignasölur
yrðu framkvæmdar í opnu útboðs-
ferli.
Kvótasalan frá Þorlákshöfn sýnir
að ekkert hefur breyst. Bankinn af-
hendir völdum gullkálfum þessar
aflaheimildir til þess að verja sín eigin
veð. Engar forsendur eru fyrir hárri
verðlagningu á aflaheimildum í um-
hverfi þar sem íslensk útflutningsfyr-
irtæki standa frammi fyrir sterkri,
handstýrðri krónu og löskuðum
mörkuðum í mörgum löndum sem
eru svo til lokuð vegna mikils falls
gjaldmiðla.
Bankinn ver óeðlilega verðlagn-
ingu á kvóta sem stimplar alla út aðra
en hina sterku, sem hafa stuðning
bankans og fá afskriftir eftir þörfum
án þess að missa tangarhald á fyrir-
tækjum sínum og framleiðslu-
tækjum. Það eru nefnilega engar
rekstrarlegar forsendur fyrir kaup-
um á kvóta á því verði sem Lands-
bankinn heldur uppi. Það virðist ekki
skipta máli og tilgangurinn helgar
meðalið. Markmiðið er samþjöppun
sem skaðar þjóðarbúið í heild. Hagn-
aðurinn af uppsjávarveiðum er not-
aður til að safna bolfiskkvóta á örfáar
hendur.
Þessi skollaleikur í skjóli ríkisins
og ríkisbankans leiðir til þess að fisk-
markaðir eru sveltir. Alvarlegur
skortur er á verðmætasta bolfiskafl-
anum því stóru útgerðirnar halda
honum fyrir sínar eigin vinnslur.
Samkeppnismismunun
í boði ríkisins
Það er við þessar aðstæður sem
Frostfiskur hefur frá 1998 verið
stærsti atvinnuveitandinn í Þorláks-
höfn með að meðaltali 120 manns í
vinnu. Frostfiskur er dæmigert aðild-
arfélag innan Samtaka fiskfram-
leiðenda og útflytjenda (SFÚ). Fyr-
irtækið kaupir sitt hráefni á
fiskmörkuðum og sinnir kröfuhörð-
ustu viðskiptavinum í Evrópu og Am-
eríku, sem borga hæsta verðið og
krefjast mestu gæða, fullkomins af-
hendingaröryggis og nákvæmra
stærða. Í mörgum byggðarlögum
hafa SFÚ-fyrirtæki stigið inn sem at-
vinnuveitendur eftir að stórútgerðin
hvarf á braut með kvótann.
Þrátt fyrir að Frostfiskur og sam-
bærileg fyrirtæki víðar um landið
framleiði verðmætustu sjávarafurðir,
sem framleiddar eru hér á landi, er
ekki rekstrarlegur grundvöllur fyrir
kvótakaupum fyrirtækja sem þurfa
einatt að keppa við önnur sem fá hrá-
efnið á lægra verði og betri kjör og
þjónustu í bankanum.
Kosningamál
Hvað gerist ef Frostfisksbræður
og fleiri athafnamenn víða um landið
gefast upp á óréttlætinu og loka?
Ætlar þá Landsbankinn að koma til
hjálpar í byggðarlögum, sem komast
á vonarvöl? Eða skiptir fólkið í land-
inu engu máli?
Ríkisstjórnin styður þetta óréttláta
og óhagkvæma kerfi. Mikilvægt er að
stjórnarandstaðan leggi sín spil á
borðið því fiskveiðistjórnunin verður
eitt af stóru kosningamálunum í kom-
andi þingkosningum. Við Íslendingar
getum ekki státað af besta fiskveiði-
stjórnunarkerfi í heimi á meðan kerf-
ið mismunar fyrirtækjum og byggð-
arlögum, og alls ekki á meðan kerfið
kemur í veg fyrir að þjóðin njóti há-
marksafraksturs af nýtingu sameig-
inlegrar auðlindar.
Er ekki mál að linni?
Eftir Ólaf
Arnarson »Þrátt fyrir Borg-
unarhneykslið af-
hendir Landsbankinn
vildarviðskiptavini nær
allan kvóta Þorlákshafnar
fyrir luktum dyrum.
Ólafur Arnarson
Höfundur er hagfræðingur og hefur
starfað að verkefnum fyrir Samtök
fiskframleiðenda og útflytjenda.
mbl.is
alltaf - allstaðar