Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.08.2016, Blaðsíða 2
Ert þú mikill menningarsinni?
„Já, ég myndi segja það. Á minni lífsleið
samdi ég töluvert af ljóðum og leik-
ritum sem fengu ávallt fínar viðtökur
– bæði hjá almúganum og fólki af
æðri stigum. Einhvern veginn grun-
ar mig að þessi verk mín hafi haft
allmikil áhrif á vestræna menningu, og
að það sé jafnvel ástæðan fyrir því að
verið sé að púkka upp á mig á Menning-
arnótt 400 árum eftir að ég hvarf af sjón-
arsviðinu.“
Hvernig líst þér á að fólk ætli að
skrifa klippileikrit og -ljóð með
orðunum þínum?
„Mér líst hreint ekkert illa á það. Ég geri mér
grein fyrir því að ef höfundarréttar hefði notið
við á mínum tíma, þá hefði ég verið í vondum mál-
um. Ég fékk söguþræði allra minna leikrita, nema
tveggja, að láni hjá öðrum leikritahöfundum. Það er
því allt í góðu mín vegna að fólk noti mitt efni. Mér
skilst að fólk sé enn að endurtúlka og -skrifa verkin mín
á alla kanta og vegu og ég verð að viðurkenna að ég hef
nú lúmskt gaman af því.“
Hvað með að lög frá þínum tíma verði
leikin á píanó á bókasafninu?
„Það er mér auðvitað að meinalausu þótt ég þekki nú
ekki til þessa hljóðfæris sem slíks. Við notuðum nú helst
trompet, trommur og víólur af ýmsu tagi við uppsetningu
leikritanna minna. En þetta eru sjálfsagt gullfallegar
melódíur, svo það er um að gera að njóta þeirra.“
Treystir þú fólki til að semja sonnettur
eins og ætlunin er?
„Ja, það er ekki seinna vænna að kynna sonnettuformið
fyrir ungum og upprennandi skáldum. Fyrir mér er
þetta ástarljóðaformið og ef þau valda því ekki vel verður
mun flóknara fyrir þetta unga fólk að tjá ást sína þegar
þess mun gerast þörf í framtíðinni,“ fullyrðir William
Shakespeare að lokum og vonast til að flestir sjái sér
fært að mæta í Grófina þótt hann eigi sjálfur ekki heim-
angengt þann dag.
WILLIAM SHAKESPEARE
SITUR FYRIR SVÖRUM
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.8. 2016
Ritstjórn
Árni Matthíasson arnim@mbl.is Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Júlía Margrét
Alexandersdóttir julia@mbl.is Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Árið 2016 hefur ekki aðeins verið gott ár fyrir íslenska íþróttamenn, ís-lenskir íþróttalýsendur hafa líka farið mikinn. Skemmst er að minn-ast framgöngu Guðmundar Benediktssonar á Evrópumeist-
aramótinu í knattspyrnu í Frakklandi sem var með þeim hætti að hann var
hundeltur af heimspressunni í framhaldinu. Barst sá eltingaleikur meðal
annars hingað inn á ritstjórnarskrifstofur Morgunblaðsins. Úr því hnén synj-
uðu Guðmundi þess á sínum tíma að verða heimsfrægur knattspyrnumaður
er ánægjulegt að tungan hafi á endanum skilað honum á leiðarenda.
Um nokkurra ára skeið höfum við Íslendingar búið að öðrum íþróttalýs-
anda á heimsmælikvarða, Sigurbirni Árna Arngrímssyni, sem lýsir þessa
dagana því sem fram fer í frjálsíþróttakeppni Ólympíuleikanna í Ríó. Lýs-
ingar hans eru raunar þeirrar nátt-
úru að þær eru yfirleitt mun
skemmtilegri en íþróttagreinirnar
sjálfar; Sigurbjörn er til dæmis eini
maðurinn í heiminum sem hefur
fengið mig til að horfa á blakleik frá
upphafi til enda. Það gerðist fyrir fá-
einum árum en Sigurbjörn er jafn-
vígur á blak og frjálsar.
Ég hef að vonum reynt að fylgjast
eins mikið og ég get með Sigurbirni í
þessari lotu og hann hefur sann-
arlega ekki brugðist traustinu. Það
er alltaf jafnmikil músík í mínum
eyrum þegar Sigurbjörn segir um
keppanda sem birtist á skjánum:
„Hann varð fimmti á heimsmeistaramóti unglinga 2011.“ Eða: „Hún varð
fjórða á evrópumeistaramótinu innanhúss 2012.“ Bláókunnugt fólk sem inn-
an við hálft prósent þjóðarinnar getur mögulega kannast við. En Sigurbjörn
er með þetta allt á hreinu enda gekk hann í skóla með ýmsum keppendum.
Mögulega man hann margt af þessu en hinu flettir hann bara upp. Sig-
urbjörn Árni mætir nefnilega aldrei blaðlaus til leiks.
Enda þótt kappið sé mikið – ég hef áður fullyrt á prenti að Sigurbjörn gæti
gert tiltekt í heimahúsi æsispennandi – er aldrei langt í spéið. Þannig fór Sig-
urbjörn að rifja upp í einni lýsingunni um daginn að hann saknaði sumra
greina frá fyrri tíð. Eins og þegar keppt var í því að handsama svín sem
mætti til atsins löðrandi í olíu eða öðru sleipiefni. Sá sem fyrstur náði svíninu
hreppti gullið. Einar Örn Jónsson, meðlýsandi Sigurbjörns, færðist við þetta
allur í aukana og harmaði brottfall þessarar greinar; hún hlyti að hafa verið
skemmtileg. Þá gall í Sigurbirni: „Já, fyrir áhorfendur en ekki fyrir svínið!“
Ætli Usain Bolt
hefði verið lík-
legur til afreka í
svínaatinu?
AFP
Ekki skemmtilegt
fyrir svínið!
Pistill
Orri Páll
Ormarsson
orri@mbl.is
’ Enda þótt kappið sémikið – ég hef áðurfyllyrt á prenti að Sig-urbjörn gæti gert tiltekt í
heimahúsi æsispennandi
– er aldrei langt í spéið.
Sigrún Þuríður Runólfsdóttir
Fullklædd frá toppi til táar. Nátt-
fötum, sokkum, næstum því vett-
lingum.
SPURNING
DAGSINS
Í hverju
sefurðu?
Þórarinn Árnason
Oftast bara engu.
Morgunblaðið/Ásdís
Guðný Eygló Baldvinsdóttir
Ég sef í víðum bol og nærbuxum.
Sigurður Gústafsson og son-
urinn Gísli Berg Sigurðarson
Nærbuxum.
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Thomas COEX/AFP
Borgarbókasafnið í Grófinni mun kl.13-22 á Menn-
ingarnótt bjóða upp á ýmsa möguleika fyrir gesti
safnsins til að setja sig í spor leikrita- og ljóðskáldsins
William Shakespeare sem á 400 ára dánarafmæli í ár.
„Allt í
góðu mín
vegna“
Getty Images/Universal Images Gr