Morgunblaðið - 01.09.2016, Blaðsíða 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2016
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
„Þetta verður svolítið sérstakt þar
sem við erum að fara að spila fjór-
hent á píanó, maður heyrir það ekk-
ert mjög oft á tónleikum,“ segir pí-
anóleikarinn Þóra Kristín
Gunnarsdóttir en hún efnir til
fernra tónleika ásamt Anda Krye-
ziu, í hádeginu á morgun í Hofi á
Akureyri, 3. september í Laugar-
borg í Eyjafjarðarsveit, 4. sept-
ember á Eskifirði og 10. september
í Hannesarholti í Reykjavík. Sam-
kvæmt tvímenningunum er hug-
myndin á bak við tónleikana að tefla
saman fjölbreyttum verkum skrif-
uðum fyrir fjórhentan píanóleik.
Stærsta verkið sem verður flutt er
hin þekkta Fantasía í f-moll eftir
Franz Schubert. Þá verða einnig
leikin tvö léttari verk, Petite Suite
eftir Claude Debussy og Ma mére
l’Oye eftir Maurice Ravel.
Samskiptafærni mikilvæg
„Við munum spila þessi þrjú
þekktu verk sem eru öll samin fyrir
fjórhent píanó. Fantasía eftir Schu-
bert hefur verið í miklu uppáhaldi
hjá okkur báðum mjög lengi. Hún
er mjög dramatísk og hittir mann
beint í hjartastað með sínum inni-
legu og tilfinningaþrungnu tónum.
Svo langaði okkur að tefla á móti
andstæðum, tónlist í léttari kant-
inum. Þar erum við með Ravel og
Debussy,“ segir Þóra Kristín sem
er Akureyringur í húð og hár.
„Það hefur sína kosti og galla að
spila fjórhent. Það eru náttúrlega
tveir hljóðfæraleikarar að deila einu
hljóðfæri og það sést ekki oft. Mað-
ur þarf því að vera rosalega sam-
taka og sammála um allt. Nálægðin
er mjög mikil þar sem við sitjum
hlið við hlið og getum fundið fyrir
hreyfingum hvor annarrar. Það er
nauðsynlegt að við hlustum á hvor
aðra og séum opnar fyrir hugmynd-
um. Þetta snýst líka svolítið, eins og
allt annað samspil, um að vera með
góða samskiptahæfileika,“ segir
Þóra Kristín sem fluttist til Luzern
í Sviss árið 2011 til að stunda tón-
listarnám með Yvonne Lang sem
aðalkennara. Auk námsins í Sviss
sækir hún tíma til Katia Veekmans
í Hollandi, og hefur tekið þátt á
ýmsum Masterclass-námskeiðum
og meðal annars komið fram á tón-
leikum í Sviss, Svíþjóð og Belgíu.
Það var í Luzern sem hún kynntist
Kryeziu sem kemur frá Kosovo en
hún hefur einnig stundað háskóla-
nám í píanóleik og tónsmíðum í
Sviss frá árinu 2011. Kryeziu hefur
unnið ýmsar keppnir í heimalandi
sínu sem og á Ítalíu. Ásamt því að
njóta velgengni sem tónskáld kem-
ur hún reglulega fram á tónleikum.
Núverandi píanókennari hennar er
Konstantin Lifschitz.
Dúóið komið til að vera
„Þetta eru í rauninni fyrstu tón-
leikarnir okkar saman en við höfum
verið í sama náminu í um tvö ár.
Það hefur verið mjög áhugavert og
spennandi að fara í svona náið sam-
spil áns þess að hafa leikið saman
áður. Við erum mjög góðar vinkon-
ur og það hefur hjálpað mikið en við
erum hins vegar mjög ólíkir per-
sónuleikar. Hún frá Kosovo og kem-
ur með blóðheita sprengikraftinn
frá Balkanskaganum á meðan ég er
kannski rólegri og íhugulli týpa.
Það opnar ótrúlega margar dyr að
hafa þessa fjölbreytni en við höfum
að mestu þurft að mætast á miðri
leið,“ segir Þóra en hún kveður per-
sónuleik þeirra skína í gegn í hljóð-
færaleiknum.
„Við erum sem sagt í masters-
námi í Sviss, sem er blanda af pí-
anóleik og píanókennslu en Anda er
reyndar auk þess í tónsmíðanámi.
Hún er að gera það mjög gott sem
tónskáld og er mjög fjölhæf tónlist-
arkona. Við munum báðar halda út
að tónleikunum loknum og útskrif-
ast úr náminu í janúar. Ég hugsa að
við munum halda áfram þessu fjór-
henta dúói í framtíðinni, það var
allavega planið,“ segir hún að lok-
um.
Fjórhent og framandi
Þóra Kristín og Anda Kryeziu efna til fernra hljómleika
Leika verk eftir tónskáldin Schubert, Debussy og Ravel
Samspil Píanóleikararnir Þóra Kristín og Anda Kryeziu kynntust í Sviss þar sem þær stunda tónlistarnám.
