Morgunblaðið - 01.09.2016, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 01.09.2016, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2016 ✝ Hanna Sigurð-ardóttir fædd- ist í Reykjavík 27. mars 1952, yngst þriggja systra. Hún lést 24. ágúst 2016 á líknardeild Landspítalans í Kópavogi eftir erf- iða baráttu við krabbamein. Foreldrar henn- ar voru Kolbrún Einarsdóttir fiskvinnslukona, f. 1918, d. 2003, og Sigurður Hannesson viðskiptafræðingur, f. 1921, d. 1983. Elst þeirra Hanna fluttist ásamt fjöl- skyldu sinni til Kanada ung að aldri og bjó þar í um sex ár. Kom til baka um tíu ára ald- urinn og bjó mestan part af sínu lífi í Reykjavík. Hanna vann við ýmis störf um ævina, frá ræstingum til sjómennsku. Lauk stúdentsprófi frá Fjöl- brautaskólanum í Breiðholti ár- ið 1994. Hóf svo nám við Há- skóla Íslands og útskrifaðist úr lagadeild árið 2001. Síðustu tólf ár ævi hennar starfaði hún sem fulltrúi hjá Sýslumann- inum í Reykjavík ásamt að sinna fjölmörgum sjálfboða- liðastörfum, þar á meðal hjá Samhjálp, SÁÁ og Rauða krossinum. Úför Hönnu fer fram frá Fíladelfíu-kirkjunni í dag, 1. september 2016, og hefst at- höfnin klukkan 13. systra var Sjöfn Sigurðardóttir, f. 1942, d. 2011, og Guðlaug Sigurð- ardóttir, f. 1947. Hanna átti sjálf fjögur börn, þau Kristján Þór, f. 1968, Sigurð Frey, f. 1982, Bjarndísi Hrönn, f. 1984, og Tanyu Kristrúnu, f. 1986. Barnabörn Hönnu voru fjögur talsins, þau Styrmir Þór, Kolbrún París, Hanna Mist og Elías (fæddist andvana 2016). Elskulega móðir okkar er nú fallin frá og hennar verður sárt saknað. Við hér samankomin að gera það sem okkur finnst hvað erfiðast, að kveðja móður okkar. Veikindi hennar bar brátt að og ekkert okkar undirbúið fyrir þann erfiða tíma sem framund- an var og er. Þrátt fyrir veik- indi hennar sýndi hún ótrúleg- an styrk, æðruleysi og samkennd við erfiðar aðstæður og var stutt í húmor og gleði. Hún var okkur ekki síður mik- ill styrkur í veikindum sínum. Var það lýsandi dæmi hvernig hún lifði, reyndi ávallt að sýna öðrum styrk þrátt fyrir eigin erfiðleika og áföll. Kenndi okk- ur að gefast aldrei upp og var baráttukona fram á síðustu stundu. Mamma fór eigin leiðir og var engri lík. Dugnaður hennar var óbilandi, og kláraði nám ein með öll sín börn. Var mikill dýravinur og mátti lítið aumt sjá. Strax á unga aldri tók hún að sér heimilislaus dýr, móður sinni til mæðu. Sýndi það hversu stórt hjarta hún hafði. Mamma tók að sér þá sem minna máttu sín, var móðir fyr- ir fleiri en okkur, þar sem hún tók að sér vini okkar og var heimili hennar opið þeim sem þurftu á að halda. Vann sjálf- boðavinnu og nýtti menntun sína til aðstoðar í m.a. kvenna- ráðgjöfinni, á meðferðarheim- ilum og sjálfboðastarf hjá Rauðakrossinum. Mömmu féll aldrei verk úr hendi. Vann við fiskvinnslu, stundaði sjómennsku og ýmis verslunarstörf og skúraði sig í gegnum námið eins og hún orð- aði það sjálf. Að námi loknu opnaði hún lögmannsstofu í Reykjavík, en fór svo að vinna hjá Sýslu- manninum í Reykjavík og vann þar til æviloka. Hún var mikil húsmóðir, dugleg heima við og