Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.08.2016, Page 44

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.08.2016, Page 44
44 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.8. 2016 LESBÓK SJÓNVARP Ríkissjónvarpið hefur á mánudagskvöldið sýningar á nýrri spennuþáttaröð, Næturverðinum (The Night Manager), sem byggð er á samnefndri sögu eftir John le Carré frá árinu 1993 með Tom Hiddleston, Hugh Laurie og Oliviu Coleman í aðalhlutverkum. David Farr lagar söguna að samtímanum. Söguþráðurinn er á þann veg að breskur næturvörður á hóteli í Kaíró dregst inn í óvænta atburðarás þegar hann kynnist breskum auð- jöfri sem reynist alþjóðlegur vopnasali. Þátturinn hlaut alls tólf tilnefningar til Emmy- verðlaunanna. Leikstjóri er Susanne Bier en sýningar- rétturinn á þáttunum hefur verið seldur til hvorki meira né minna en 180 landa. Atriði í þáttunum eru ekki við hæfi barna. Næturvörðurinn á RÚV Tom Hiddleston og Olivia Coleman í hlut- verkum sínum í Næturverðinum. SJÓNVARP Önnur þáttaröð sketsaþáttanna Þær tvær með leikkonunum Völu Kristínu Eiríksdóttur og Júlíönu Söru Gunnarsdóttur hefur göngu sína á Stöð 2 í kvöld, sunnu- dagskvöld. Vala og Júlíana skrifa og leika öll hlutverkin sjálfar en í þáttunum bregða þær sér í gervi skrautlegra per- sóna sem takast á við lífið og tilveruna sem getur verið bæði skrítin og skemmtileg. Fyrsta þáttaröðin mæltist prýðilega fyrir og fróðlegt verður að sjá hvernig stöllunum tekst upp að þessu sinni. Þættirnir verða átta að tölu. Vala Kristín Eiríksdóttir, helmingurinn af Þeim tveim. Morgunblaðið/Ómar Fram að þessu hefur hljóm-sveitin Skálmöld, sem leikurrokk í þyngri kantinum, ekki oft verið nefnd í sömu andrá og vögguvísur enda þótt sveitin hafi löngum verið býsna vel kynnt í leik- skólum þessa lands. Það mun nú breytast enda eiga lögin níu á vænt- anlegri hljóðversskífu sveitarinnar, þeirri fjórðu í röðinni, það öll sam- eiginlegt að vera vögguvísur. Sam- hliða laginu gerði Skálmöld skondið textamyndband sem tekið var upp í Bjargarkrók við Skjálfandaflóa. Þrátt fyrir titilinn er tónlistin af sömu rót og áður, melódískt og spriklandi þungarokk með vík- ingablæ. „Þetta er sama hljóm- sveitin,“ fullvissar Snæbjörn Ragn- arsson, bassaleikari og textaskáld Skálmaldar, mig um. „Skálmöld mun aldrei taka neinar u-beygjur. Það sem okkur sjálfum þykir ef til vill vera þróun upplifa aðrir líklega ekki sem neinar breytingar. Við höldum okkur auðvitað ferskum, án þess þó að fara of langt frá forminu.“ Skemmtileg andstæða Hann segir vögguvísnahugmyndina alls ekki nýja af nálinni. „Mig hefur lengi langað að semja vögguvísur og mátaði hugmyndina meira að segja inn í sögurnar á hinum plötum Skálmaldar. Andstæðan er svo skemmtileg; að kalla hávaðasamt þungarokk vögguvísur. Það er eitt- hvað fallegt við það.“ Í upphafi sá Snæbjörn ekki fyrir sér heila plötu með vögguvísum en það breyttist. „Ég eignaðist barn fyrir einu og hálfu ári og þessi plata er undir beinum áhrifum frá því; ég ætla ekki að reyna að fela það. Litla dýrið á heilmikið í þessu öllu saman og mér þykir strax orðið mjög vænt um þessa plötu.“ Þá var þetta spurning um nálgun og einu sinni sem oftar þegar Snæ- björn var að blaða í norrænu goða- fræðinni fæddist þessi hugmynd: Hvernig ætli það sé að fara að sofa í heimunum níu sem hermt er af í þeim góðu fræðum? „Tolkien stal náttúrulega þessari níu heima pælingu á sínum tíma og útfærði hana mjög fallega og ég fór að velta fyrir mér hver munurinn væri á hans dvergum og svartálf- unum í goðafræðinni sem eru mun óræðari fyrirbæri. Síðan fór ég að ræða þetta við Jón Geir [Jóhanns- son, trymbil Skálmaldar] þar sem við sátum saman í flugvél og svei mér ef hann negldi ekki síðasta nagl- ann í þessa hugmynd, helvískur. Síð- an lentum við einhvers staðar í út- löndum og ég byrjaði að plotta söguna. Þegar ég fór svo að svæfa dóttur mína fór allt á flug í hausnum á mér. Ég er mjög feginn að ég réðst ekki í að útfæra þessa pælingu áður en ég eignaðist barn; þá hefði kveð- skapurinn orðið annar.