Í tilefni Ljósanætur opnar Lista-
safn Reykjanesbæjar sýninguna
Framtíðarminni í listasal Duus
safnahúsa í dag kl.18. Um er að
ræða samsýningu fjögurra lista-
manna, þeirra Doddu Maggýjar,
Elsu Dórotheu Gísladóttur, Inga-
rafns Steinarssonar og Kristins
Más Pálmasonar.
„Tengingar við ræktun, plöntur,
kerfi og tíma eru áberandi í lista-
verkum þeirra en öll hafa þau á
einhverju skeiði lífs síns búið á
Suðurnesjum. Útkoman og miðl-
arnir sem þau vinna með eru þó af-
ar ólík. Á sýningunni verða m.a.
málverk, teikningar, gróður-
innsetning og vídeóverk,“ segir í
tilkynningu.
Sýningarstjóri er Inga Þórey Jó-
hannsdóttir og verður hún ásamt
listamönnum með leiðsögn um sýn-
inguna sunnudaginn 2. október kl.
15. Sýningin stendur til 6. nóv-
ember og er safnið opið alla daga
milli kl. 12 og 17.
Framtíðarminni á Ljósanótt
Gróður-innsetning Eitt verkanna sem sjá
má á sýningunni í Reykjanesbæ.
Skelin nefnist myndlistarsýning
sem Linn Björklund opnar í Veður
og vind á Hverfisgötu 37 í Reykja-
vík.
„Föt, klæði og efnisbútar sem
tengjast heimilinu á einhvern hátt
eru uppistöður veggja skeljarinnar.
Verkið fjallar um að tilheyra
ákveðnum stað og festa rætur.
Skelin er samanþjappaður hvers-
dagsleiki, ljóðrænn og nýstárlegur
arkitektúr,“ segir í tilkynningu.
Gestir og gangandi geta gægst inn í
lítið einkarými sem komið hefur
verið fyrir í glugganum. Sýningin
stendur til 1. október.
Skelin í Veður og
vind á Hverfisgötu
Guðað Gestir og gangandi geta gægst inn
í lítið einkarými í glugganum.
Nýjar vörur - Haust 2016
Faxafeni 14, 108 Reykjavík | Sími 551 6646 | Laura Ashley á Íslandi
MAMMA MIA – „Stórkostlegt“ HA Kastljós.
AUGLÝSING ÁRSINS – ★★★★ – M.G. Fbl.
MAMMA MIA! (Stóra sviðið)
Fös 9/9 kl. 20:00 Fös 23/9 kl. 20:00 Fim 6/10 kl. 20:00
Lau 10/9 kl. 20:00 Lau 24/9 kl. 20:00 Fös 7/10 kl. 20:00
Sun 11/9 kl. 20:00 Sun 25/9 kl. 20:00 Lau 8/10 kl. 20:00
Fös 16/9 kl. 20:00 Fös 30/9 kl. 20:00 Sun 9/10 kl. 20:00
Lau 17/9 kl. 20:00 Lau 1/10 kl. 20:00 Fim 13/10 kl. 20:00
Sun 18/9 kl. 20:00 Sun 2/10 kl. 20:00 Fös 14/10 kl. 20:00
Gleðisprengjan heldur áfram!
Blái hnötturinn (Stóra sviðið)
Lau 24/9 kl. 13:00 Frums. Lau 1/10 kl. 13:00 3. sýn Lau 8/10 kl. 13:00 5. sýn
Sun 25/9 kl. 13:00 2. sýn Sun 2/10 kl. 13:00 4. sýn
Verðlaunasaga Andra Snæs Magnasonar
Sending (Nýja sviðið)
Lau 10/9 kl. 20:00 Frums Fös 16/9 kl. 20:00 3. sýn Mið 21/9 kl. 20:00 5. sýn
Fim 15/9 kl. 20:00 2. sýn Lau 17/9 kl. 20:00 4. sýn
Nýtt verk eftir Bjarna Jónsson
Njála (Stóra sviðið)
Fim 29/9 kl. 20:00 Mið 5/10 kl. 20:00 Mið 12/10 kl. 20:00
Hlynur Hallsson og Gunnar Kr. Jón-
asson taka á móti gestum í Lista-
safninu á Akureyri í dag kl. 12.15 og
fræða þá um sýningu Gunnars,
Formsins vegna, sem var opnuð um
síðustu helgi. Sýningarstjóri er Joris
Rademaker.
„Myndlist Gunnars Kr. einkennist
af slagkrafti og þunga sem birtist
með fjölbreyttum hætti. Hann hefur
t.d. teiknað biksvartar blýsólir og
logskorið stálblóm. Undanfarin
misseri hefur Gunnar notað fislétt
og viðkvæmt hráefni til myndgerðar
– pappír – sem hann mótar, sker, lit-
ar og raðar saman uns tilætluðum
áhrifum er náð. Í
spennunni milli
formrænnar tján-
ingar listamanns-
ins annars vegar
og hráefnisins
sem hann notar
hins vegar, er
feiknarleg orka,“
segir í tilkynn-
ingu. Þar kemur
fram að myndlist-
arferill Gunnars spannar þriðjung
aldar og hefur hann víða komið við.
Hann býr og starfar að list sinni á
Akureyri. Aðgangur er ókeypis.
Leiðsögn um Formsins vegna í dag
Gunnar Kr.
Jónasson