Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.08.2016, Blaðsíða 43
21.8. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 43
Ármúla 24 • S: 585
2800
Opið virka daga 10 -18, laugardaga 11- 16. – www.rafkaup.is
Úrval útiljósa
Geimferjuáætlunin var sett í gang,“
segir Patrick og útskýrir að þetta sé
dæmigert í bæjum þar sem aðeins er
einn stór aðalatvinnuveitandi.
Aðdáandi Tsjekovs
„Það hljómar kannski hræðilega og
hálfniðurdrepandi en sögurnar eru
annaðhvort um fólk sem kemur illa
fram við aðra, og reynir svo að afsaka
sig, eða fólk sem er virkilega að reyna
að breyta rétt en klúðrar því,“ segir
hann og hlær. „En ég sé það bara
þegar ég horfi til baka, það var alls
ekki ætlunin.“
Fyrsta sagan gerist árið 1969, þeg-
ar fyrsta geimfarið var sent til tungls-
ins. „Ég horfði á það frá stéttinni fyr-
ir framan húsið heima hjá mér.
Myndin framan á bókinni er einmitt
tekin á þessari stundu. Þar sést kona
á bláum kjól sem við höldum að sé
amma mín. Hún var á staðnum og
þetta er mjög líkt henni.“
- Sérðu sjálfan þig sem mjög amer-
ískan höfund, út frá uppeldi þínu?
„Já... en ég er mikill aðdáandi Tsje-
kovs. Mér finnst mikill húmor í smá-
sögunum hans en svo enda þær alltaf
hálf dapurlega. Í raun finnst mér við
smásagnahöfundar sífellt vera að
reyna að feta í fótspor hans. Ef þú ert
bandarískur og skrifar smásögur var
aðaláhrifavaldur þinn án efa undir
áhrifum frá Tsjekov. Flannery ÓCon-
nor og Raymond Carver eru t.d. þeir
sem hafa haft mest áhrif á mig, og
Tsjekov hafði mikil áhrif á þau bæði.“
Magnað að gefa út unglinga
Þrjár af bókum Patricks eru ung-
lingabækur og sem ritstjóri hjá One
Story-tímaritinu gefur hann líka út
unglingasögutímaritið One Teen
Story.
„Unglingabókmenntir skipta mjög
miklu máli því lengi voru ekki til nein-
ar bækur sem fjölluðu um hvað það
var í rauninni að vera unglingur.
Frank og Jói og Nancy Drew voru lít-
ið að pæla í því. Ég held líka að það sé
ástæðan fyrir því að margt fullorðið
fólk les unglingabækur. Þetta eru
bækur sem það hefði viljað lesa á sín-
um tíma.
Fyrsta unglingabókin mín, The
Saints of Augustine, skipti mig miklu
máli persónulega. Ég vildi endilega
skrifa bókina sem mig langaði að lesa
sem unglingur. Sú bók fjallar ekki
bara um það að koma út úr skápnum
heldur líka um mjög sterkan vinskap
milli samkynhneigðs stráks og gagn-
kynhneigðs stráks. Hún fjallar um
foreldra sem þurfa að samþykkja
börnin sín, og um fólk yfirhöfuð sem
þarf að endurmeta hvað skiptir það
mestu máli í lífinu. Slík bók var ekki
til þegar ég var unglingur. Síðan hef
ég skrifað tvær unglingabækur í við-
bót en efast reyndar um að þær verði
fleiri.“
Patrick er þó síður en svo búinn að
gefa unglingana upp á bátinn, því að
mánaðarlega ritstýrir hann One Teen
Story, sögu um unglinga og hvað það
er að vera unglingur. Fjórum sinnum
á ári eru höfundurinn unglingur.
„Það er mjög gaman að ritstýra
unglingunum, og miklu auðveldara en
ég hélt, þeir eru svo opnir og duglegir.
Svo er bara eitthvað magnað við það
að vera að gefa út verk 16 ára unglings
og senda til 15 þúsund áskrifenda, því
það bregst ekki að umboðsmaður hef-
ur samband við mig um leið og vill
vinna með viðkomandi höfundi.“
Vill kynnast íslensku
bókafólki
- Geta Íslendingar sent þér sögur?
„Já, það geta allir sent mér sögur,
bæði í One Story og One Teen Story.
Það þarf bara að fylgja reglunum
sem má finna á heimsíðunni okkar.“
- En taka þátt í ritnámskeiðunum
sem þið haldið?
