Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.08.2016, Side 19
leitað að upplýsingum um þá staði sem eru mun
fleiri en hann óraði fyrir. „Ég byrjaði að halda
þessum upplýsingum til haga á tíunda áratugn-
um út frá bókum, blöðum og tímaritum sem ég
á sjálfur í mínum fórum. Mér hefur alltaf þótt
forvitnilegt að kíkja á prentstaði í bókum, ekki
síst þeim bókum sem komu út fyrir aldamótin
1900. Þetta áhugamál datt upp fyrir hjá mér um
tíma eftir að ég kom hingað austur en núna
seinustu árin hef ég byrjað á þessu aftur af
meiri þunga en áður,“ segir Svanur.
Það endaði með útgáfu bókar, „Prent-
smiðjueintök – prentsmiðjusaga Íslands“, sem
kom fyrst út 2014 og aftur endurbætt í fyrra.
Ekki er ólíklegt að þriðja útgáfa komi út innan
tíðar en sitthvað hefur bæst við af upplýsingum
undanfarna mánuði. Auk íslenskra prentsmiðja
hefur Svanur rannsakað sérstaklega danskar
prentsmiðjur sem prentuðu bækur á íslensku
frá 1850 og fram yfir aldamótin 1900.
Sitthvað hefur komið upp úr krafsinu og
Svanur sýnir mér til dæmis nokkur tölublöð af
menningarritinu Suðurlandi sem prentað var á
Eyrarbakka snemma á síðustu öld. „Þessi út-
gáfa markaði tímamót en Suðurland var stofnað
til að auka veg menningarinnar hér um slóðir,“
segir Svanur en ritstjóri og ábyrgðarmaður var
Oddur Oddsson gullsmiður. „Ég heimsótti í vor
fólkið sem býr í húsinu, þar sem prentsmiðjan
var. Þau eru að gera húsið upp og hafa fundið
eintök af Suðurlandi milli þilja. Þetta er stór-
merkilegt mál og ég á eftir að rannsaka það bet-
ur ef mér endist aldur til,“ segir Svanur.
Fengið ómetanlega hjálp
Þessi prentsmiðja mun hafa farið víða. Hóf
starfsemi sína í Reykjavík sem Aldar-
prentsmiðja Jóns Ólafssonar 1897 en var síðar á
Eyrarbakka, Selfossi og bænum Haga í Flóa en
endaði í Vestmannaeyjum.
Stöðugt bætist við skráninguna. 130 prent-
staða er getið í seinni útgáfu bókarinnar en
Svanur getur best trúað því að alla vega hundr-
að staðir hafi bæst við síðan og fjöldinn gæti
jafnvel slagað í 300 þegar allt er talið. „Ég hef
fengið ómetanlega hjálp við skráninguna frá
Þorsteini Jakobssyni, prentara í Reykjavík,
Rúnari Sigurði Birgissyni, fornbókasala í Kola-
portinu, og Ragnari Guðmundssyni bókasafn-
ara og kann ég þeim bestu þakkir fyrir.“
Athygli vekur að nýjasta tækni er í liði með
Svani. Hann býr að forláta tölvu á skrifstofu
sinni og dvelst þar löngum stundum. Hann sýn-
ir mér eitt og annað í tölvunni og eftir nokkra
stund sprettur fíll skyndilega fram og valhopp-
ar yfir skjáinn. Svanur hlær að þessu og segir
að þetta sé vinsamleg áminning til sín um að
standa upp frá tölvunni og hreyfa sig. „Sonur
minn fann þetta forrit og fannst upplagt að
setja það upp hérna hjá mér. Maður á það til að
gleyma sér.“
Hann brosir.
Músarmotta Svans vekur líka athygli en
hana prýðir enginn annar en erkispæjarinn
Sherlock Holmes eða Skerjaláki úr Hólmi.
Hefur fylgt tölvuþróuninni
Svanur tók tæknina í sína þjónustu meðan
hann vann hjá FBM. „Það var erfitt að fá menn
til að fylgja tækninni og fyrsta tölvan var hálf-
partinn neydd upp á formann félagsins á þeim
tíma,“ rifjar hann upp sposkur. „Ég vann mikið
á tölvu meðan ég var hjá félaginu og keypti
mér snemma tölvu sjálfur. Ætli megi ekki
segja að ég hafi fylgt þróuninni síðan,“ segir
Svanur sem er virkur bloggari, er á Facebook
og hvaðeina. Hann stofnaði meira að segja og
heldur utan um hóp prentara og annarra
áhugamanna um prentlist á Facebook. Alls um
270 manns.
Svanur hlær þegar ég upplýsi að ég hafi
heyrt að hann stundi einnig blaðburð á morgn-
ana. „Það get ég nú varla sagt,“ segir hann.
„Fréttablaðið er ekki borið heim, heldur skilið
eftir í kassa hér í grenndinni og við skiptumst
nokkur á því að dreifa því hér í götunni. Viku í
senn. Það er hressandi að vakna snemma og
gott fyrir heilsuna að fara út og hreyfa sig. En
blaðbera get ég þó ekki kallað mig með góðri
samvisku.“
Það kemur svo sem ekki að sök. Næga getur
hann víst borið titlana.
Prentsmiðir á Morgunblaðinu að störfum við svokallaða setjaravél á síðustu öld.
Svanur Jóhannesson
bókbindari með tölu-
blað af Suðurlandi frá
árinu 1911. Blaðið var
prentað á Eyrarbakka.
Morgunblaðið/Þórður
21.8. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19