Morgunblaðið - 30.07.2016, Blaðsíða 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 2016
Oscar Bjarnason vörumerkjahönnuður er fertugur í dag. Hannhefur gert fjölda merkja sem allir þekkja fyrir fyrirtæki ogstofnarnir eins og N1, Borg brugghús, OZ, Alvogen, Alvotech,
TripCreator, A4, Íslandsstofu, Sjúkratryggingar Íslands, Einkaleyfa-
stofu, Hagstofu Íslands og hlaut til að mynda alþjóðleg verðlaun í
fyrra sem hann gerði fyrir Innnes.
„Ég er sjálfstætt starfandi og tek að mér verkefni fyrir fyrirtæki
beint en einnig fyrir auglýsingastofur sem verktaki, hvort sem um er
að ræða grafíska hönnun, merkjahönnun eða ljósmyndum. Ég er núna
t.d. að vinna að tveimur frímerkjum sem koma út á næsta ári, en ég
hef búið til einhver 12-13 frímerki fyrir Íslandspóst.“
Oscar er sjálfmenntaður í faginu en að teikna hefur verið áhugamál
hjá honum frá því að hann var krakki. „Ég lærði prentsmíði í Iðnskól-
anum en byrjaði að vinna á auglýsingastofu og fór út í grafíska hönn-
un þar og kláraði aldrei námið. Ég hef síðan unnið sjálfstætt í 15 ár.“
Oscar er staddur á Alicante með fjölskyldunni í tilefni afmælisins,
en hann ferðast einnig innanlands og tekur myndir. „Að ferðast og
taka myndir er aðaláhugamálið en það er líka vinnan. Í sumar er ég
búinn að fara um alla Vestfirði fram og til baka og fór upp á hálendið,
í kringum Landmannalaugar. Ég fór einnig til Færeyja í lok maí með
konunni að mynda fyrir myndabankann og sjálfan mig.“
Eiginkona Oscars er Erla Rán Jóhannsdóttir, en hún er að ljúka við
lokaritgerðina í meistaranámi í matvælafræði. Dóttir þeirra er Sóley,
3 ára, en fyrir átti Oscar Mána Frey, 12 ára, og Sögu Steindóru, 9 ára.
Á Alicante Oscar Bjarnason og Erla Rán ásamt börnunum þeirra.
Hefur hannað mörg
þekkt vörumerki
Oscar Bjarnason er fertugur í dag
Á
rni Sigfússon fæddist í
Goðasteini í Vest-
mannaeyjum 30.7. 1956
og bjó með fjölskyld-
unni í Eyjum til 12 ára
aldurs er hún fluttist til Reykjavík-
ur. Hann lauk stúdentsprófi frá MH
1977, kennaraprófi frá KHÍ 1981 og
meistaraprófi í stjórnun og opin-
berri stjórnsýslu í Bandaríkjunum
1986. Árni stundaði fiskvinnslu, sjó-
mennsku og byggingarvinnu í Vest-
mannaeyjum flest námsárin, var
stundakennari við Vogaskóla 1974-
78, blaðamaður á Vísi 1980-81, fram-
kvæmdastjóri fulltrúaráðs sjálf-
stæðisfélaganna í Reykjavík 1982-
84, aðstoðarmaður við rannsóknir
við University of Tennessee 1985-86,
deildarstjóri Fjárlaga- og hagsýslu-
stofnunar 1986-88, framkvæmda-
stjóri Stjórnunarfélags Íslands
1989-99, borgarfulltrúi í Reykjavík
1986-98, borgarstjóri 1994 og leið-
togi sjálfstæðismanna í borgarstjórn
1994-98. Hann var framkvæmda-
stjóri Tæknivals 1999-2001, bæjar-
fulltrúi í Reykjanesbæ frá 2002 og
bæjarstjóri 2002-2014.
Árni var formaður Heimdallar
1981-83, formaður SUS 1987-89, for-
maður Félagsmálaráðs Reykjavík-
urborgar 1986-90, sat í borgarráði
1990-98, formaður stjórnar sjúkra-
stofnana 1990-94 og formaður Skóla-
málaráðs 1991-94. Hann var formað-
ur FÍB frá 1994-2001. Þá var Árni
formaður fræðsluráðs Reykjanes-
bæjar 2002-2006 og formaður Fé-
lagsmálaráðs frá 2006-2010, stjórn-
arformaður Hitaveitu Suðurnesja
2007-2009 og er stjórnarformaður
Keilis, miðstöðvar vísinda og fræða.
Búa öllum bestu aðstæður
til að þroskast
„Í lífinu hef ég lært að fimm gildi
þurfa að fara saman svo við séum
Árni Sigfússon stjórnsýslufræðingur – 60 ára
Fjölskyldan Árni Sigfússon með eiginkonu, börnum, tengdasonum og barnabörnum ásamt móður og tengda-
foreldrum á brúðkaupsdegi Védísar Hervarar og Þórhalls Bergmann.
Uppskriftin að árangri
er frekar einföld
Árið er 1980 Árni mótmælir innrás
Sovétmanna í Afganistan.
Hér eru fimm ættliðir í beinan kvenlegg samankomnir. Sú elsta neðst til hægri
heitir Elísabet Ólafsdóttir (fædd 1932), fyrir ofan hana til hægri er Elísabet Ólöf
Helgadóttir (fædd 1972), við hliðina á henni stendur Hafdís Haraldsdóttir (fædd
1955) og neðst til vinstri er Hafdís Elsa Ásbergsdóttir (fædd 1992) sem heldur á
sínu fyrsta barni, óskírðri Andrésdóttur (fædd 8. júlí 2016).
Fimm ættliðir
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinumynd af nýjum borgara eðamynd af brúðhjónum fá fría áskrift
að Morgunblaðinu í einnmánuð.
Hægt er að sendamynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Skeifunni 3h ll Sími: 588 5080 ll dynjandi.is
Öryggisskór
í vinnuna!
Ertu með réttan skófatnað fyrir vinnuna þína?
Dynjandi býður upp á úrval af öryggisskóm.
Hafðu samband. Við veitum þér faglega aðstoð.