Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.08.2016, Page 45
21.8. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 45
ÞRASS Maður nokkur var tekinn höndum í Bandaríkj-
unum á dögunum fyrir að vinda sér upp á svið á tón-
leikum þrasskónganna í Slayer og sulla munnvatni yfir
Tom Araya, söngvara og bassaleikara sveitarinnar. Svo-
leiðis gera menn ekki! Við þetta rifjast ugglaust upp fyr-
ir ýmsum sagan af því þegar Slayer túraði í árdaga með
átrúnaðargoðum sínum í enska frumþrassbandinu Ve-
nom. Téðum Araya var þá mál að kasta af sér vatni í rút-
unni eftir eitt giggið en var nokkuð við skál og rataði
ekki á dolluna. „Klósettið er hér, lagsi!“ gall þá í hinum
ógurlega Cronos, forsprakka Venom, um leið og hann
galopnaði munninn. Við skulum láta lesendum og
ímyndunarafli þeirra eftir að geta sér til hvað gerðist
næst. Þekki þeir ekki söguna.
Skyrpti á Araya Tom Araya,
söngvari Slayer.
AFP
SJÓNVARP Aðdáendur hinna geysivinsælu
bandarísku framhaldsþátta Shameless þurfa
að bíða mun skemur eftir sjöundu seríunni en
fyrri seríum, en fyrsti þátturinn verður
frumsýndur vestra 2. október. Fastlega má
reikna með því að Stöð 2, sem sýnt hefur
þættina hérlendis, hefji sýningar mjög fljót-
lega eftir það. Fram að þessu hafa Shame-
less-seríurnar hafið göngu sína í janúar. Sem
fyrr verða þættirnir tólf talsins. Upplýst hef-
ur verið að nokkrir nýir karakterar bætist í
hópinn, þeirra á meðal Yvan, faðir hinnar
tápmiklu Svetlönu sem smeygði sér fimlega
inn í hjónaband Kevs og V í síðustu seríu.
Shameless handan við hornið
Vel fór á með V og Svetlönu í síðustu seríu.
Showtime
Ný sex þátta heimildasería eftir
Mikael Torfason hefur göngu sína
á Rás 1 í dag, laugardag, kl. 10.15.
Serían heitir Sendur í sveit og
fjallar um heimsókn Mikaels á þá
sex bæi sem hann var sendur á í
sveit þegar hann var krakki. „Mér
skilst að ég sé eitt af síðustu börn-
unum sem náðu í rassgatið á
þeirri hefð að vera send í sveit á
sumrin til að læra að vinna og
lenda ekki í því að verða borgar-
barn,“ segir hann.
Mikael var sendur í sveit á sex
bæi yfir tíu sumur. Fyrsti bærinn
var Drangshlíð undir Eyjafjöllum,
þegar hann var sex ára, og þann
bæ heimsækir Mikael í fyrsta
þættinum.
„Í Drangshlíð var ég í sveit hjá
Oddnýju Björgu Hólmbergs-
dóttur og Jóni Guðmundssyni.
Oddný var sjálf send í sveit fyrst
fjögurra ára og lærði snemma að
líf íslenskrar alþýðu er hart og erf-
itt stundum. Ég hafði ekki heyrt í
Jóni og Oddnýju í 36 ár því ég
hafði hengt neikvæðar tilfinningar
við það að hafa verið sendur í
sveit. Ég hafði verið veikur lengi
Mikael Torfason rithöfundur var eitt af síðustu börnunum sem send voru í
sveit. Með honum er Sesar sem fór með í heimsóknina í Drangshlíð.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
NÝIR ÚTVARPSÞÆTTIR EFTIR MIKAEL TORFASON
Heimsækir býlin
sem hann var á
og átti erfitt með að ná utan um
þessa hörku. Það var því ótrúlegt
að fá að hitta Jón og Oddnýju aft-
ur,“ segir Mikael.
Hann segir Jón og Oddnýju hafa
verið ung og blönk þegar hann var
hjá þeim í sveit. Seldu til dæmis
Skóda fyrir bindivél og farið var í
kerru á sautjánda júní skemmtun í
Skógum. „Við komum rykug og
skítug á samkomuna, börnin að
sunnan, og hefðum betur sleppt
því að fara í bað á undan.“
Í þættinum í dag segja Jón og
Oddný Mikael sögu sína en með
ótrúlegri þrautseigju hafa þau lif-
að af okurvexti og fjandsamlegt
umhverfi, að hans sögn. „Þau
fluttu um tíma í bæinn og bjuggu á
gistiheimili og báru út Fréttablað-
ið og ruslpóst til að halda býlinu
en í dag reka þau 38 herbergja
hótel í Drangshlíð.“
MOGGAKLÚBBURINN
Áskrifendur Morgunblaðsins eru sjálfkrafa meðlimir í Moggaklúbbnum og njóta ýmissa fríðinda og tilboða.
Hægt er að fylgjast með hvað er í boði hverju sinni á moggaklubburinn.is og fá tilboðin send í tölvupósti með því að
skrá sig á póstlistann. Hafðu samband í síma 569 1100 eða askrift@mbl.is hafi Moggaklúbbskortið ekki borist þér.
Hvernig fæ ég afsláttinn?
Til að fá afsláttinn þarf að fara
inn á moggaklubburinn.is
og smella á „Operugala um
sumar“.
Þá opnast síða þar sem þú klárar
miðakaupin með afslætti.
Allar nánari upplýsingar
á www.pearls.is
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á EÐA Í SÍMA
25% AFSLÁTTUR Á ÓPERUGALA UM SUMAR Í HÖRPU
Á þessum tónleikum beinum við athygli okkar að sögu óperunnar
á Íslandi.
Fjórir einsöngvarar og píanisti flytja fjölbreytta óperutónlist, bæði innlenda
og erlenda auk þess sem ýmsum fróðleik um óperuflutning á Íslandi verður
gaukað að áhorfendum.
Flytjendur eru; Lilja Guðmundsdóttir sópran, Sigríður Ósk Kristjánsdóttir
mezzósópran, Egill Árni Pálsson tenór, Kristján Jóhannesson baritón
og Matthildur Anna Gísladóttir píanóleikari.
Tónleikar: 10. 17. og 24. júlí og 7. og 14. ágúst.