„Já, fólk alls staðar að úr heiminum
tekur þátt í netnámskeiðunum okkar.
Þá heldur kennarinn vídeófyrirlestur
og setur fyrir verkefni á hverjum
degi í eina viku, og fólk vinnur þau
sjálft. Það er spjallþráður þar sem
nemendur og kennarinn spjalla
saman. Kennarinn svarar fyrir-
spurnum en les ekkert af því sem
nemendur eru að skrifa.
Við höldum vikunámskeið á sumr-
in, sem allir geta sótt um að taka þátt
í. Svo erum við með fjögurra vikna
námskeið, þar sem tíu manns hittast
einu sinni í viku. En þá verða þátttak-
endur auðvitað að vera á staðnum.“
- Geturðu ekki bara komið til Ís-
lands og haldið ritnámskeið?
„Jú, ég er meira en til í það!“ hróp-
ar Patrick upp yfir sig, „Mér finnst
dásamlegt að vera á Íslandi og vil
fara þangað sem oftast. Ég vil líka al-
veg endilega komast í samband við og
kynnast bókafólki þar, svo að það yrði
alveg fullkomið,“ segir Patrick, sem
hlakkar til að eignast nýja vini á Ís-
landi.
patrickryanbooks.com
www.one-story.com
Patrick í hóp samkennara og
aðstoðarfólks á nýafstöðnu
sumarritnámskeiði, Summer
Writers Conference.
BÓKSALA 10. - 16. ÁGÚST
Listinn er tekinn saman af Eymundsson.
1 Harry Potter & the Cursed ChildJ. K. Rowling
2 Vefur LúsífersKristina Ohlsson
3 NæturgalinnKristin Hannah
4 This is IcelandÝmsir höfundar
5 Danskur málfræðilykillHrefna Arnalds
6 Con Dios - fermingarfræðslaÝmsir höfundar
8 Handbók um ritun og frágangÞórunn Blöndal
9 Sagas Of The IcelandersÝmsir höfundar
10 Focus on Vocabulary 2Diane Schmitt
1 Vefur LúsífersKristina Ohlsson
2 NæturgalinnKristin Hannah
3 Ástarsögur íslenskra kvennaÝmsir höfundar
4 EkkjanFiona Barton
5 Ég fremur en þúJojo Moyes
6 VillibráðLee Child
7 Fimmta árstíðinMons Kallentoft
8 Saga af nýju ættarnafniElena Ferrante
9 Bak við luktar dyrB.A. Paris
10 Framúrskarandi vinkonaElena Ferrante
Allar bækur
Íslenskar kiljur
launanna vísar til:
Not the Booker prize.
Á svonefndum langlista verð-
launanna sem kynntur var í vor
voru hvorki meira né minna en 147
bækur, en á stuttlistanum, sem birt-
ur var í vikunni, eru þær ekki nema
sex: The Combinations eftir Louis
Armand, The Less Than Perfect
Legend of Donna Creosote eftir
Dan Micklethwaite, Walking the
Lights eftir Deborah Andrews, The
Summer That Melted Everything
eftir Tiffany McDaniel, Chains of
Sand eftir Jemma Wayne og What
Will Remain eftir Dan Clements, en
þessar sex bækur urðu efstar í al-
mennri atkvæðagreiðslu.
Athygli vekur að bækurnar sex
eru allar frá svonefndum óháðum
útgefendum, þ.e. smáfyrirtækjum
sem tengjast
ekki einhverju
stóru útgáfu-
fyrirtækjanna
sem eru að
segja allsráð-
andi í bókaheim-
inum.
Sigurvegari
Booker-
verðlaunanna
fær að launum um sjö milljónir
króna, en handhafi Not the Booker-
verðlaunanna fær kaffikönnu með
merki The Guardian.
Könnuverðlaunahafar hingað til
eru The Canal eftir Lee Rourke og
Deloume Road eftir Matthew Hoot-
on 2010 (fengu jafn mörg atkvæði),
King Crow eftir Michael Stewart
2011, Tales from the Mall eftir Ew-
an Morrison 2012, Life After Life
eftir Kate Atkinson 2013, The Visi-
tors eftir Simon Sylvester 2014 og
2015 hlaut Kirstin Innes könnuna
fyrir Fishnet
Eins og getið er skipta atkvæði
lesenda máli, en einnig kemur dóm-
nefnd, sem valin er úr hópi lesenda,
að valinu. Öllum atkvæðum verður
að fylgja stutt umsögn um viðkom-
andi bók.