Morgunblaðið - 01.09.2016, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 01.09.2016, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2016 Frá morgni líkama og sál fyrir alla fjölskylduna í þínu hverfi t i l kvölds Sími: 411 5000 • www.itr.is Fyrir líkama Laugarnar í Reykjavík Ný rannsókn hefur leitt í ljós að afrískir skógarfílar, sem eru í út- rýmingarhættu, eiga miklu færri afkvæmi en talið var og að það tæki þá tæpa öld að fjölga sér nógu mik- ið til að þeir yrðu jafnmargir og ár- ið 2002 ef yfirvöldum tækist að stöðva ólöglegar veiðar sem hafa stuðlað að mikilli fækkun fílanna. Skógarfíllinn er mun minni og dekkri en afríski gresjufíllinn. Skögultennur skógarfílsins eru beinni, vaxa niður og geta orðið svo langar að þær nái niður á jörðu, ólíkt skögultönnum gresjufílsins sem eru framstæðari. Skógarfílar lifa í láglendisregnskógum í Ka- merún, Mið-Afríkulýðveldinu, Vestur-Kongó, Gabon og Austur- Kongó. Talið er að skógarfílar hafi verið vel á aðra milljón þegar þeim tók að fækka, að sögn George Wittemyer, aðstoðarprófessors við ríkisháskóla Colorado og meðhöfundar skýrslu um rannsóknina. Fækkaði um 65% Í skýrslunni kemur fram að skógarfílum fækkaði um 65% á ár- unum 2002 til 2013. Talið er að þeir hafi verið um 500.000 árið 1993 og um 100.000 árið 2013. Fækkunin er rakin til ólöglegra veiða og skógar- eyðingar. Veiðiþjófarnir selja kjöt- ið og skögultennurnar, eða fílabein- in. Þekking vísindamanna á skógar- fílum hefur verið miklu minni en á gresjufílum vegna þess að erfiðara er að stunda rannsóknir í regn- skógunum en á gresjum Afríku. Rannsóknin leiddi í ljós að skógarfílar eiga miklu færri af- kvæmi en gresjufílar. Skógarfílkýr verður yfirleitt kynþroska um tutt- ugu ára gömul og ber kálfi á fimm eða sex ára fresti. Frænkur hennar á gresjunum verða oftast kyn- þroska aðeins tólf ára gamlar og bera á þriggja eða fjögurra ára fresti. Vísindamennirnir segja að skógarfílar geti svo fá afkvæmi að það taki þá a.m.k. 90 ár að verða jafnmargir og þeir voru árið 2002 ef hægt verður að stöðva ólöglegu veiðarnar. Skógarfílar eru mjög mikilvægir fyrir vistkerfi regnskóganna. Þeir sjá m.a. um að dreifa fræjum margra trjátegunda sem taka til sín koltvísýring úr andrúmsloftinu. bogi@mbl.is Heimild:WWF/NationalGeographic/Elephantdatabase.org Þekkt búsvæði fíla Hugsanleg búsvæði Kamerún Mið-Afríku- lýðveldið Austur-Kongó Gabon V-Kongó Lönd þar sem skógarfílar eiga heimkynni 1993 2013 500.000 100.000 Áætlaður fjöldi Er minni en afríski gresjufíllinn Skógarfíllinn í Afríku Skógarfíll Fjölga sér miklu hægar en talið var  Ný rannsókn á skógarfílum í Afríku Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Öldungadeild þingsins í Brasilíu sam- þykkti í gær að svipta Dilmu Rouss- eff embætti forseta landsins vegna ásakana um að hún hefði gerst sek um lögbrot. Þar með lauk þrettán ára valdatíma Verkamannaflokksins, sem hefur átt undir högg að sækja vegna efnahagsóstjórnar og spilling- armála. Dilma Rousseff var kjörin forseti Brasilíu, fyrst kvenna, í október 2010 eftir að Luiz Inacio Lula da Silva hafði valið hana sem eftirmann sinn. Hún var ákærð til embættismissis fyrr á árinu fyrir að hagræða ríkis- reikningum í því