var listakokkur. Eyddi miklum tíma í garðinum, sá um flest viðhald eigna sinna og reyndi allt sjálf. Þegar hún keypti sér nýja eign reif hún út eldhúsið og baðið, endurinnréttaði ásamt því að flísaleggja mála o.fl. Hún hafði ýmis áhugamál og fékk margar dillur í gegnum tíðina. Stundaði hestamennsku af kappi um tíma, var mikið náttúrubarn og ræktaði m.a. jurtir, bjó til krem, sína eigin heilsusafa og bakaði eigið brauð. Mamma fór í reikiskóla og lagði stund á tarot-lestur. Hafði mikinn áhuga á yfirnáttúrlegum fyrirbærum og þótti næm á þann heim. Ein af uppáhalds af- þreyingu hennar var að horfa á sönn sakamál og hrollvekjur. Það er erfitt að horfast í augu við það að þú sért farin. Lífið verður ekki það sama án þín. Allt sem þú kenndir okkur og varst okkur. Allar góðu stund- irnar, ferðalögin, kókkvöldin og fleira. Elskum þig. Meira: mbl.is/minningar Kristján Þór, Sigurður Freyr, Bjarndís Hrönn, Tanya Kristrún. Í dag kveðjum við kæra sam- starfskonu og vinkonu eftir stutta sjúkdómslegu. Það var einungis fyrir tæpum þremur mánuðum sem Hanna kvaddi samstarfsfólk- ið til að leita sér lækninga, sagðist ekki verða lengi í burtu og síst óraði okkur fyrir að hún kæmi ekki aftur. Hún sendi skilaboð um það sem þurfti að gera í hennar málum og hvað hún ætlaði sjálf að gera þegar hún kæmi til baka. Viðskilnaðurinn við verkefnin og skilaboðin sem hún sendi voru þó með ákveðnum und- irtón og ekki laust við, eftir á að hyggja, að þar hafi leynst grun- ur um annað en sýndist. Kraftur og dugnaður ein- kenndi Hönnu alla tíð, það gust- aði um hana á vinnustaðnum og aldrei lognmolla í kringum hana. Húmorinn og glettnin ein- kenndu hana og það var gott og gaman að hlæja með Hönnu. Sumir samstarfsmenn kynntust þessu fram undir hið síðasta og fengu frá henni sendingar sem báru þess vitni – þú skilur hvað við er átt Hanna. Áhuginn fyrir þeim verkefn- um sem hún sinnti hverju sinni leyndi sér ekki, hún gekk til verka sinna af miklum dugnaði og vildi helst alltaf hafa hreint borð, átti til að ganga nærri sér við vinnu. Sjálf sagðist hún þess vegna helst þurfa að láta reka sig heim í lok dags. Hanna fór ekki leynt með væntumþykju sína til vinnufélaga og vinnustaðarins, þar leið henni vel. Í sjúkdóms- legunni leyndi það sér heldur ekki, hún var fram á síðasta dag að fylgjast með og í raun að fylgja eftir verkefnum. Hanna las hlutina á sinn hátt og var ekkert feimin við að segja þá eins og þeir komu henni fyrir sjónir, hafði sterkar skoðanir og kom hreint fram. Hún hikaði ekki við að gagn- rýna það sem henni fannst að mætti betur fara en lét á sama hátt í ljós það sem henni þótti vel gert, var hreinskilin og mað- ur vissi alveg hvar maður hafði hana, ef hún var ekki sammála fór það ekki framhjá neinum. Í lífsins ólgusjó gefur oft á bátinn. Það tók oft í stýrið hjá Hönnu þessari smágerðu, fín- legu og fallegu konu. Hún var hörð af sér og afstaða hennar til lífsins einkenndist af því að ein- blína alltaf á það jákvæða, sagði oft að allir hefðu eitthvað til að þakka fyrir. Hún hugsaði fyrst og síðast um aðra, setti ekki