Morgunblaðið - 01.09.2016, Síða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2016
Mest seldu ofnar
á Norðurlöndum
mánudaginn 5. september, kl. 18
og þriðjudaginn 6. september, kl. 18
Listmunauppboð
í Gallerí Fold
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is
fimmtudag kl. 10–18, föstudag kl. 10–18, laugardag kl. 11–17,
sunnudag kl. 12–17, mánudag kl. 10–17, þriðjudag kl. 10–17
Kr
ist
ín
Jó
ns
dó
tti
r
Jóhannes
S.Kjarval
100 uppboð í 20 ár
Forsýning á verkunum fimmtudag til þriðjudags
Léttar veitingar frá kl. 17.30
Félagarnir Jónas Guðmundsson og
Jón Jóhann Jóhannsson freistuðu
þess að verða fyrstir til að aka á raf-
bíl frá Reykjavík til Ísafjarðar. Til-
gangurinn var að vekja athygli á
skorti á hleðslustöðvum á lands-
byggðinni.
Fararskjóti þeirra var KIA Sol-
rafbíll en hann kemst um 120-140
kílómetra á hleðslu eftir aðstæðum
og árstíma. Ferðin hófst um kl. 09:00
föstudaginn 26. ágúst í Reykjavík.
Ferðin í Borgarnes (73 km) gekk
vel. Þegar þangað var komið var ek-
ið beint að hraðhleðslustöð Orku
náttúrunnar. Dugði rafmagnið vel
frá Borgarnesi í Stykkishólm (99
km). Bíllinn var í hleðslu í Breiða-
fjarðarferjunni Baldri í þrjá klukku-
tíma. Er ferjan kom að Brjánslæk
var ekið í Flókalund (6 km) og hlaðið
í rúma klukkustund á tjaldstæðinu
þar. Að þeim tíma liðnum var ekið
yfir Dynjandisheiði (500 m.y.s.) og í
Mjólkárvirkjun (36 km) og þar hlað-
ið í tæpa klukkustund. Dugði það
rafmagn til Þingeyrar (30 km), en
ekki meira en svo. Þar fékkst nóg
rafmagn fyrir ferðina til Ísafjarðar
(45 km) sem gekk fljótt og vel.
Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson
Í Baldri Jón Jóhann stingur í samband og Jónas fylgist með.
„Rafmögnuð ferð“
Óku fyrstir á rafbíl til Ísafjarðar
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Guðlaugur Þór Þórðarson alþingis-
maður ræddi um skiptingu Reykja-
víkurkjördæmanna í fyrirspurna-
tíma á Alþingi í vikunni.
Guðlaugur Þór, sem er 4. þing-
maður Reykjavíkurkjördæmis suð-
ur, sagði í upphafi að hann teldi að
skipting Reykjavíkur í tvö kjör-
dæmi „hafi í sjálfu sér ekki verið
góð hugmynd,“ eins og hann orðaði
það.
Gamalgrónum og nýjum
hverfum er nú skipt upp
„Þetta gerir það t.d. að verkum
að gamalgrónum hverfum eins og
Vesturbænum og Hlíðunum og svo
nýrri hverfum eins og Grafarholtinu
er skipt upp í tvö. Ég held að full-
yrða megi að hinn almenni Reykvík-
ingur hafi ekki mikla tilfinningu fyr-
ir því hvaða þingmenn eru fyrir
hans kjördæmi en eins og við þekkj-
um er því skipt í Reykjavík norður
og Reykjavík suður,“ sagði þing-
maðurinn.
Hann sagðist velta þessu fyrir sér
vegna þess að honum hefði fundist
vera lítil umræða um málefni
Reykjavíkur í aðdraganda kosninga
og almennt á Alþingi.
Tók Guðlaugur Þór samgöngu-
málefni sem dæmi. Áhugasvið fólks
skiptist svolítið eftir því hvort það
býr í efri hluta borgarinnar, austari
hlutanum, eða vestur frá.
Ólöf Nordal innanríkisráðherra
var til svara. Hún tók undir það með
fyrirspyrjanda að eftir á að hyggja
hefði ekki verið skynsamlegt að
skipta Reykjavík eins og gert var.
„Hvers vegna var Reykjavík bara
ekki höfð þá í heilu lagi?“ spurði
ráðherrann.
Breyta þarf lögum
Ólöf sagði að fyrirkomulagið hefði
verið með þessum hætti frá 2000 en
það er byggt á ákvæðum stjórn-
arskipunarlaga nr. 77/1999, um
breytta kjördæmaskipan. Sú skipan
var í öllum meginatriðum í sam-
ræmi við aðaltillögur nefndar sem
unnið hafði að undirbúningi málsins.
Ekki væri hægt að óbreyttum
lögum að skipta Reykjavíkurborg í
tvö kjördæmi og draga línuna frá
norðri til suðurs.
„Hitt er annað mál að tæknilega
ætti að vera hægt að skipta Reykja-
víkurborg í vestur- og austurkjör-
dæmi þannig að kjósendur í hvoru
þeirra yrðu nokkurn veginn jafn
margir stæði vilji Alþingis til þess.
Sem dæmi má taka að ef lína yrði
dregin eftir Reykjanesbraut og út í
Elliðaárósa mundu samkvæmt upp-
lýsingum frá Þjóðskrá Íslands rúm-
lega 64.000 íbúar lenda vestan meg-
in línunnar en rúmlega 59.000 að
austanverðu,“ sagði Ólöf Nordal.
Guðlaugur Þór sagði í svari við
ræðu Ólafar að hann hefði viljað
opna á þessa umræðu. „Frá því að
ég gerði það hef ég fengið mjög
sterk viðbrögð. Fólki hefur fundist
mjög rökrétt að breyta þessu eins
og ég er að leggja hér til, í austur/
vestur, af þeim ástæðum sem ég
nefndi,“ sagði Guðlaugur.
Gríðarlega stór kjördæmi
Ólöf Nordal gerði landsbyggðar-
kjördæmin einnig að umtalsefni.
„Ég þekki það sjálf sem fyrrverandi
þingmaður í Norðausturkjördæmi
að við erum með alveg gríðarlega
stór landsbyggðarkjördæmi. Það er
líka vandi fyrir fulltrúa landsbyggð-
arinnar að fara um þessi feikilega
stóru kjördæmi og hitta kjósendur.
Mér finnst ósköp eðlilegt að með
reglulegu millibili sé það rætt hvort
við séum með þá kjördæmaskipan
sem við viljum hafa eða hvort gera
eigi á henni einhverjar tilteknar
breytingar,“ sagði Ólöf Nordal inn-
anríkisráðherra.
Skiptingu Reykjavíkur breytt?
Tæknilega ætti að vera hægt að skipta Reykjavíkurborg í vestur- og austurkjördæmi
Morgunblaðið/Eggert
Stokkið í Elliðaár Mögulegt er að skipta Reykjavíkurkjördæmi í austur og
vestur með því að draga línu eftir Reykjanesbraut og út í Elliðaárósa.