Morgunblaðið - 12.08.2016, Page 8

Morgunblaðið - 12.08.2016, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. ÁGÚST 2016 Svona hljóðaði pistill Páls Vil-hjálmssonar í gær:    Þá vil ég að lokum taka framað 365 er fjölskyldufyrirtæki. Von mín er að við stöndum saman sem ein fjöl- skylda,“ skrifaði eiginkona Jóns Ás- geirs Jóhann- essonar í dreifi- bréfi til starfsmanna 365 miðla.    Einn af öðrum ganga lyk-ilstarfsmenn úr skaftinu í fjölskyldu Jóns Ásgeirs. Flóttinn stafar af þrúgandi andrúmslofti innan fjölskyldunnar.    Fjölskyldur splundrast sjaldn-ast vegna einstakra eða af- markaðra atburða. Iðulega er langt og margbrotið ferli að baki þegar eymdin kemur upp á yf- irborðið. Brotnar fjölskyldur er erfitt að líma saman, eftir að leið- indin verða opinber. Enn síður þegar höfuð fjölskyldunnar er sér- gæskan uppmáluð.“    Þetta var upplýsandi allt samanog leysir úr vafamáli á vinnu- stað. Þar situr eiginmaður eigand- ans í hásæti, en ber þó ekki starfsheiti sem lýsir raunveruleg- um áhrifum hans.    Starfsfólkið á í vandræðummeð, hvernig það skuli ávarpa alvaldinn og ræða um hann sín á milli. Nú hefur formlegi eigandinn leyst úr því með afgerandi hætti. Best fer á því að starfsfólkið kalli skærustu ljósaperu samsteyp- unnar „Jón frænda.“    Þægilegt, alþýðlegt og notalegtog þekkt úr samhentum fjöl- skyldum. Onkel Jóakim STAKSTEINAR Hamraborg 10 – Sími: 554 3200 Opið: Virka daga 9.30-18 AFMÆLISTILBOÐ VIÐ ERUM 20 ÁRA Með hverjum keyptum gleraugum fylgja sólgleraugu með í kaupbæti Verið velkomin í sjónmælingu Veður víða um heim 11.8., kl. 18.00 Reykjavík 14 skýjað Bolungarvík 8 heiðskírt Akureyri 15 alskýjað Nuuk 8 alskýjað Þórshöfn 10 rigning Ósló 18 rigning Kaupmannahöfn 16 skýjað Stokkhólmur 15 heiðskírt Helsinki 15 skýjað Lúxemborg 13 rigning Brussel 12 rigning Dublin 20 alskýjað Glasgow 16 rigning London 22 skýjað París 21 léttskýjað Amsterdam 15 rigning Hamborg 12 rigning Berlín 17 alskýjað Vín 17 léttskýjað Moskva 26 léttskýjað Algarve 27 heiðskírt Madríd 29 heiðskírt Barcelona 24 heiðskírt Mallorca 26 léttskýjað Róm 28 heiðskírt Aþena 31 heiðskírt Winnipeg 25 rigning Montreal 19 heiðskírt New York 31 rigning Chicago 31 rigning Orlando 30 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 12. ágúst Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 5:12 21:54 ÍSAFJÖRÐUR 5:02 22:14 SIGLUFJÖRÐUR 4:44 21:58 DJÚPIVOGUR 4:38 21:28 „Þetta hrekkur í allar áttir. Mér finnst gott að gefa penslunum frelsi og sjá hvað kemur út úr því,“ segir Aðalsteinn Vestmann, myndlist- armaður á Akureyri. Sýning á mál- verkum hans verður opnuð í Gallerí Vest að Hagamel 67 í Reykjavík síð- degis í dag, á 84. afmælisdegi Að- alsteins. Aðalsteinn lærði við Handíða- og myndlistarskóla Íslands og kynnti sér einnig myndlist í Finnlandi. Hann hefur unnið að myndlist í marga áratugi og starfaði auk þess sem myndmenntakennari við Barna- skóla Akureyrar. Hann hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum og þá einkum norðan heiða. „Ég nota tímann til þess, þegar ég get ekkert annað gert,“ segir Að- alsteinn en viðurkennir að hann standi við trönurnar flesta daga. Seg- ir ágætt að drepa tímann við þessa iðju enda gleymi hann sér gjarnan við hana. „Ég er aldrei klár á því hvað úr þessu verður. Það er kannski hugsunarleysi að skipuleggja þetta ekki betur en ég hef mest gaman af því að láta þetta ráðast.“ Hann lagði olíulitunum fyrir mörg- um árum og beitir penslinum nú ein- göngu í akríl og vatnsliti. Myndirnar safnast ekki upp hjá honum. „Ég veit ekkert hvað verður af þeim. Mér finnst bara ágætt ef ein- hverjir hafa gaman af þessu, hver það er skiptir mig ekki máli. Ég sendi suður allt sem ég átti, átján myndir,“ segir Aðalsteinn. Hann segist vera við ágæta heilsu nema hvað hann sé farinn að tapa heyrn. Viðurkennir þó að betra sé að tapa heyrn en valdi á puttunum eða sjón. Heyrnarleysið bitni aðallega á öðrum. helgi@mbl.is Gott að gefa penslunum frelsi Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson List Aðalsteinn Vestmann listmálari heldur enn eina sýninguna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.