Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.08.2016, Síða 31
2016 Gerpir - Bjargtangar
2014 Rifstangi - Kötlutangi
2012 Eystra horn - Hornbjarg
2010 Reykjanestá - Fontur
Þórólfur svaf í tjaldi á hálendinu á leið sinni yfir landið. Hér hefur hann
tjaldað við Holuhraun en sjá má Öskju í baksýn.
einnig þarf að vaða yfir misdjúpar
ár. Þórólfur gerir ekki mikið úr
hættunum á leiðinni. „Ég gæti
mögulega hafa flotið nokkrum sinn-
um. En það reddaðist,“ segir hann
og vill sem minnst um það tala.
Kannski vegna móður sinnar sem
bíður alltaf áhyggjufull heima þeg-
ar hann er á ferðum sínum.
Í ferð sumarsins gekk hann yfir
Holuhraun. „Það er geðveikt þegar
maður er búinn að því en hræðileg
leið ef maður ætlar að stytta sér
leið. Allt svo nýtt, laust og hvasst.
Mikið af sprungum þar sem heitt
loft kemur upp um. En skemmti-
legt. Mæli samt ekki með því ef
fólk er á hraðferð.“
Í sandi og ösku í 38 tíma
Veðrið skiptir gríðarlegu máli í
þessum ferðum. „Þetta er svo mik-
ið happa og glappa á Íslandi,“ segir
Þórólfur sem lent hefur í öllum
veðrum og er öllu vanur. „Ég var
veðurtepptur núna svona einn og
hálfan sólarhring í Holuhrauni í
tjaldinu. Áttin snerist og það var
20-25 á sekúndu. Það fylltist allt af
sandi og ösku. Ég gat ekki tekið
tjaldið niður af því ég var einn,
þannig að ég beið bara. Síðan kom
gluggi í klukktíma og ég náði að
taka tjaldið niður og svo byrjaði að
blása aftur. Það liðu 38 tímar frá
því ég tók niður tjaldið og þar til
ég komst í skálann í Kistufelli,“
segir hann en hann gekk nánast
allan tímann með skíðagleraugu
vegna sandblásturs.
Á svona tímabilum, hugsarðu
aldrei: rosalega langar mig heim
undir sæng?
„Nei. Aldrei. Ég held að ef mað-
ur fer að hugsa þannig þá verði allt
svo miklu erfiðara. Þá er maður
fljótari að brotna. Þetta er 95%
andlegt.“
Tekur ár að gleyma
Þórólfur segist ekki vera að skipu-
leggja næstu ferð en gæti hugsað
sér að fara næst til útlanda að
ganga. Hann segist vera búinn að
kriss-krossa Ísland í þessum fjór-
um ferðum. „Ég er búinn með
þetta núna. Þetta er eins og breski
fáninn yfir Ísland.“
Í síðustu ferð gekk hann rúm-
lega 700 kílómetra en hann fór yf-
irleitt í kringum 30 kílómetra á
dag. Þá er annað hné hans laskað
og þarf Þórólfur að ganga með
hnéhlíf. „Ég er með ónýtt hné,“
segir hann og lætur það ekki
stöðva sig.
Hann er nú kominn til byggða og
hyggst dvelja í siðmenningunni
eitthvað áfram. Áður en hann fær
fiðringinn aftur. „Það tekur mig
svona ár að gleyma hvað þetta var
hræðilegt,“ segir hann og brosir
tvíræðu brosi.
Að finna til smæðar sinnar á hálendinu í fegurðinni er heillandi.
’Mamma og pabbikomu og hittu migþegar ég kom niður íHrútafjörð. Það leið
næstum yfir mömmu,
það var svo vond lykt
af mér. Þá var ég rek-
inn í sturtu.
Þegar Þórólfur notaði vöðlurnar fór hann í Converse-strigaskó yfir. Það
má því segja að á helmingi leiðarinnar hafi hann gengið í þeim.
Nokkrum sinnum á leiðinni gat Þórólfur gist í skálum. Við Einarsskála í Grágæsadal var gott að hvíla.
21.8. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Yfir 100 bílar á staðnum Bíll með myndum selst betur Innisalur
CHEVROLET Silverado 3500 hd high
country. Árgerð 2016, Nýr bíll, dísel, sjálf-
skiptur, 6 gírar, leður, lúga og fl. Lækkað
Verð 9.100.000. Verð m/vsk 11.290.000.
Rnr.115365.
DODGE Ram 3500 laramie. Árgerð 2016,
ekinn 11 Þ.KM, dísel, leður, lúga og fl.
Sjálfskiptur. Lækkað verð 7.800.000.
Verð m/vsk 9.680.000. Rnr.115242.
FORD F350 lariat. Árgerð 2016, Nýr bíll,
dísel, sjálfskiptur, leður, lúga. Lækkað
verð 8.530.000. Verð m/vsk 10.580.000.
Rnr.115367.
FORD F350 platinum. Árgerð 2016,
nýr bíll, dísel, sjálfskiptur, leður og fl.
LÆKKAÐ verð 10.070.000. Verð m/VSK
12.490.000. Rnr.211448.
FORD E350. Árgerð 2004, ekinn 55 Þ.KM,
dísel, sjálfskiptur. Verð 9.980.000. Einn m
öllu, tilbúinn hvert sem er. Rnr.115385.
Læ
kk
að
ve
rð
Læ
kk
að
ve
rð
Læ
kk
að
ve
rð
Læ
kk
að
ve
rð
Opið: Mánudaga-föstudaga kl. 10-18, lokað á laugardögum í sumar
Nú lækkum við verðið líka