Morgunblaðið - 01.09.2016, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2016
Suðurhrauni 4, Garðabæ | Furuvellir 3, Akureyri | Sími 575 800 | samhentir.is
Heildarlausnir
í umbúðum og öðrum rekstrarvörum
fyrir sjó- og landvinnslu
◆ KASSAR
◆ ÖSKJUR
◆ ARKIR
◆ POKAR
◆ FILMUR
◆ VETLINGAR
◆ HANSKAR
◆ SKÓR
◆ STÍGVÉL
◆ HNÍFAR
◆ BRÝNI
◆ BAKKAR
◆ EINNOTA VÖRUR
◆ HREINGERNINGAVÖRUR
Allt á
einum
stað
Allt fyrir eldhúsið
Allir velkomnir
Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi
Sími 540 3550 | progastro.is
Opið alla virka daga kl. 9–18.
Þú færð ASKO hjá Progastro
Þvottavél
A-W6444W
• Tromla úr stáli
• Tekur 8 eða 11 kg
• Ætluð í 10.000 tíma
eða 5.000 þvotta
Þurrkari
A-T756HPW
• Barkalaus
• Tekur 8
• Hljóðstyrkur 66db
• Orkunýting A+++
• Með varmadælu
Inspired by Scandinavia
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Úrval af lokuðum farangurskerrum
frá Ifor Williams
Sýningareintak á staðnum.
Minnihlutastjórn mið- og hægri-
flokksins Venstre í Danmörku hefur
lagt fram frumvarp til laga um að
heimila yfirvöldum að vísa burt
hælisleitendum á landamærunum ef
fjöldi þeirra snareykst eins og á síð-
asta ári.
Frumvarpið er hluti af efnahags-
áætlun ríkisstjórnarinnar til ársins
2025 þar sem minnihlutastjórn Lars
Løkke Rasmussen, forsætisráðherra
og leiðtoga Venstre, reynir að jafna
ágreining flokkanna sem styðja hana
á þinginu. Danski þjóðarflokkurinn
hefur krafist þess að innflytjenda-
löggjöfin verði hert en er andvígur
kröfu hægriflokkanna um skatta-
lækkanir.
Inger Støjberg, ráðherra innflytj-
endamála, sagði frumvarpið nauð-
synlegt til að auðvelda yfirvöldum að
takast á við mikla fjölgun hælis-
leitenda. „Þess vegna komum við
núna fram með neyðarhemil sem
gerir okkur kleift að hafna hælisum-
sækjanda á landamærunum,“ hefur
fréttaveitan AFP eftir ráðherranum.
Støjberg sagði að frumvarpið
byggðist á svipuðum lögum sem sett
voru í Noregi fyrr á árinu.
Um 3.800 manns sóttu um hæli í
Danmörku fyrstu sex mánuði ársins
og stjórnin gerir ráð fyrir því að
hælisumsóknirnar verði alls um
10.000 í ár. Talið er að umsóknirnar
verði meira en helmingi færri en á
síðasta ári þegar 21.225 manns sóttu
um hæli í Danmörku og tugir þús-
unda fóru yfir landamæri landsins til
að komast til Svíþjóðar.
„Þótt umsóknirnar séu færri í ár
en við gerðum ráð fyrir er talan
10.000 of há og við viljum lækka
hana,“ sagði Støjberg.
Danska stjórnin vill einnig tak-
marka rétt hælisleitenda til að fá fé-
lagslegar bætur og auðvelda yfir-
völdum að senda hælisleitendur
aftur til síns heima ef umsóknum
þeirra er hafnað. Ennfremur er
stefnt að því að auka öryggisgæslu á
gistiheimilum hælisleitenda. Fyrr á
árinu voru sett lög sem skertu rétt
hælisleitenda og heimila lögreglu að
gera peninga og hluti í fórum hælis-
leitenda upptæka ef verðmæti þeirra
fer yfir 10.000 danskar krónur, jafn-
virði 175.000 íslenskra.
Minnihlutastjórn Venstre tók við
völdunum í júní í fyrra og nýtur
stuðnings Danska þjóðarflokksins,
Íhaldsflokksins og Frjálslynda
bandalagsins á þinginu. bogi@mbl.is
24.752
Austurríki
7.384
571
1.142
640
7.554
29
3.793
361.743
Þýskaland
29.578
Frakkland
3.177 13.024Grikkl.
693
21.746
Ungverjal.
123
113
854
786
39.418 Ítalía
8.462
734
27
443
597
6.174
5.510 16.813
Bretl.
12.191
568.071
umsóknir
211 Króatía
328 Lettland
231 Eistland
262 Slóvenía
269 Slóvakía
Portúgal
291 Litháen Tékkland
Rúmenía
Malta
Kýpur
Lúxemborg
Írland
Pólland
11.365
20.163
13.366
21.225
Danmörk
32.271
Finnland
38.567
Bretland
38.695
Belgía
43.099
Holland
74.296
Frakkland
83.243
Ítalía
85.617
Austurríki
441.899
Þýskaland
174.430
Ungverjaland
156.459
Svíþjóð
1.259.331
umsóknir
Heimild: Flóttamannastofnun
Sameinuðu þjóðanna
Hælisleitendur í löndum Evrópusambandsins
jan. - júní2016
2015
Finnland
Danmörk
Spánn
Pólland
Belgía
Búlgaría
Holland
Búlgaría
Svíþjóð
Grikkland
Spánn
10.254
3.276
2.300
2.105
1.701
1.267
Slóvakía
896
Eistland
Litháen
Lettland
Rúmenía
Króatía
Slóvenía
Tékkland
Írland
Portúgal
Malta
Lúxemborg
Kýpur
1.245
Vill geta lokað landinu
fyrir hælisleitendum
Danska stjórnin hyggst herða innflytjendalöggjöfina
Donald Trump, forsetaefni repúblik-
ana í Bandaríkjunum, fór í stutta
heimsókn til Mexíkó í gær til að
ræða við forseta landsins, Enrique
Peña Nieto. Trump tilkynnti með
skömmum fyrirvara að hann hefði
þegið boð Peña Nieto um að heim-
sækja hann til að ræða samskipti
landanna og fundur þeirra var hald-
inn nokkrum klukkustundum áður
en Trump átti að flytja ræðu í Phoe-
nix í Arizona um málefni innflytj-
enda í Bandaríkjunum.
Ferðin til grannríkisins í suðri
kom mörgum á óvart vegna mjög
umdeildra ummæla Trumps um inn-
flytjendur frá Mexíkó og áforma
hans um að reisa múr á landamær-
um ríkjanna á kostnað Mexíkó. Peña
Nieto hefur hafnað því algerlega að
landið greiði fyrir múrinn og líkt
Trump við einræðisherrana Adolf
Hitler og Benito Mussolini.
Peña Nieto var kjörinn forseti
Mexíkó árið 2012 en fylgi hans hefur
snarminnkað vegna slæms efna-
hagsástands í landinu. Trump er enn
óvinsælli í Mexíkó vegna ummæla
hans um mexíkóska innflytjendur
sem hann hefur lýst sem eiturlyfja-
sölum og nauðgurum. Sú ákvörðun
Peña Nieto að bjóða Trump í heim-
sókn var því gagnrýnd harðlega í
Mexíkó.
AFP
Óvæntur fundur Trump (t.h.) með forseta Mexíkó, Enrique Peña Nieto.
Trump í óvæntri
heimsókn í Mexíkó