“ Sex helvíti stór egó Snæbjörn segir elstu riffin á plöt- unni um tveggja ára gömul en þegar menn settust markvisst niður til að semja hafi ferlið gengið hratt fyrir sig. „Þetta er alltaf tíma- og orku- frekur prósess enda sex helvíti stór egó sem þurfa að ná sameiginlegri lendingu. Við erum hins vegar vanir að vinna hratt og undir pressu og á heildina litið gekk þetta ljómandi vel. Eigum við ekki að segja að fæð- ingin hafi verið heldur auðveldari en oftast áður.“ Allir sex liðsmenn sveitarinnar leggja til efni og Jón Geir trommu- leikari á nú í fyrsta sinn riff á Skálm- aldarplötu. „Jón Geir er mjög öfl- ugur útsetjari en hefur lítið verið í riffunum til þessa, einfaldlega þar sem hann spilar bara á trommur og trompet. Nú söng hann hins vegar bara riffin fyrir Baldur [Ragn- arsson] sem pikkaði þau upp á gít- arinn.“ Engan bilbug er á Skálmöld að finna og Snæbjörn staðfestir að kappið sé svo mikið að menn séu þegar farnir að hugsa um næstu plötu. Áður en þessi er svo mikið sem komin út. „Það er ægileg gleði og hamingja í Skálmöld og hefur alltaf verið. Heildin er rosalega sterk, okkur finnst við alltaf vera að byrja. Við stofnuðum þessa hljóm- sveit til að spila þungarokk og það erum við enn að gera. Auðvitað er meira umleikis núna, ég ætla ekki að ljúga því, kynningarmál, skipulagn- ing og annað slíkt, en svo lengi sem við höfum tíma til að spila og semja er það allt í lagi.“ Virðing fyrir þungarokki Snæbirni þykir gott að vera þunga- rokkari á Íslandi í dag eftir all- nokkra eyðimerkurgöngu. Gróskan sé með nokkrum ólíkindum um þess- ar mundir. „Það voru rýrir dagar um tíma; ætli senan hafi ekki lifnað við fyrir um áratug. Fyrir það þótti maður bara asnalegur og skrýtinn,“ segir hann hlæjandi. Spurður hvað hafi breyst talar hann annars vegar um reglubundn- ar tískubylgjur og hins vegar kunn- áttu og metnað. „Það eru kannski ekki allir með burtfararpróf í hljóð- færaleik en kunnáttan og tónlist- argáfan sem sett er í íslenskt þunga- rokk í dag er eigi að síður ofboðsleg. Það þykir ekkert tiltökumál í dag að taka upp rafmagnsgítar og stefna að því að verða fáránlega góður. Það skiptir líka máli að kynslóðin sem ólst upp við Iron Maiden og þessar sveitir er komin til manns. Núna hlustar fullorðið fólk á Iron Maiden og ber virðingu fyrir þungarokki. Meðan ég var barn hlustaði fullorðið fólk bara á Bítlana og Stones og þótti allt þaðan af harðara vera geð- veikur hávaði. Það er liðin tíð að ein- hver sjálfskipuð virtúósaelíta tali niður til okkar þungarokkara og af- skrifi okkur sem einhverja aukvisa. Þetta á ekki bara við um þungarokkssenuna. Hipphoppsenan á Ís- landi er til dæmis al- veg brjáluð. Tugir af hipphopp- og rapp- sveitum að gera stór- kostlega hluti. Það er kannski ekki minn te- bolli en ég fagna því eigi að síður innilega. Þetta styður hvort annað.“ Skálmeldingarnir Baldur Ragnarsson, Björgvin Sigurðs- son og Snæbjörn Ragnarsson í essinu sínu á tónleikum. Morgunblaðið/Eggert Skálmöld heldur tónleika á hinu sögufræga sviði skemmtistaðarins NASA á laugardaginn eftir viku og lof- ar Snæbjörn frumflutningi á einhverju af nýja efninu þar. Framundan er hins vegar út- landaflakk og óvíst með frek- ara tónleikahald hér í fásinn- inu á þessu ári. Útgáfu- tónleikar vegna Vögguvísna Yggdrasils verða að líkindum haldnir á fyrsta fjórðungi næsta árs. Fyrir sitjandi áhorfendur. Hljómsveitin verður ytra við tónleikahald um þessa helgi og í október stendur fyrir dyrum fjög- urra vikna ferð um Evrópu. Auðn mun hita upp fyrir Skálm- öld á NASA. „Meistaraband,“ að sögn Snæ- björns sem sló í gegn á Wacken- hátíðinni fyrr í sumar. Leikur á NASA um næstu helgi Sýna okkur í níu heimana Víkingamálmbandið Skálmöld sendi í vik- unni frá sér Niðavelli, fyrstu smáskífuna af væntanlegri breiðskífu, Vögguvísum Yggdras- ils, sem kemur út í lok næsta mánaðar. Þar er hermt af níu heimum goðafræðinnar. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Þær tvær snúa aftur á Stöð 2

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.