Morgunblaðið - 30.07.2016, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 30.07.2016, Qupperneq 39
MENNING 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 2016 Það verður heljarinnar tónlistar- dagskrá á viskíbarnum Dillon í Reykjavík um helgina en alls munu fimmtán hljómsveitir stíga þar á svið. Sveitirnar eru bæði íslenskar og er- lendar en á meðal þeirra sem koma fram eru Grísalappalísa, Snorri Helgason, Kontinuum, Teitur Magn- ússon og Moji & The Midnight Sons. Þess má geta að tvö ár eru síðan síðasta breiðskífa Grísalappalísu, Rökrétt framhald, kom út og ekki ólíklegt að nokkir slagarar af þeirri plötu muni fá að njóta sín. Þá má þess einnig geta að Teitur Magnússon gaf út verkið 27 síðla árs 2014 og var það tilnefnt til Norrænu tónlistarverð- launanna. Þá verður einnig efnt til grillveislu í bakgarði staðarins sem stendur við Laugaveg 30. Tónleikarnir hefjast að jafnaði klukkan 20 og standa til mið- nættis. Það er síðan engin önnur en rokkarinn Andrea Jónsdóttir sem mun þeyta skífum frá miðnætti öll kvöldin. Morgunblaðið/Eggert Rokkað Grísalappalísa kemur fram auk Teits, Snorra Helgasonar og fleiri. Grísalappalísa og Teitur á Dillon Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Í Norræna húsinu stendur yfir sýningin Öld barnsins þar sem finna má norræna hönnun úr efn- isheimi barna, s.s. húsgögn, leik- föng, fatnað, nytjahluti og margt fleira. Sýningin hefur ferðast um Norðurlönd síðustu tvö ár og er nú komin hingað og hefur fjöl- mörgum verkum eftir íslenska hönnuði verið bætt við nor- rænu sýninguna. Á sýningunni eru þekkt verk eftir Alvar Aalto, Ólaf Elí- asson, Arne Ja- cobsen, Kay Bojesen, Carl og Karin Larsson, Peter Opsvik og Tove Jansson og nokkur af vin- sælustu vörumerkjum heims á borð við BRIO, LEGO og Mari- mekko. Sýningin betrumbætt Guja Dögg Hauksdóttir, sýning- arstjóri og sýningarhönnuður yfir íslenska hlutanum, segir að þegar sýningin hafi komið hingað til landsins hafi hún tekið eftir hversu fáir íslenskir munir voru með. „Ég spurði þá hvort ég mætti setja inn íslenska hluti og það var mikil stemning fyrir því. Það mun svo verða framvegis hluti af sýningunni en hún á eftir að fara til Berlínar í sendiráðið og víðar,“ segir Guja. „Ég betrum- bætti sýninguna, en mér fannst mikilvægt að velja eitthvað sem væri sérstakt fyrir Ísland en líka fyrir Norðurlönd. Það eru ákveðnir þræðir varðandi húm- anisma og samfélagsvitund og endurnýtingu efna sem ég hafði í huga og svo auðvitað gæði,“ segir hún. Ekki bara „smart og kúl“ Guja telur íslenska hönnuði mjög færa. „Við eigum ekki langa sögu af hönnunarskólum en Listaháskólinn byrjaði um alda- mótin og er það núna að skila sér í alveg ótrúlega fínum hönnuðum. Mér fannst gott að vekja athygli á að við erum að gera hluti sem eru alveg á pari við flottustu hönnun á Norðurlöndum,“ segir Guja og nefnir meðal annars dúkkuna Lúllu. „Það er mikill kærleikur í þessu. Það er svo mikið lagt í þetta. Það er þessi umhyggja og blíða sem stýrir hönnuninni, ekki bara að það sé „smart og kúl“,“ segir hún. „Hér er líka til sýnis ný vagga eftir stúlku sem útskrifaðist í vor og svo eru hér leikföng sem eru eins og leggir og skeljar en þetta er framleitt úr plasti. Þetta eru tengingar bæði aftur og fram einhvern veginn með fallega hugs- un að baki og mikla sköpunar- gleði. Þetta spilar á fantasíuna,“ segir Guja sem telur að sýningin muni kynna íslenska hönnun og hönnuði erlendis í framtíðinni. Börn mega hoppa í pollum Norræn hönnun er allt öðruvísi en gerist og gengur í öðrum lönd- um, eins og Bretlandi og Banda- ríkjunum að sögn Guju. „Við hérna á Norðurlöndum höfum ákveðna vitund um börn; þau eru ekki endilega stillt og það er ákveðið svigrúm og hefð fyrir því að börn fari út og hoppi í pollum og prófi hluti. Ég veit til dæmis að í Bretlandi er börnum á barna- heimilum ekkert hleypt út ef það er rigning; eiga ekkert regngalla. Við hönnum án þess að börnum verði kalt; án þess að þau meiði sig. Hönnunin miðast við að börn- in geti gert þetta. Þetta er bara eðlilegur hluti af æskunni og þá bara eltir hönnunin það.“ Guja bendir einnig á að í nor- rænni hönnun er notað mikið af náttúrulegum efnum. „Það er meira af ómeðhöndluðum efnum; það er notað alvöru ull, ekki pó- lyester, alvöru viður, alvöru máln- ing án eiturefna. Og miklu minna af plasti, maður sér það greini- lega,“ segir hún. Tengja námsefni við sýninguna Sýningin verður opin í hálft ár og mun tengjast ýmsu kennslu- starfi. „Ég er ráðin til að búa til námsefni fyrir grunnskólanem- endur sem geta þá unnið með sýn- inguna sem grunn upp á að efla vitund fyrir hönnun sem er ekki bara smart heldur sýnir hvernig er hægt að gera hluti sem auð- velda manninum lífið. Svo verða ráðstefnur og alls konar smiðjur bæði fyrir börn og fullorðna,“ seg- ir Guja. Börnin mega leika sér Sýningin er ekki einungis inn- an dyra því fyrir utan Norræna húsið er búið að koma fyrir sér- stökum leiktækjum. „Við teygð- um sýninguna út því það er ís- lenskur framleiðandi sem heitir Krumma og býr til og þróar leik- velli fyrir íslenskar aðstæður. Formið er eins og klettar og hraun, en þetta er þannig að börnin meiða sig ekki. Þetta á að örva börn og hvetja þau til að nota líkamann,“ segir Guja. Hún ákvað einnig að hafa svæði á sýn- ingunni þar sem börn mættu snerta muni og leika sér. „Ég hugsaði að það yrði grátur og gnístran tanna að koma með mömmu og pabba á sýningu og mega ekki snerta. Þannig að í miðju rýminu smíðaði ég hús og keypti inn í það ákveðið úrval af því sem er undir gleri. Margir af hlutunum eru enn í framleiðslu. Þar mega börnin gera allt og það hefur sýnt sig að börn og for- eldrar sitja þar löngum stundum þegar þau eru búin að skima sýn- inguna.“ Umhyggja og blíða stýrir hönnuninni  Sýningin Öld barnsins er nú í Norræna húsinu en þar má finna mörg þekktustu verk norrænnar hönnunar fyrir börn frá 1900 til dagsins í dag  Íslensk hönnun skipar stóran sess á sýningunni Á sýningunni Öld barnsins í Norræna húsinu má finna norræna hönnum sem tengist menningu barna síðustu hundrað ár. Guja Dögg Hauksdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.