Morgunblaðið - 12.08.2016, Page 36
FÖSTUDAGUR 12. ÁGÚST 225. DAGUR ÁRSINS 2016
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR.
1. „Hún hefði átt að fara í megrun“
2. Söngvari Muse út fyrir bandið
3. Rannsaka árás á sérsveitarmann
4. Blaðamaður VG prófaði …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Quarashi kemur fram á tónleikum
á Nasa í kvöld kl. 22. Sveitin hefur
ekki spilað í Reykjavík síðan 2011.
Shades of Reykjavík og GKR sjá um
upphitun í kvöld.
Morgunblaðið/Ófeigur
Quarashi á Nasa
Sýning á verk-
um Þóru Sigurð-
ardóttur verður
opnuð í Listasafni
ASÍ í dag kl. 12.
Sýningarstjóri er
Becky Forsythe og
ritar hún jafn-
framt texta í sýn-
ingarskrá. Sýn-
ingin stendur til 4. september, en
safnið er opið alla daga nema mánu-
daga frá kl. 13 til 17.
Þóra Sigurðardóttir
sýnir í Listasafni ASÍ
Rappararnir Gísli Pálmi og Aron
Can munu koma fram saman á stór-
tónleikum í Gamla bíói í kvöld
klukkan 21. Báðir hafa þeir farið
mikinn að undanförnu en
íslenska rappsenan hef-
ur verið á mikilli sigl-
ingu síðasta árið. Með
þeim á tónleikunum
koma fram
SXSXSX, Gervi-
sykur,
Landaboi$
og Gla-
cier
Mafia.
Gísli Pálmi og Aron
Can í Gamla bíói
Á laugardag Suðvestan og vestan 3-8 m/s og dálítil rigning eða
skúrir, en léttir til á Suðausturlandi og Austfjörðum. Hiti 10 til 18
stig, hlýjast austanlands.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hægari austlæg eða breytileg átt. Áfram
rigning um landið austanvert. Skýjað með köflum á Suður- og
Vesturlandi, skúrir og hlýnar lítillega.
VEÐUR
Grindavík vann Keflavík,
1:0, á heimavelli í uppgjöri
Suðurnesjaliðanna í In-
kasso-deildinni í knatt-
spyrnu karla í gærkvöldi.
Grindavík hefur þar með
náð afgerandi stöðu í öðru
sæti deildarinnar á eftir KA
sem trónir á toppnum sem
fyrr eftir öruggan sigur á
Leikni frá Fáskrúðsfirði,
4:0. Alls voru skoruð 19
mörk í fimm leikjum gær-
kvöldsins. »4
Grindavík eltir KA
eftir sigur
„Það er bara að negla á þetta, alltaf.
Það er ekkert sem heitir „örygg-
iskast“ í þessu. Það væri kannski
þannig ef maður
væri alltaf að kasta
70 metra, en það er
enginn að gera
það,“ sagði Guðni
Valur Guðnason,
kringlukast-
arinn efnilegi
úr ÍR, sem ríður
á vaðið fyrstur
Íslendinga í
frjáls-
íþróttakeppni
Ólympíu-
leikanna.
Guðni Valur
stígur inn í hringinn
í dag í undankeppn-
inni. »1
Guðni Valur ætlar að
negla á þetta í Ríó
„Þú getur sett allt til hliðar, það eru
engin stig – þetta er bara dagsformið.
Aðeins dagurinn í dag skiptir máli.
Maður þarf að vera smá töffari til að
komast alla leið því slæm byrjun get-
ur dregið liðið niður,“ segir Ásgerður
Stefanía Baldursdóttir, fyrirliði
Stjörnunnar, sem veltir vöngum yfir
úrslitaleik Borgunarbikars kvenna í
knattspyrnu sem fram fer í kvöld. »4
Dagsformið ræður úr-
slitum í bikarnum
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
„Uppskeran er alveg ágæt en þetta
er ekkert metár, ætli uppskeran sé
ekki helmingi minni en á bestu ár-
unum. Í maí kom langur kuldakafli
sem seinkaði uppskerunni aðeins,“
segir Jón Guðmundsson garðyrkju-
fræðingur spurður út í ávaxtaupp-
skeru sumarsins en Jón er sérfræð-
ingur í ávaxtaræktun, einkum epla.
