Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.08.2016, Síða 15
Hin tvítuga Simone
Manuel segist hrærð yfir
því að bandarísk börn af
afrískum uppruna líti á
hana sem rokkstjörnu.
Sigur hennar er talinn
stór fyrir blökkumenn í
Bandaríkjunum.
eftir 21. öldinni var svörtum mein-
aður aðgangur að sundlaugum í
Bandaríkjunum og því kunnu
heilar kynslóðir ekki að synda.
Þetta er því risamál í Bandaríkj-
unum, þar sem sund hefur verið
íþrótt hvíta forréttindahóps-
ins, og er vonast er til
þess að svört börn
um öll Bandarík-
in þyrpist í
sundlaugarnar.
Sjálf segist
Manuel taka
því af auðmýkt
að geta haft svo
mikil áhrif.
Afrek Simone Manuel, fyrstu
bandarísku blökkukonunnar til að
vinna gull í sundi á Ólympíu-
leikunum, er talið munu hafa slík
áhrif að fáir verðlaunahafar hafi
fyrr eða síðar afrekað slíkt. Fleiri
blökkumenn í Bandaríkjunum
muni læra að synda. Árlega
drukkna 3.500 Bandaríkja-
menn og stærstur hluti
þeirra er blökkumenn.
Könnun frá 2010 sýndi
að börn af afrískum
uppruna kunnu
mörg illa eða ekki
að synda. Ástæðan
er sögð meðal ann-
ars sú að lengi fram
SIMONE MANUEL
Mikilvægasta afrekið
AFP
21.8. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15
Hver mun nokkru sinni geta gleymt
Shaunae Miller? Enginn hefur nokkru
sinni séð hlaupara fara þessa leið að
gullinu á Ólympíuleikunum en Miller
dýfði sér bókstaflega í mark og lét sig
falla fram yfir endalínuna. Fullkomlega
löglegt en svo óvenjulegt að enginn sig-
ur á Ólympíuleikum hefur vakið upp
jafnmikil skrif, fréttaflutning og bolla-
leggingar sérfræðinga.
Miller tryggði sér þar með gull-
verðlaun í Ríó en eitt aðalsmerki
hlaupakonunnar er það að láta aldrei
hugfallast. Til að mynda meiddist hún
illa á hásin í undanúrslitum á Ólympíu-
leikunum í London 2012 og lét þá hafa
eftir sér að þau meiðsli væru bara smá-
vegis bakslag fyrir ótrúlega endurkomu
og stóð þar við stóru orðin.
Móðir hennar er hennar helsta
klappstýra og Miller segist varla muna
eftir þessum lokametrum og ekki hafa
áttað sig á sigrinum fyrr en hún lá í
jörðinni og heyrði móður sína öskra,
þá vissi hún að hún hefði unnið.
SHAUNAE MILLER
Shaunae Miller er 22 ára og líkt og sigurinn í 400 metra hlaupinu sýndi er hún
þekkt fyrir að vera úrræðagóður persónuleiki sem lætur aldrei hugfallast.
AFP
Gefst
aldrei upp
Járnfrúin Katinka Hosszú fékk þetta viðurnefni fyrst í kín-
versku dagblaði eftir að hún keppti í átta greinum á heims-
meistaramótinu í sundi og vann medalíur í fimm þeirra.
Hosszú, sem er ungversk, hefur keppt á öllum Ólympíu-
leikum frá 15 ára aldri en hún er 27 ára í dag og virðist ekkert
lát vera á ótrúlegum sigrum hennar.
Hún er af sundfólki komin og var afi hennar líka mikill sund-
kappi en sjálf er hún einnig lærður sálfræðingur og þykir afar
öguð í sundlauginni og utan hennar. Á leikunum í ár vakti það
mikla gremju þegar bandarískur fréttaþulur sagði að eig-
inmanni hennar, sem þjálfar hana, mætti þakka afrek hennar
en hún bað hann um að þjálfa sig eftir Ólympíuleikana 2012.
Hún er ekki óvön því að fjölskyldumeðlimir þjálfi hana en afi
hennar þjálfaði hana til 13 ára aldurs.
KATINKA HOSSZÚ
Sundkonan Katinka Hosszú er 27 ára gömul og hefur rakað saman verðlaunum frá unga aldri.
AFP
Ofuröguð járnfrú
YUSRA MARDINI
Sundkonan Yusra Mardini keppti í
sérstöku liði flóttamanna á Ól-
ympíuleikunum en hún er tvítug
og vann hetjudáð á Miðjarðarhafi
síðasta sumar á flótta sínum.
AFP
Þótt sýrlenska sundkon-
an Yusra Mardini hafi
ekki komist á verð-
launapall á Ólympíu-
leikunum kemst hún
auðveldlega í félag ofur-
hetja. Mardini bjargaði
20 manns sem voru á
flótta frá Damaskus, um
borð í bát sem varð vél-
arvana á Miðjarðarhafi.
Í þrjár klukkustundir
synti Mardini með bát-
inn í eftirdragi og náði
landi á Lesbos, þaðan
sem hún hélt svo til
Þýskalands.
Ofurhetjan sem náði í land en ekki á pall
Elaine Thompson gerði það sem aðeins ein kona hefur gert síðustu 30 árin;
vann bæði 100 metra og 200 metra hlaup á Ólympíuleikunum. Ótrúlegt en
satt, þá var Elaine Thompson ekki afburðamanneskja í spretthlaupi á sínum
yngri árum og fór ekki að setja met fyrr en hún fékk skólastyrk til að fara í
háskóla þar sem hún breyttist úr meðalhlaupara í afburðamanneskju og í
dag er hún fjórða fljótasta kona heims sem hefur nokkru sinni hlaupið á Ól-
ympíuleikunum.
Thompson ólst upp við mikla fátækt á Jamaíka, og urðu foreldrar hennar
að gefa uppeldi hennar frá sér til móðurömmunnar. Amman hefur sagt í
viðtölum að hún hafi lagt mikið upp úr því að geta alltaf gefið hlaupakonunni
góðan kvöldmat og þrátt fyrir eigin fátækt hafi það gengið eftir en stundum
hafi hún þurft að fá lánaðan pening til þess.
Elaine Thompson er mjög náin móður sinni og hefur látið hafa eftir sér
að hún ætli að reyna að hjálpa fjölskyldu sinni fjárhagslega nú þegar hún fer
að fá pening fyrir hlaup sín.
ELAINE THOMPSON
Elaine Thompson ólst upp í
mikilli fátækt á Jamaíka og hef-
ur sagt að þegar hlaupin fara
að skila tekjum ætli hún að að-
stoða fólkið sitt fjárhagslega.
AFP
Áttu ekki fyrir kvöldmat