sjálfa sig í fyrsta sæti. Síðustu vikurnar í lífi hennar mátti enn heyra þessa afstöðu hennar til lífsins, hún sagði eitthvað gott koma út úr þessum aðstæðum sínum. Hanna mín, þú mátt vita að vel verður hugsað um það sem þú baðst fyrir. Þegar ljóst var að hverju stefndi sýndi Hanna ótrúlegt æðruleysi, hún virtist ganga til móts við það sem koma skyldi á sama skipulagða hátt og ein- kenndi vinnubrögð hennar. Í spjalli var hún yfirveguð, var þrátt fyrir allt frískleg að sjá og heyra stuttu fyrir endalokin og sagðist sátt. Hún ræddi um undirbúning að brottför sinni og var líkt og hún undirbyggi flutning eða ferðalag. Elsku Hanna, vinnustaðurinn er tómlegur án þín og þín er sárt saknað, en ferðalagið er hafið – góða ferð, takk fyrir samfylgdina og Guð geymi þig. Börnum Hönnu, systur og aðstandendum öllum vottum við okkar innilegustu samúð. Fyrir hönd samstarfsfólks hjá Sýslumanninum á höfuð- borgarsvæðinu, Þuríður Árnadóttir. Hanna Sigurðardóttir HINSTA KVEÐJA Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn.) Elsku Hanna mín, það er erfitt að kveðjast en mamma hefur tekið vel á móti þér. Ég mun alltaf sakna þín, elsku systir. Blessuð sé minning ein- stakrar perlu. Þín systir, Guðlaug. Elsku Hanna, takk fyrir hjálpina í gegnum tíðina og takk fyrir allar góðu stund- irnar. Ég á eftir að sakna þín. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum.) Kjartan Hansson. ✝ Sigurbjörn Eð-vald Þorbergs- son fæddist 4. febr- úar 1943 á Hólma- vík. Hann lést á hjúkrunarheimil- inu Sunnuhlíð í Kópavogi 2. ágúst 2016. Foreldrar hans voru hjónin Guð- rún Sigurjónsdóttir húsfreyja, f. 1. október 1916, d. 9. október 1981, og Þorbergur Jónsson, f. 22. ágúst 1906, d. 5. júní 1983. Systkini hans eru: Erna Nielsen, júlí 1911, d. 15. febrúar 1968. Börn Sigurbjörns og Ernu eru: 1) Guðbergur S. Sigurbjörns- son, sambýliskona hans er Heið- veig Jónsdóttir, börn hans eru Magnús, Sara Lind og Sólrún Anna. 2) Elísabet H. Sigur- björnsdóttir gift Gunnari Vagn- syni, þau eiga börnin Ernu Guð- rúnu, Sigurbjörn Eðvald og Hrein Fannar. 3) Guðrún K. Sigurbjörnsdóttir, sambýlis- maður hennar er Erlendur Ein- arsson, börn hennar Íris Ósk, Unnur Lilja, f. 11. október 1989, d. 12. apríl 1990, Jón Karel, Anton Örn og Elísabet Ýr. 4) Erna Karen Sigurbjörnsdóttir, börn hennar eru Sólrún Lilja, Róbert Aron og Eiður Máni. Einnig eiga þau níu langafa- og ömmubörn. Sigurbjörn var jarðsunginn frá Hjallakirkju 11. ágúst 2016. f. 1934, Gísli Vil- berg, f. 1936, d. apríl 2011, Dag- mar, f. 1939, Hall- dór Hilmar, f. 1944, Hörður Steinar, f. 1947, Rannveig, f. 1950, Ágúst Rúnar, f. 1956. Sigurbjörn kvæntist Ernu Pet- ersen Kragh, f. 22. mars 1943, 14. des- ember 1961. Foreldrar hennar voru Klara Sigurðardóttir, f. 27. júlí 1909, d. 26. desember 1996, og Sigurður Meyvantsson, f. 27. Elsku pabbi, það erfiðasta sem ég hef gert um ævina var að kveðja þig. Hjartað mitt grætur yfir því að ég fái ekki að hitta þig aftur í okkar jarðneska lífi. Ég trúi því og treysti að við hittumst á ný þegar ég hef lokið mínu verkefni hér. Þann 2. ágúst kvaddi