Ávaxtauppskeran í ár stýrist af
sumrinu á undan því þá undirbúa
trén sig fyrir næsta sumar þegar
blómvísar fæðast sem verða að blóm-
um og síðar ávöxtum að ári liðnu.
„Blómgunin í ár var töluvert minni
en í góðu ári en alveg viðunandi. Síð-
asta vor var frekar kalt og sumarið
ekki eins gott og þetta. Sumarið í ár
gæti því gefið fyrirheit um að næsta
sumar verði enn betra. Það er því von
á góðu,“ segir Jón en tekur fram að
næsta sumar verði þó að vera sólríkt
og hlýtt til að ávextirnir nái að þrosk-
ast. Hann segir sumarið í ár sé það
besta sem hefur verið síðustu þrjú til
fjögur sumur, sólríkt og hlýtt.
Epli, plómur, perur og kirsuber
Jón er með stóran garð á Akranesi
þar sem hann ræktar m.a. grænmeti
og ávexti. Eplin af trjánum verða
ekki tínd fyrr en í kringum næstu
mánaðamót. Auk epla ræktar Jón
perur, plómur og kirsuber. „Ég er
t.d. búinn að fá mér perur í morgun
úr eigin ræktun en þær eru samt ekki
stórar,“ segir Jón og tekur fram að
það sé mun erfiðara að rækta per-
ur en epli á Íslandi.
Hann telur möguleika á
ávaxtaræktun á Íslandi vera
töluverða og segir eplatré
eiga að geta dafnað vel í
öllum meðalgörðum á suð-
vesturhorninu. „Epli, ólíkt
t.d. bláberjum og plómum,
mega frjósa og þola jafnvel
fjögurra til fimm stiga frost.
Þau verða ekki verri fyrir það, bara
betri ef eitthvað er,“ segir Jón og
brosir.
„Ávaxtaræktunin er að slíta barns-
skónum og er frekar ný hér á landi.
Áhuginn á ræktun ávaxta hefur auk-
ist jafnt og þétt síðustu árin. Við er-
um mjög norðarlega og því á mörkum
hins mögulega – ef sumarið er slæmt
gerist lítið. Ef við ætlum að ná ár-
angri verður að vera sæmilegt sumar
en Ísland verður aldrei draumastaður
eplatrjáa,“ segir hann spurður út í
hvernig ávaxtaræktun á Íslandi
gangi.
Hann bendir á að ávaxtaræktun
hér hafi verið í lægð undanfarið því
síðustu þrjú til fjögur ár hafa sumrin
ekki verið nógu hlý og sólrík. Þrátt
fyrir það hafi fólk fengið einhverja
uppskeru.
Eplarækt reynir á þolinmæði
Verður eflaust
betri ávaxtaupp-
skera á næsta ári
Ljósmynd/Skessuhorn
Epli Jón Guðmundsson garðyrkjufræðingur skoðar úr ræktun sinni epli sem verða fullþroskuð í byrjun september.
„Á Íslandi, miðað við staðsetningu
og veðurfar, þarf þolinmæði í epla-
rækt. Það getur súrnað í mönnum
ef það koma köld rign-
ingasumur sem
gefa lítið. Það má
ekki gleyma því
að það getur
tekið allt upp í
10 ár að fá
uppskeru af
eplatré og fólk
má ekki missa þolinmæðina eftir
tvö til þrjú ár,“ segir Jón Guð-
mundsson, garðyrkjufræðingur og
sérlegur eplaræktandi.
Fyrir þá sem huga að eplarækt
segir Jón mjög mikilvægt að fólk
kaupi gott tré. Á Íslandi eru til
margar tegundir af yrkjum sem
eru misharðgerð. Í garði þarf epla-
tré að standa á sólríkum stað og í
þokkalegu skjóli. Eplatré geta orð-
ið um fjögurra til átta metra há.
Mikilvægt að kaupa gott tré
GETUR TEKIÐ ALLT AÐ 10 ÁR AÐ FÁ UPPSKERU