skyni að leyna mikl- um fjárlagahalla áður en hún var endurkjörin forseti í mjög tvísýnum kosningum árið 2014. Hún neitar sök og segir embættissviptinguna jafn- gilda valdaráni. Til að svipta forsetann embættinu þurftu tveir þriðju öldungadeildar- innar, eða 54 þingmenn, að sam- þykkja það. Svo fór að 61 þingmaður greiddi atkvæði með embættissvipt- ingunni og tuttugu á móti. Lula í forsetaframboð? Michel Temer, sem tók við forseta- embættinu tímabundið í maí þegar Rousseff var ákærð, á að gegna því út kjörtímabilið sem lýkur 1. janúar 2019. Temer hefur verið leiðtogi mið- hægriflokksins PMDB í fimmtán ár en nýtur ekki mikillar lýðhylli. Flokkurinn hefur lengi verið í odda- stöðu á þinginu og verið þekktur fyrir að haga seglum eftir vindi til að auka pólitísk áhrif sín. Temer hefur nú fært stjórnina til hægri í efnahags- málum og nýtur stuðnings frammá- manna í viðskiptalífinu en margir fréttaskýrendur efast um að hann hafi burði til að knýja fram þær efna- hagsumbætur sem hann hefur lofað. Þrátt fyrir embættissviptinguna samþykkti öldungadeildin ekki að banna Rousseff að gegna opinberu embætti næstu átta árin eins og búist hafði verið við. Hugsanlegt er því að stjórnmálaferli hennar sé ekki lokið. Rousseff hefur ekki verið sökuð um að þiggja mútur eða draga sér opinbert fé. Hún er hins vegar sögð hafa reynt að hindra rannsókn á spill- ingarmálum, meðal annars mútu- greiðslum í tengslum við ríkisolíufyrirtækið Petrobras, stærsta fyrirtæki landsins. Rousseff er á meðal þeirra sem eru talin bera meginábyrgð á spillingunni vegna þess að hún var stjórnarformaður Petrobras á árunum 2003 til 2010 þegar mútugreiðslurnar keyrðu um þverbak. Forveri hennar í forsetaembætt- inu, Lula da Silva, hyggst bjóða sig fram í næstu forsetakosningum en á yfir höfði sér ákæru fyrir spillingu og tilraun til að hindra rannsókn á mútumálum Petrobras. AFP Valdarán? Dilma Rousseff í forsetahöllinni í Brasilíuborg eftir að hún var svipt forsetaembættinu í gær. Hún sagði að Verkamannaflokkurinn myndi komast aftur til valda í landinu og sakaði andstæðinga sína um valdarán. Rousseff svipt emb- ætti forseta Brasilíu  Var þó ekki bannað að gegna opinberu embætti næstu árin Nýr kafli hófst í bættum sam- skiptum Bandaríkjanna og Kúbu í gær þegar reglulegt farþegaflug milli landanna hófst að nýju eftir meira en hálfrar aldar hlé. Vél flug- félagsins JetBlue lenti með 150 far- þega á flugvelli í borginni Santa Clara á Kúbu um klukkustund eftir flugtak frá Fort Lauderdale á Flór- ída í fyrsta áætlunarfluginu milli landanna frá árinu 1961. Öllu áætl- unarflugi milli landanna var þá hætt vegna deilna ríkjanna í kalda stríðinu eftir að kommúnistar kom- ust til valda á Kúbu árið 1959. Að- eins leiguflugvélar hafa flogið á milli ríkjanna frá 1979. Gert er ráð fyrir að alls verði farnar um 110 flugferðir á dag milli ríkjanna. Af um 3,5 milljónum ferðamanna sem komu til Kúbu á síðasta ári voru um 161.000 frá Bandaríkjunum, um 77% fleiri en á árinu áður. Búist er við bandarísk- um ferðamönnum fjölgi enn meira á næstu árum. Bætt samskipti Bandaríkjanna og Kúbu Fyrsta áætlunarflugið í meira en hálfa öld AFP

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.