Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.08.2016, Side 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.08.2016, Side 12
Hetjurnar sem eftir var tekið Á Ólympíuleikunum í Ríó þetta sumar hafa nokkrir sigursælir íþróttamenn vakið meiri athygli en aðrir og í hugum margra eru þeir hálfgerðar ofurhetjur leikanna. Fortíð þessara íþróttagarpa er eins ólík og þeir eru margir – sumir hafa ofuraga í forgrunni en aðrir virðast láta mátulegt kæruleysi vinna með sér. Bróðurparturinn á þó sameiginlegt að hafa þurft að hafa fyrir lífinu, alast upp í fátækt, glíma við námsörðugleika, ADHD og jafnvel stríð. Þau eiga það líka sameiginlegt að gefast aldrei upp. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is RIO 2016 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.8. 2016 hittir vini sína og fer út að dansa þegar aðrir myndu mæta á æfingar. Fjölskylda hans og vinir í Trelawny á Jamaíka segja að hann hafi verið svona frá því hann var strákur, þessi gleði á vellinum sé sú sama og hann sýndi fimm ára. Stóra spurn- ingin að mati margra er; Ef Usain Bolt myndi haga sér eins og flestir íþróttamenn á Ólympíuleikunum; æfa meira og slaka minna á – væri hann þá ekki að gera enn ótrúlegri hluti? Eða færi honum jafnvel að ganga verr ef hann setti inn strang- an aga og minna gaman? Spretthlauparinn jamaíski Usain Bolt er kallaður „fljótasti maður í heimi“. Á þrennum Ólympíu- leikum í röð hefur hann unnið 100 og 200 metra hlaup. Ef hann sigrar 4x100 metra boðhlaup um helgina hefur hann náð níu gullverðlaunum í frjálsum íþróttum en aðeins tveir aðrir íþróttamenn hafa náð því. Bolt er glaðlegur og glettinn og tekur dansspor eftir sigra. Hann hefur alla tíð nálgast íþróttina á mjög afslappaðan hátt; er talinn leyfa sér meira en margir íþrótta- menn í hans stöðu þar sem hann USAIN BOLT Usain Bolt er 29 ára gamall Jamaíkabúi, en fjölskylda hans rekur litla mat- vöruverslun í Trelawny. Fleiri heimsfrægir hlauparar hafa komið frá Trelawny. AFP Vinnur glettnin með? eftir sér og nú í vor fékk hann aftur erf- iðan vírus sem gerði það að verkum að hann gat ekki tekið þátt í Evrópumeist- aramótinu og margir voru efins um að hann gæti tekið þátt í Ólympíuleikunum. Þjálfari hans segist sjaldan hafa séð slíka þrjósku hjá íþróttamanni, þar sem Whit- lock æfði stundum með hita og tilheyr- andi slappleika. Fimleikamaðurinn Max Whitlock skilaði Bretum fyrstu medalíunni á Ólympíu- leikum í greininni í 108 ár, en alls vann hann til tvennra gullverðlauna og einna bronsverðlauna í Ríó. Ofurhetjan í Whitlock er ekki síst athyglisverð fyrir þær sakir að hann hefur þurft að berjast við erfið veikindi. Árið 2015 fékk hann einkirningssótt sem dró mikinn dilk á MAX WHITLOCK Max Whitlock, sem er 23 ára gamall, sagðist í viðtali vera feginn að einkirn- ingssóttin hafi ekki rústað ferlinum eins og dæmi eru um í íþróttaheiminum. AFP Með hita á æfingum „Við vitum öll að hún er frábær sundkona en hún er enn betri manneskja,“ lét einn þjálfari bandarísku sundkonunnar Katie Ledecky hafa eftir sér, en Ledecky vann til fjögurra gull- verðlauna á Ólympíuleikunum og setti nýtt heimsmet í 800 metra skriðsundi. Þótt Ledecky sé af afar ríkri og vel stæðri fjölskyldu, eigi með- al annars föðurbróður sem er þekktur millj- ónamæringur í New York, er fortíð föðurfjöl- skyldu hennar þyrnum stráð. Föðurafi hennar flúði til Bandaríkjanna frá Tékkóslóvakíu undan kommúnismanum 1947 og ættingjar hennar létu lífið í helförinni. Sigrar Ledecky eru sagðir einstakir því hún er hvorki sögð búa yfir sérstakri sundtækni sem spyrni henni framar né njóti hún neinna sér- stakra líkamlegra yfirburða og sé raunar fremur lágvaxin og með of litlar hendur til að vera svo góður sundmaður. Engum detti í hug að hún sé einn besti íþróttamaður í heimi út frá því hvern- ig hún líti út. Þetta sé hugarástand hennar; hún syndi eins og hún sé að vinna sér inn fyrir fæði og húsnæði. Það komi hins vegar heldur ekki heim og saman við persónuleika hennar því hún hugsi fremur um aðra fyrst; hlýleg og gefandi. KATIE LEDECKY Hin 19 ára gamla Katie Ledecky starfar með ýmsum góðgerðar- samtökum, meðal annars Bikes for the World og Wounded Warriors. AFP Betri manneskja en sundkona SIMONE BILES Simone Biles, sem er 142 cm á hæð, er fyrsta konan í 20 ár til að vera bæði ól- ympíu- og heimsmeistari í fimleikum. Aðspurð af hverju enginn hafi afrekað það í 20 ár svaraði hún: „Ég fæddist ekki fyrr svo ég gat ekkert gert í því.“ AFP Mannslíkaminn á ekki að geta gert þetta Í Íslendingasögunum er sagt frá köppum sem stukku hæð sína. Hin 19 ára gamla Simone Biles stekkur hins vegar tvisvar sinnum hæð sína og það er það sem hefur gert áhorf- endur og sérfræðinga um fimleika orðlausa. Enginn vissi að þetta væri hægt. Því þótt hún hafi fengið fern gull- verðlaun og brons eru það gólfæfing- arnar þar sem hún getur nýtt þessa gífurlegu hæð í stökkunum til að gera hinar ótrúlegustu æfingar sem kallast nú einfaldlega „The Biles“. Simone Biles og systir hennar voru ættleiddar af móðurafa sínum og -ömmu þar sem foreldrarnir voru fíklar. Móðir Biles hefur sagt í við- tölum í vikunni að hún hafi verið edrú í 9 ár og heyri í dóttur sinni á nokkurra mánaða fresti. Biles er ein þeirra fáu sem hlusta ekki á tónlist á undan æfingum heldur kjaftar við vini sína og slær á létta strengi.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.