Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.08.2016, Síða 26

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.08.2016, Síða 26
Bláberjaostakaka Fyrir 10-12 200 g gróft hafrakex eða speltkex (úr heilsubúð) 50 g múslí (án viðbætts sykurs) 2,5 msk. kókosolía 5 msk. hreinn appelsínusafi (eða meira eftir þörfum) 500 g Philadelphia Light (rjómaostur en ekki smurostur) 250 g hreint skyr 3 stór egg 3 msk. hlynsíróp eða agavesíróp 2 tsk. vanilludropar (úr heilsubúð) 100 g fersk (ekki frosin) bláber eða 3 msk. blá- berjasulta, án viðbætts sykurs 200 g grísk jógúrt með 0% fitu 200 ml bláberjasulta án viðbætts sykurs Botn: Setjið kexið og múslíið í matvinnsluvél og mal- ið alveg þangað til það er orðið að dufti og setjið í skál. Dreypið kókosolíunni og appelsínusafanum yfir með teskeið og hrærið vel þar til rakt (ekki blautt). Bætið meiri appelsínusafa við ef þið teljið þurfa. Klæðið 26 cm bökunarform (með lausum botni) með bökunarpappír (þannig að hann fari upp á brún). Setj- ið mulninginn í botninn og þrýstið vel niður. Bakið við 150°C í 20 mínútur. Fylling: Setjið í hrærivélarskál Philadelphia Light- ostinn, skyrið, eggið, agavesírópið og vanilludropana. Hrærið í 10 sekúndur eða þangað til fyllingin er silki- mjúk. Bætið bláberjunum varlega saman við og hrærið þangað til berin hafa dreifst vel en ekki þannig að kak- an verði fjólublá. Ef þið notið 3 msk. af sultu, hrærið þá aðeins með gaffli og gætið þess sérstaklega að hræra ekki of mikið. Takið botninn úr ofninum, kælið í um 10 mínútur og hellið fyllingunni svo út í. Bakið við 150°C í ca. 40-45 mínútur. Potið varlega í miðju kökunnar og ef hún er hlaupkennd, bakið hana þá í 10 mínútur í viðbót. Kakan stífnar svo þegar hún kólnar. Ef hún dökknar má breiða álpappír yfir. Slökkvið á ofninum og leyfið ostakökunni að kólna al- veg inni í honum (gjarnan yfir nótt). Þegar ostakakan er orðin köld, smyrjið þá jógúrt- inni yfir og leyfið kökunni að standa í ísskáp eins lengi og þið getið, allt að 2 tíma ef það er mögulegt, helst lengur. Því næst skal setja afganginn af bláberjasultunni of- an á. Smyrjið varlega svo að jógúrt og sulta blandist ekki saman. (Ástæðan fyrir því að gott er að láta jóg- úrtina stífna ofan á kökunni í dálítinn tíma). Frá cafesigrun.com. 200 g fínmalað spelt 100 g kalt smjör 50 g flórsykur 1 ½ tsk. lyftiduft 3 eggjarauður 1 tsk. vanilluextract ca. 500 g frosin bláber MARENGS 3 eggjahvítur 120 g ljós púðursykur Hitið ofn í 150 gráður með blæstri. Setjið allt innihaldið í bökubotninn (allt nema bláberin) í hrærivélarskál og hnoðið saman þar til deigið líkist blautum sandi. Ef ykkur finnst deigið of þurrt getið þið bætt við ca. 1 tsk. af vatni og hrært aðeins áfram. Hellið deiginu í bökuform og þrýstið því í formið. Hellið frosnum berj- unum yfir botninn. Þeytið eggjahvít- urnar og syk- urinn saman þar til vel stíft (3-5 mín- útur) og dreifið því svo jafnt yfir berin. Bakið í um það bil 35-45 mínútur eða þar til berin eru farin að krauma í hlið- unum og marengsinn orðinn fallega gullinn. Berið bökuna fram volga. Frá eldhusperlur.com (breytt uppskrift frá Leiðbeiningastöð heimilanna). Bláberjabaka með marengs Getty Images/iStockphoto Bláber í öll mál! Nú þegar berjatíðin er hafin er tilvalið að nýta bragð- góðu og hollu bláberin í dásamlega rétti. Gott er að sulta fyrir veturinn eða galdra fram girnilegan eftirmat um helgina. Nokkrir íslenskir matgæðingar deila með okkur dýrindis uppskriftum. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Bláber eru stútfull af hollustu. Þau innihalda steinefni, trefjar og víta- mín eins og C-vítamín og E-vítamín, sem eru andoxunarefni. Svo eru þau einnig hitaeiningasnauð, en í 100 g eru aðeins 60 hitaeiningar. Hvað er í bláberjum?MATUR 26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.8. 2016 10 dl bláber 1 dl mórber 2-4 msk. kókospálmasykur eða sæta að eigin vali safinn úr 1 sítrónu eða 2 msk. hreinn sítrónusafi úr flösku 1 vanillustöng 1 kanilstöng ½ tsk. túrmerik eða 1-2 cm bútur fersk rót nokkur korn sjávarsalt væn msk. chiafræ, möluð í krydd- eða kaffikvörn Setjið bláberin í pott ásamt sítrónusafanum, mórberjunum, sætunni, vanillustönginni, kan- ilstönginni, túrmerikrótinni og nokkrum salt- kornum. Látið suðuna koma upp og bullsjóða og hrærið í 1-2 mín., lækkið undir pottinum og hrærið möl- uðu chiafræjunum út í og látið malla þar til sultan byrjar að þykkna. Takið af hellunni og látið standa í smástund. Setjið í hreinar krukkur, t.d. gamaldags sultu- krukkur sem eru alveg þéttar með gúmmíteygju. Þessa sultu er líka hægt að gera hráa. Þá er gott að nota malaðan kanil og vanilluduft eða -dropa, allt sett í matvinnsluvél í staðinn fyrir pott og maukað. Frá maedgurnar.is. Bláberjasulta 200 g bláber, fersk eða frosin 5 msk. agavesíróp 1 vanillustöng 1 tsk. sítrónusafi 50 ml eplasafi eða annar hreinn ávaxtasafi Setjið bláber, agavesíróp, sítrónusafa og epla- safa í lítinn pott. Látið suðuna koma upp og leyf- ið þessu öllu að malla í nokkrar mínútur. Skerið vanillustöngina eftir endilöngu og skafið van- illufræin úr stönginni með oddinum á litlum hnífi. Leyfið stönglinum að sjóða með bláberj- unum. Merjið berin aðeins með litlum gaffli og hrær- ið vel. Látið sósuna malla í 10 mínútur. Fjarlægið vanillustöngina. Berið sósuna fram heita með t.d. heitum bökum, kökum eða ís. Gott er að hafa í huga að hægt er að nota sósuna í alls kyns drykki. Hún geymist í meira en viku í ísskápnum og hana má frysta og hita upp síðar. Frá cafesigrun.com. Heit bláberja- og vanillusósa

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.