Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.08.2016, Síða 16

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.08.2016, Síða 16
TÆKNI 16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.8. 2016 E ftir amstur dagsins getur verið notalegt að setjast niður, helst á rólegum og fallegum stað, láta streitu og stress líða úr sér á sama tíma og hinar andlegu rafhlöður fá örlitla hleðslu. Hvert við förum er einstaklingsbundið. Meðan sumir kjósa friðhelgi heimilisins vilja aðrir ganga meðfram strand- lengjunni og enn aðrir sækja lengra út í náttúruna, t.d. upp á fjöll. Hvað ef við gætum gert allt þetta og svo miklu meira án þess að fara nokkurn tíma út úr húsi? Væri ekki notalegt að geta sest niður á fallegri Miðjarðarhafs- strönd, hugleiða á toppi Everest eða upplifa sig innan um fiska og gróður kóralrifja? „Þú getur gert allt þetta og í raun miklu meira með sýndarveruleika,“ segir Diðrik Steinsson, einn af stofn- endum sýndarveruleikafyrirtækis- ins Breakroom. „Tæknin er orðin það góð að þú upplifir þig á þeim stað sem sýndarveruleikinn skapar, þó svo að þú sért raunverulega bara uppi í sófa heima.“ Úr tölvuleikjum í praktískar lausnir fyrir vinnustaði Tölvuleikjageirinn tók fram úr kvik- myndagerð fyrir nokkrum árum í veltu enda gífurlegir fjármunir sett- ir í nýjustu tölvuleiki og markaður- inn er stór. Það hefur því verið fyrir tilstilli tölvuleikja sem þróun skjá- korta og hvers konar íhluta í tölvur er jafn hröð og raun ber vitni. Stökk í þróun sýndarveruleika kom því engum á óvart þegar tölvuleikja- framleiðendur sáu tækifæri í tækninni. Diðrik segir notagildi sýndarveru- leikans þó miklu meira en bara í tölvuleikjum. „Af hverju ekki að nýta sýndar- veruleikann á vinnumarkaði? Mögu- leikarnir eru svo margir. Sjáðu fyrir þér stóran vinnustað þar sem símar hringja, fólk talar saman og bara al- menn truflun sem fylgir því að vera á fjöl- menn- um vinnustað. Hvað ef þú gætir sett á þig góð heyrnartól sem útiloka utanaðkomandi hljóð og síðan horfið inn í sýndar- veruleika þar sem þú hefur aðgang að öllum þínum gögnum og forritum sem þú notar við þína vinnu? Allt í einu ertu kominn í um- hverfi sem þér líður vel í, líkur eru á að þú afkastir meiru og umhverfið örvar jafnvel sköpunargáfu þína. Þetta er það sem við í Breakroom erum að vinna að og þróa.“ Stutt í byltinguna Diðrik telur aðeins þrjú til fimm ár í að sýndarveruleiki verði kominn inn í almennan fyrirtækjarekstur og þá ekki bara hjá stórum fyrirtækjum á borð við Google, Facebook og Apple heldur hjá öllum sem vilja bæta vinnuumhverfi starfsmanna sinna og þeim sem vilja nýta tæknina til að stytta samskiptaleiðir og verkferla. „Þú gætir verið að skrifa þessa grein á ströndinni en síðan tekið af þér sýndarveruleikagleraugun, stað- ið upp og fengið þér kaffibolla með vinnufélögunum. Þá spyr maður sig hvort fyrirtæki gætu ekki sparað gólfpláss því hver þarf stór skrifborð ef það eina sem þú þarft er góður stóll, þráðlaust lyklaborð og sýndar- veruleikagleraugu?“ Jafnframt bendir Diðrik á að nýta má tæknina við hvers konar hönnun og ekki sé langt í að smávörumark- aðurinn taki hana upp á sína arma. „Bílahönnuður gæti t.d. sent breytingar til verkfræðings sem sér þær þá í raunstærð í sýndarveru- leika og getur unnið að þeim þar líka. Við sjáum nú þegar að farið er að nota tæknina við skurðlækningar í Bandaríkjunum og það er bara tímaspursmál hvenær smávöru- markaðurinn tekur sýndarveruleik- ann upp á sína arma.