Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.08.2016, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.8. 2016
Kosið um framtíð flugvallarins
Það er mikilvægt að ná þver-pólitískri sátt um framtíðReykjavíkurflugvallar,“ segir
Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður
Framsóknarflokksins, en hann er
einn flutningsmanna þingsályktunar-
tillögu sem leggja á fram á næstu
dögum um að halda skuli þjóðar-
atkvæðagreiðslu
um framtíð Reykja-
víkurflugvallar.
„Bakvið þetta
mál er þver-
pólitískur áhugi
enda mál sem varð-
ar okkur öll þvert á
flokka og búsetu.
Þess vegna standa
að þessari ályktun þingmenn flestra
flokka og það sem fyrir okkur vakir
er að kalla eftir afstöðu þjóðarinnar
til flugvallarins. Fá endanlega og
marktæka niðurstöðu um það hvort
Reykjavíkurflugvöllur verður áfram
miðstöð innanlands- og sjúkraflugs,
líkt og hann hefur verið, eða hvort
hann eigi að fara.“
Samkvæmt núgildandi aðal-
skipulagi Reykjavíkur fer flugvöll-
urinn úr Vatnsmýrinni endanlega
árið 2024 en í sumar var þjónusta og
öryggi flugvallarins skert með lokun
neyðarbrautarinnar.
Hluti af þingkosningum
Æskilegt er að mati Þorsteins að
kosið verði um framtíð flugvallarins
samhliða alþingiskosningum en sam-
kvæmt lögum um framkvæmd
þjóðaratkvæðagreiðslna er orðið of
seint að leggja fram tillögu þess efn-
is ef miðað er við að alþingiskosn-
ingar fari fram 29. október.
„Ég er efins um að það takist að
halda þjóðaratkvæðagreiðslu um
framtíð flugvallarins og alþingis-
kosningar á sama tíma ef kjördagur
29. október stendur,“ segir Þor-
steinn en hann telur heppilegra að
kosið verði á sama tíma.
„Því fylgir ákvæðið hagræði að
kjósa á sama tíma og gengið verður
til þingkosninga en hvort sem af því
verður eða ekki er afstaða okkar
skýr til þess að þjóðin fái að segja
sína skoðun á framtíð Reykjavíkur-
flugvallar.“
Ekki háð túlkun
Kosning um framtíð Reykjavíkur-
flugvallar bindur hvorki hendur Al-
þingis né Reykjavíkurborgar þar
sem um ráðgefandi þjóðaratkvæða-
greiðslu væri að ræða. Þorsteinn
segir því mikilvægt að niðurstaðan
verði hafin yfir allan vafa.
„Þess var sérstaklega gætt að
spurningin sem lögð verður fyrir
þjóðina í atkvæðagreiðslu um flug-
völlinn sé ekki háð túlkun. Niður-
staðan verður að vera skýr.“
Spurður af hverju Alþingi taki
ekki sjálft afstöðu til staðsetningar
Reykjavíkurflugvallar segir Þor-
steinn nú þegar liggja fyrir frum-
varp Höskuldar Þórhallssonar, þing-
manns Framsóknarflokksins, um
færslu skipulagsvalds alþjóða-
flugvalla til ríkisins.
„Alþingi hefur vald til að grípa inn
í þá atburðarás sem átt hefur sér
stað vegna staðsetningar Reykja-
víkurflugvallar. Niðurstaða þjóðar-
atkvæðagreiðslu myndi hins vegar
styrkja þingið í viðleitni sinni að
beita sér í málinu eða láta það kjurt
liggja, allt eftir niðurstöðu kosning-
arinnar.“
Ögmundur Jónasson, þingmaður
Vinstri grænna, tekur í sama streng
og segir æskilegt að sameina fólk
um farsæla lausn á framtíð
Reykjavíkurflugvallar.
Mannréttindamál
„Vandinn er að finna leið til að sam-
eina fólk um lausn varðandi flugvöll-
inn en það hefur verið pólitískt
ósætti og ólík sjónarmið innan allra
flokka, sem hefur staðið því fyrir
þrifum. Þess vegna hef ég alltaf
horft til þess að þjóðaratkvæða-
greiðsla myndi höggva á þann hnút,“
segir Ögmundur en hann segir
skyldur höfuðborgarinnar vera
miklar þar sem til hennar leiti fólk af
öllu landinu í opinbera þjónustu sem
sátt hefur verið um að staðsett sé í
höfuðborginni.
„Það varðar grundvallarmann-
réttindi og jafnræði með þegnum
landsins að hér sé jafn aðgangur að
t.d. heilbrigðisþjónustu árið um
kring enda var lögð áhersla
á það í samskiptum rík-
isins og Reykjavíkur-
borgar að ekki kæmi
til lokunar hinnar svo-
kölluðu neyðarbrautar
nema búið væri að
tryggja opnun
sambærilegrar
brautar annars
staðar á suð-
vesturhorni
landsins.“
Reykjavíkurflugvöllur á
að víkja samkvæmt
aðalskipulagi
Reykjavíkur.
Morgunblaðið/Þórður
Þingmenn úr flestum flokkum ætla að leggja fram þingsályktunartillögu um að kosið verði um framtíð
Reykjavíkurflugvallar samhliða næstu þingkosningum eða um leið og mögulegt er.
„Menn verða
bara að horfast
í augu við það
að flugvöllurinn
er ekki að fara
neitt næstu
áratugina,“
segir Guð-
laugur Þór
Þórðarson,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins,
en bent hefur verið á að ekki
séu til fjármunir til uppbygg-
ingar á nýjum flugvelli.
„Meirihlutinn í borgarstjórn
er að koma flugvallarmálinu í
mikil vandræði en það er eins
og hag þeirra sé best borgið
með að hafa mikinn óróa í
kringum þetta mál. Allar yf-
irlýsingar um að flugvöllurinn
sé að fara koma í veg fyrir fjár-
festingar og uppbyggingu inn-
anlandsflugs, sem er mjög
slæmt því við þurfum að létta á
álaginu á samgöngur í land-
inu.“
Guðlaugur bendir jafnframt
á að á sama tíma og gífurleg
uppbygging sé á ferðaþjónustu
í landinu fari ekkert til upp-
byggingar á innanlandsflugi.
Flugvöllurinn fer ekkert
Guðlaugur Þór
þórðarson
Friðrik Pálsson, hótelhaldari
á Rangá og liðsmaður Hjart-
ans í Vatnsmýri, segir þjóðar-
atkvæðagreiðslu áhugaverða
hugmynd.
„Reykjavíkurborg, sem
hefur keyrt þetta mál áfram,
virðist ekki taka tillit til neins
annars en hagsmuna bygg-
ingarverktaka en ýtir öllu
öðru til hliðar, eins og góð-
um samgöngum og-
sjúkraflugi. Þjóðar-
atkvæðagreiðsla gæti
því orðið til þess að fá
endanlega niðurstöðu
um framtíð Reykja-
víkurflugvallar.“
Sjúkraflug treystir á Reykja-
víkurflugvöll árið um kring.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Áhuga-
verð hug-
mynd
Friðrik
Pálsson
„Það varðar grundvallarmannréttindi og jafnræði með þegnum
landsins að hér sé jafn aðgangur að t.d. heilbrigðisþjónustu árið
um kring“ Ögmundur Jónasson
INNLENT
VILHJÁLMUR ANDRI
KJARTANSSON
vilhjalmur@mbl.is
Þorsteinn
Sæmundsson