Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.08.2016, Síða 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.08.2016, Síða 14
Michelle Carter vann til gullverðlauna í kúluvarpi í Ríó og gerði sig og föður sinn um leið að fyrstu feðginunum til að vinna til verðlauna á Ólympíuleikum í einstaklings- grein en hann vann til silfurverðlauna á leikunum 1984 og er þjálfarinn hennar í dag. Michelle Carter hefur bæði þurft að glíma við lesblindu og ADHD og segir glímuna við það hafa kennt sér að með vilja og vinnu sé allt hægt. Carter er lærður förðunarmeistari og það vakti athygli að ólíkt flest- um keppendum var hún mikið máluð og með gerviaugnhár þegar hún keppti. Hún segir að það að líða vel með sjálf- an sig skipti máli þegar maður keppir og hún hafi því ákveðið að vera eins og hún er vön. Hún hefur líka verið talskona líkamsvirð- ingar og sagt að Ól- ympíuleikarnir þurfi að sýna konum að það sé ekki til ein tegund af heil- brigðum líkama – sjálf sé hún 117 kíló en heilbrigð og flott. Suður-Afríkumaðurinn Wayde van Niekerk vann ekki aðeins til gullverðlauna í 400 metra hlaupi í Ríó heldur sló hann um leið 17 ára gamalt heimsmet Mich- aels Johnson. Í áhorfendaskaranum fagnaði ein eldri kona áber- andi mikið; 74 ára gamall þjálfari hans, Ans Botha, og telja margir að hún eigi afar stóran þátt í sigri Niekerk sem átti í nokkrum erf- iðleikum árin áður en hún tók við þjálfun hans 2012 þar sem hann var meðal annars alltaf að meiðast. Niekerk segir Botha hafa gert sig agaðan og einbeittan með því að vera afar strangur þjálfari. Móðir Wayde van Niekerk var sjálf mikil hlaupakona og það sem hindraði hana í að komast á Ól- ympíuleika var aðskilnaðarstefna yfirvalda í Suður-Afríku. WAYDE VAN NIEKERK Hinn 23 ára gamli Wayde van Niekerk er afar trúaður viðskiptafræðinemi og á Twitter skrifaði hann: „Jesús gerði þetta“ eftir að hann sló heimsmet Michaels Johnson. AFP Þakkar þjálfaranum Ans Botha fylgist með Wayde van Niekerk reima á sig hlaupaskóna en Niekerk segir Botha aldrei láta sig komast upp með neina vitleysu og hann eigi henni mikið að þakka. RIO 2016 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.8. 2016 Bretinn Mohamed Farah hlaut þriðja ólymp- íugull sitt á ferlinum þegar hann vann 10 km hlaupið og það þrátt fyrir að hafa dottið í hlaupinu og þurft að vinna upp tíma. Hann er kominn í úrslit í 5.000 km hlaupi sem fer fram í dag, sunnudag, en í undanúrslitum þess hlaups hrasaði hann aftur en komst samt áfram. Farah er ekki maður sem gefst upp og þekkir vel að þurfa að hafa fyrir lífinu. Hann fæddist í Sómalíu en ólst einnig upp í Djibútí. Faðir hans var breskur ríkisborgari sem hafði verið á ferðalagi í Austur-Afríku, hitt móður Farah og úr því stutta ævintýri varð Farah til. Þegar Farah fluttist til Bretlands til föður síns, átta ára gamall, hafði hann hlaupið en í þeim tilgangi að forðast átök og borgarastríð í heimalandi sínu. Hann talaði enga ensku þegar hann kom til Bretlands og lenti meira að segja einu sinni í slagsmálum vegna mis- skilnings þegar hann reyndi að gera sig skilj- anlegan. Hann gerði leikfimikennara sína fljótt gapandi sem sáu hvílíkur hæfi- leikamaður var þarna á ferð. Mohamed Fa- rah hefur verið útnefndur besti íþróttamað- ur sem Bretar hafa átt fyrr og síðar. Hann er mikill mannvinur og stofnaði góðgerðarsjóð undir eigin nafni fyrir nokkrum árum. MOHAMED FARAH Mo Farah eins og hann er kallaður kemur í mark í Ríó og gerir hjarta með höndunum, sem er einkennandi fyrir hann. Hann er 33 ára gamall. AFP Hljóp undan átökum Hinn 31 árs gamli bandaríski sund- kappi Michael Phelps hefur unnið til flestra verðlauna á Ólympíuleikunum hingað til og hreppt fimm gull og eitt silfur. Phelps var vatnshræddur sem barn og til að vinna bug á hræðslunni lét mamma hans hann aðeins synda bak- sund til að byrja með. Og þar, á bak- inu, komu hæfileikar hans strax í ljós. Það var þó strax ljóst að hann yrði í meiri vandræðum með sjálfan sig í skólastofunni og níu ára gamall var hann greindur með ADHD en hann átti erfitt með einbeitingu og sam- skipti við önnur börn. Móðir hans, sem fékk gjarnan að heyra að Michael gæti ekki þetta og hitt, vildi sanna fyr- ir umheiminum að sonur hennar gæti allt sem hann vildi og hélt vel utan um hann. Sjálf var hún kennari og þegar hann vildi ekki lesa rétti hún honum íþróttasíðurnar úr dagblöðunum. Í sundlauginni átti hann líka í erf- iðleikum með hegðun sína og ef hann kom seint í mark þrykkti hann sund- gleraugunum sínum lengst út í laug- ina. Móðir hans sagði honum að hér eftir myndi hún gefa honum merki frá bakkanum ef hann væri að sýna af sér óíþróttamannslega hegðun. Hún myndaði bókstafinn C á bakkanum með höndum sínum – „compose yo- urself“ – eða náðu stjórn á þér. Líkami Phelps er sagður kjörinn fyrir góðan sundhraða; hans langi búkur og hend- ur en fremur stuttu fætur hjálpi til við að auka hraðann. Í þessum agaða íþróttamanni eru miklar þversagnir. Phelps hefur tvisvar verið tekinn fyrir að aka undir áhrifum áfengis og verið settur í sex mánaða keppnisbann vegna þess. Árið 2009 var hann mynd- aður þar sem hann reykti maríjúana. MICHAEL PHELPS Michael Phelps er talinn besti sund- maður sem heim- urinn hefur alið af sér. Hann æfir alla daga, líka á jólunum, en hefur einnig átt í erfiðleikum með sjálfan sig og sýnt af sér óábyrga hegðun. AFP Þurfti að ná stjórn á sér MICHELLE CARTER Michelle Carter er 30 ára gömul og gengur undir nafninu „skot-dívan“. AFP ADHD kenndi að allt er hægt

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.