ég minn besta vin og mína fyrirmynd, minn kæra pabba, afa barnanna minna og langafa ömmustelp- unnar minnar. Elsku pabbi, minning þín lifir í hjörtum okkar. Englar Guðs þér yfir vaki og verndi pabbi minn vegir okkar skiljast núna, við sjáumst ekki um sinn. En minning þín hún lifir í hjörtum okkar hér því hamingjuna áttum við með þér. Þökkum kærleika og elsku, þökkum virðingu og trú þökkum allt sem af þér gafstu, okkar ástir áttir þú. Því viðmót þitt svo glaðlegt var og góðleg var þín lund og gaman var að koma á þinn fund. Með englum Guðs nú leikur þú og lítur okkar til nú laus úr viðjum þjáninga, að fara það ég skil. Og þegar geislar sólar um gluggann skína inn þá gleður okkur minning þín, elsku pabbi minn. Vertu góðum Guði falinn er hverfur þú á braut gleði og gæfa okkur fylgdi með þig sem förunaut. Og ferðirnar sem fórum við um landið út og inn er fjársjóðurinn okkar pabbi minn. Hvíldu í friði. Þín Erna Karen og fjölskylda. Sigurbjörn Eðvald Þorbergsson Útfarar- og lögfræðiþjónusta Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Snævar Jón Andrésson Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Við önnumst alla þætti undirbúnings og framkvæmd útfarar ásamt vinnu við dánar- bússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Ástkær sonur okkar, bróðir, mágur og unnusti, SIGURBJÖRN ÞÓRISSON, Bjarmalandi 12, Reykjavík, lést að heimili sínu 21. ágúst. Jarðsungið verður frá Bústaðakirkju föstudaginn 2. september klukkan 15. . Þórir Rafn Halldórsson, Sigurbjörg Sigurbjörnsdóttir, Svava Kristín Þórisdóttir, Hjörvar Högnason, Eva Sólveig Þórisdóttir, Jónas Thorlacius, Tinna Þórisdóttir, Vilhjálmur Þorsteinsson, Þórir Rafn Þórisson, Margrét Ósk Brynjólfsdóttir. Elskulegur bróðir okkar, ÞORSTEINN JÓNSSON, lést 24. ágúst. Útförin fer fram frá Seljakirkju laugardaginn 3. september klukkan 11. . Magnús Jónsson, Halldóra Jónsdóttir, Borghildur Jónsdóttir og fjölskyldur. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SVANDÍS HALLSDÓTTIR, Sóleyjarima 1, lést í faðmi ástvina á krabbameinsdeild LSH laugardaginn 27. ágúst. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 7. september klukkan 13. . Hrafnhildur Sverrisdóttir, Francisco Da Silva Chipa, Ragnar Sverrisson, Elsa Petra Björnsdóttir, Sigrún Ólafsdóttir, Skúli Lárus Skúlason, Ragna Sverrisdóttir, Guðmundur Árnason, Kolbeinn Sverrisson, Þóranna Halldórsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, GUÐRÚN S. VALGEIRSDÓTTIR, Sundstræti 34, Ísafirði, lést 23. ágúst á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði og verður jarðsungin frá Ísa- fjarðarkirkju laugardaginn 3. september klukkan 14. . Sesselja M. Matthíasdóttir, Kristján Hilmarsson, Ómar H. Matthíasson, Guðný Guðmundsdóttir, Ingibjörg M. Matthíasdóttir, Jökull Jósefsson, Auður K. Matthíasdóttir, A. Ómar Ásgeirsson, Vilhjálmur V. Matthíasson, Ásdís B. Pálsdóttir, Guðmundur F. Matthíasson, Júlía M. Jónsdóttir, Kolbrún Matthíasdóttir, Erlendur H. Geirdal, Guðrún S. Matthíasdóttir og aðrir aðstandendur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.