“ Hversu raunverulegur er sýndarveruleikinn? Meðan á viðtalinu stóð buðu strák- arnir í Breakroom mér að prófa sýndarveruleikagleraugun því það er eitt að lýsa fyrir fólki upplifuninni en allt annað að setja á sig tæknina og stíga sjálfur inn í nýjan heim. Í stuttu máli er upplifunin ólýsan- leg en ég skal gera mitt besta til að skýra fyrir lesendum hvernig það er að upplifa sýndarveruleika. Ég bjóst satt að segja ekki við miklu. Kannski vegna þess að liðin eru þó nokkur ár síðan ég sat sjálfur og spilaði tölvu- leiki og áttaði mig því ekki á því hversu langt tæknin er komin. Í einu vetfangi var ég kominn neðansjávar á þilfar gamallar freigátu og fiskar allt í kringum mig. Hversu raunveruleg var upplifunin? Hún var svo raunveruleg að þegar stór hvalur synti alveg upp að mér tók ég tvö skref aftur á bak. Næst var mér varpað á pall á geimstöð einhvers staðar í vetrarbraut langt langt í burtu og mér fannst ég vera kominn á aðra veröld. Diðrik segir mikilvægt að hafa í huga að tækið sem ég fékk að prófa er tengt við tölvu og fer því öll vinnsla fram á nokkuð öflugu skjá- korti ólíkt þeim tækjum þar sem snjallsímar keyra alla upplausn og grafíkvinnslu. Umhverfið hefur áhrif á þig Breakroom hefur unnið að þróun sinni heima með hjálp Páls Jakobs Líndal, doktors í umhverfissálfæði, en það er mikilvægt að sögn Páls að rétt sé staðið að sköpun umhverfis í sýndarheimi. „Sálfræðilegar rannsóknir hafa sýnt í áratugi að umhverfið hefur áhrif á andlegt og líkamlegt ástand fólks og hugræna hæfni þess, t.d. hversu vel gengur að finna lausn á þeim viðfangsefnum sem við blasa. Flestir ættu að kannast við hversu neikvæð áhrif það hefur á einbeit- ingu, skap og afköst ef unnið er að því að leysa tiltekið verkefni á sama tíma og borað er í vegg í næsta herbergi. Við höfum minna úthald, erum lík- legri til að verða pirruð, blóðþrýst- ingur hækkar og afköstin verða miklu minni en ef þögn ríkti,“ segir Páll. „Það kemur til af því að geta okkar og hæfni til að takast á við umhverfið á hverjum tíma er takmörkuð og eftir því sem umhverfið er kröfu- harðara, því hraðar gengur á birgðirnar, eða m.ö.o. því hraðar förum við að finna fyr- ir þörf fyrir sálfræðilega endurheimt, sem er það ferli þegar við endurnýjum and- lega, líkamlega og fé- lagslega hæfni og getu okkar til að takast á við kröf- ur hversdagsins. Þessi þörf er sumsé ástæða þess að við tökum ákvörðun um að hvíla okkur á verkefninu í lengri eða styttri tíma. Rannsóknir í umhverfissálfræði hafa sýnt að það umhverfi sem við veljum okkur meðan á hvíldinni stendur hefur mikil áhrif á ferli sál- fræðilegrar endurheimtar. Þannig er sumt umhverfi endurheimtandi en annað ekki. Náttúran er dæmi um mjög endurheimtandi umhverfi, þannig að starfsfólk Morgun- blaðsins er t.d. líklegra til að upplifa sálfræðilega end- urheimt ef það tekur einn hring kringum Rauðavatn en ef það gengur í vegkantinum á Vesturlandsveg- inum.“ Rannsaka borgarskipulag með sýndarveruleika Páll segir sýndarveruleika mjög áhugaverða nálg- un bæði til að skapa þægilegt umhverfi og líka til að rannsaka umhverfi og skipulag. „Í Háskólan- um í Reykjavík hef ég ásamt öðr- um sérfræðing- um á sviði tölvunarfræði og sál- fræði unnið að verkefni sem nefnist „Cities That Sustain Us“. Verkefnið er nokkurs konar fram- hald af doktorsverkefni mínu en það snýst um að nýta sýndarveru- leikann sem verkfæri í rann- sóknum á hvers konar borgar- umhverfi er líklegast til að styðja við ferli sálfræðilegrar endur- heimtar. Með þessum hætti er hægt að hanna umhverfi og prófa áhrif þess á fólk áður en nagli er rekinn í spýtu.“ Páll telur að sýndarveruleikinn muni bjóða upp á margt spennandi á komandi árum og vísar m.a. til rannsóknar sem gerð var á átt- unda áratug síðustu aldar þar sem sýnt var fram á að sjúklingar náðu fyrr bata í fallegu og rólegu um- hverfi. „Sýndarveruleikinn á eftir að opna margar dyr fyrir okkur ef við notum hann rétt. Rannsóknir sýna að sýndarumhverfi hefur áhrif á ferli sálfræðilegrar endurheimtar og þannig getur slíkt umhverfi aukið andlega og líkamlega vellíðan og af- köst.“ Skapa nýja heima í sýndarveruleika Í sýndarveruleika er hægt að hverfa inn í nýjan heim eða hreinlega hvaða umhverfi sem er. Þannig geta notendur legið á sólríkri strönd í skammdeginu á veturna án þess að fara nokkurn tíma út úr húsi. Vilhjálmur Andri Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Strákarnir á bak- við fyrirtækið Breakroom. Sýndarveruleikatæknin verður orðin almenn innan fárra ára. Páll Jakob Líndal

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.