Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.08.2016, Page 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.08.2016, Page 32
TÍSKA 32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.8. 2016 MENNINGARNÓTT MANIFESTO verður í Grýtunni, vinnustofum hönn- uða og listamanna, dagana 18. til 21. ágúst að Keilugranda 1. Listafólk og hönnuðir Grýtunnar hafa verk og listmuni til sýnis og sölu. Listahátíð í Grýtunni Hvernig myndir þú lýsa þínum fatastíl? Hann er frekar einfaldur með smá tvisti. Annars er ég eiginlega alltaf í gallabuxum og bol og pæli mest í hvernig skóm og jakka ég er í. Hvað heillar þig við tísku? Hvað tískan er sífellt að breytast og í takt við það sem er að gerast í samfélaginu. Einnig hef ég gaman af því að skoða hvað tískan er misjöfn eftir borgum, þ.e.a.s þessi aukni fjöl- breytileiki þar sem fólksfjöldinn er meiri. Maður bíður alltaf spenntur að sjá hvað kemur næst, þó svo að maður fylgi tískunni ekki endilega sjálfur þá er hrikalega gaman að fylgjast með. Einnig finnst mér áhugavert að koma inn í samfélög sem hafa ákveð- inn stíl án þess þó að hafa þann stimpil að þau séu að fylgja ein- hverri sérstakri tísku. Þetta sér maður til dæmis í dreifbýli út um all- an heim. Oft þykir fólki þessi hópur vera hallærislegur en mér þykir hann mjög áhugaverður og fæ oft innblástur þaðan. Hvernig skín þinn persónulegi stíll í gegn í hönnun þinni? Ég spái almennt mjög mikið í smáatriðum í flíkum, mér finnst þau mikilvæg og ætli það skíni ekki í gegn í hönnun minni. Hvaðan sækir þú innblástur? Víðsvegar. Fyrir útskriftarlínuna mína voru það aðallega persónur sem ég hef kynnst á lífsleiðinni og finnst áhugaverðar. Ég skoðaði hvaðan þær kæmu og út af hverju þær væru eins og þær eru, uppeldið, fortíð þeirra og hvernig hún hefur áhrif á þessar persónur og mann- fólkið flest. Einnig skoðaði ég mis- munandi tilfinningar sem koma upp, sem á endanum mótuðu þessar per- sónur, og skoðaði hvernig fólk styrk- ist mismunandi í gegnum lífið. Annars er það almennt mann- fólkið sem mér finnst áhugavert. Skrítið fólk, utangátta fólk, fólk sem hefur ekki vit á því að það er ekki að fylgja tísku, það er að segja er ekki meðvitað um hverju það klæðist. Oft á tíðum sé ég fólk sem leggur metn- að sinn í að klæða sig á ákveðinn hátt, eftir einhverskonar stefnu og eða tísku, eða leggur áherslu á að vera fríkað. En þetta fólk vekur ekki áhuga minn endilega af því að það er oft svo meðvitað um sjálft sig. Eyðir jafn miklum tíma fyrir framan speg- ilinn og hnakkinn sem það fyrirlítur. Mér finnst fólk sem er ekki meðvitað um sjálft sig, klæðir sig í föt nánast á barnslegan hátt vera mjög áhuga- vert. Ástæðan er að það hefur enga fordóma og ég sæki innblástur minn oft í svona fólk. Annars get ég enda- laust fengið hugmyndir utandyra, þarf ekki að vera í sveit, stórborg frekar. En mismunandi fólk, sem er helst ólíkt mér, veit- ir mér mikinn innblástur. Hvaða tískutímarit lest þú? Ég les aðallega V magazine, I-D og Self Service. Hver hafa verið bestu kaupin þín? Síðasta árið eru það Acne-skór sem ég gjörsamlega elska, ann- ars er það Schumacher-jakki sem er algjör draumur. Satín- efnið í honum er svo fallegt að hann verður einhvern veginn fallegur við allt, hef átt hann í 6 ár og er alltaf jafn ánægð með hann. Ætlar þú að fá þér eitthvað fallegt fyrir veturinn? Er í þeim fasa að einfalda líf mitt og er því frekar að minnka við mig í fötum en að bæta við. Hvað hefurðu helst í huga þeg- ar þú velur föt? Efnin skipta mestu máli. Þau verða að vera falleg. Svo finnst mér mikilvægt að flíkin sé úr sniði sem hentar mér og að lagt sé upp með gott handbragð og smáatriðin í flíkinni séu unnin vel. Hvaða þekkta andlit finnst þér með flottan stíl? Það eru svo margir smekklegir. Hér á landi er það Ragnhildur Gísladóttir ef ég ætti að nefna eina; síðan ef við förum út fyrir landstein- ana er Emmanuelle Alt alltaf hrikalega svöl og Iris Apfel. Hvert er þitt eftirlætis-tísku- tímabil og hvers vegna? 1930 – Tímabil þar sem konur voru í vel sniðnum fötum, kven- legum og mittið fór á réttan stað. Einnig var dagklæðnaður einfald- ari, jafnvel buxur. Fram að 1933 var mikil uppsveifla og því var efnisval og fókus á smáatriði mjög gott. Guðrún Helga klæðist oftast gallabuxum og leggur þá frekar áherslu á jakka og skó. Efnin skipta mestu máli Guðrún Helga Kristjánsdóttir fatahönnuður er nýkomin heim af tískuvikunni í Kaup- mannahöfn þar sem hún sýndi útskriftarlínu sína í hönnunarkeppninni Designers Nest. Guðrún Helga er með flottan stíl og sækir meðal annars innblástur í ólík samfélög. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Guðrún heldur upp á stíl Iris Apfel. Ragnhildur Gísladóttir söngkona er töffari. Morgunblaðið/Þórður Úr út- skriftarlínu Guðrúnar Helgu. AFPLjósmynd/Baldur Kristjáns

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.