Morgunblaðið - 01.09.2016, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2016
Raðauglýsingar
Raðauglýsingar
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Hólaberg 52, Reykjavík, fnr. 205-1294 , þingl. eig. Sigtryggur A
Magnússon, gerðarbeiðandi Landsbankinn hf. Mjódd, mánudaginn
5. september nk. kl. 10:00.
Jórusel 4, Reykjavík 50% ehl., fnr. 205-7399 , þingl. eig. Linda Stefanía
De L´Etoile, gerðarbeiðandi Landsbankinn hf., mánudaginn 5.
september nk. kl. 11:30.
Keilufell 4, Reykjavík, fnr. 205-1575 , þingl. eig. Guðný Ingimarsdóttir,
gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf., mánudaginn 5. september nk. kl.
10:30.
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
31. ágúst 2016
Tilkynningar
Rangárþing ytra
Auglýsing um skipulags-
mál í Rangárþingi ytra
Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. Skipulags-
laga nr. 123/2010 eru hér kynntar
tillögur að eftirfarandi deiliskipulags-
áætlunum
Syðri-Rauðalækur, Rangárþingi ytra,
deiliskipulag
Deiliskipulagið nær yfir um 5,2 ha landspildu
úr landi Syðri-Rauðalækjar. Deiliskipulagið
tekur til byggingar allt að 13 gestahúsa,
breytingar á núverandi hlöðu í hesthús með
veitinga- og gistiaðstöðu og byggingar
geymsluhúsnæðis.
Tillögurnar liggja frammi hjá Skipulags-
fulltrúa, Suðurlandsvegi 3, Hellu og á
heimasíðu Rangárþings ytra, www.ry.is
Frestur til að skila inn athugasemdum
er til 13. október 2016.
Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið
sér til Skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra í
síma 488-7000 eða með tölvupósti
birgir@ry.is
Haraldur Birgir Haraldsson
Skipulagsfulltrúi Rangárþings ytra
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Hér í Vesturbænum er haustdagskráin að taka á sig
mynd. Opna vinnustofan alla daga kl. 9. Féagsvist alla mánudaga kl.
13. Útskurður byrjar 5. sept., tálgun 6. sept, bókaklúbbur 8. sept.,
postulín og myndlist 13., 14., og 15. sept. Fyrsta BINGÓ 23. sept. og
leikfimi 1. okt.
Árskógar 4 Smíðar með leiðbeinanda. kl 8.30-16.30. Helgistund
Seljakirkju kl. 10.30-11. Zumba Gold meðTanya kl. 10.30. Handavinna
með leiðbeinanda kl. 12.30-16. Línudans með Eddu Karls kl. 13.
Söngstund með Marý og félaga kl. 14-15. MS fræðslu- og félagsstarf
kl. 14-16.
Áskirkja Safnaðarfélag kirkjunnar verður með súpu, brauð og mola-
kaffi í hádeginu eftir messu sunnudaginn 4. september. Verð 700 kr.
Vonumst til að sjá sem flesta.
Boðinn Handavinnustofa opin 9-15, brids/kanasta kl. 13. Ath: Frá og
með 1. september er félagsmiðstöðin Boðinn opin alla virka daga frá
8.30-16.30, nema á föstudögum er opið til kl. 16. Kaffiterían er opin frá
kl. 9-16.
Bólstaðarhlíð 43 Kl. 9 myndlist, opin handavinnastofa, kaffi, dag-
blöd og hádegismatur.
Dalbraut 27 Handavinna kl. 8, stólajóga kl. 10.30, prjónakaffi á
vinnustofu kl. 14.
Garðabær Opið og heitt á könnunni í Jónshúsi frá kl. 9.30-16. Handa-
vinnuhorn í Jónshúsi kl. 13.
Gjábakki Bingó kl. 13.30, handavinna kl. 9, jafnvægisþjálfun kl. 13 og
14, létt hreyfing kl. 15. Dans með Sigvalda hefst 15. september, síð-
degisdans með Heiðari hefst 16. september, söngur með Ingvari
annan hvern miðvikudag hefst 21. september, postulín með Rannsý
hefst 12. september, bókband með Stefáni hefst 15. september, tré-
skurður með Friðgeiri hefst 22. september. Bingó FEBK annan hvern
fimmtudag kl. 13.30, hefst 1. september, lomber og kanasta alla
mánudaga kl. 13.
Gullsmári Handavinna kl. 9, ganga kl. 10, handavinna og brids kl. 13.
Hárgreiðslustofa og fótaaðgerðastofa á staðnum. Haustkynning
þriðjudaginn 6. september kl. 14. Allir velkomnir!
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og
spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, morgunleikfimi kl.
9.45, botsía kl. 10, matur kl. 11.30. Spiluð félagsvist kl. 13.15, kaffisala í
hléi. Fótaaðgerðir, hársnyrting.
Hæðargarður 31 Við hringborðið kl. 8.50, lífssöguhópur kl. 10.50,
Sönghópur Hæðargarðs kl. 13.30, línudans kl. 15. Síðdegiskaffi kl.
14.30. Alzheimerkaffi kl. 17. Allir velkomnir í Hæðargarð óháð aldri og
búsetu, nánar í síma 411-2790.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja/listasmiðja með leið-
beinanda kl. 9-12, morgunleikfimi kl. 9.45, bókabíllinn kl. 10-10.30,
upplestur kl. 11, opin listasmiðja með leiðbeinanda kl.13-16, ganga
með starfsmanni kl.14, tölvu-og snjalltækjakennsla kl. 15.30. Uppl. í
síma 411-2760.
Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 7.15. Billjard í Selinu kl.
10. Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Jóga salnum Skólabraut kl. 11.
Félagsvist í salnum á Skólabraut kl. 13.30. Skráning stendur yfir í
bókband sem til stendur að hefjist nú í september ef næg þátttaka
fæst. Upplýsingar og skráning í síma 893-9800.
Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Zumba Gold námskeið kl. 10.30 . í
Félagsmiðstöðinni Árskógum 4. LeiðbeinandiTanya. Danskennsla
hefst mánudaginn 12. sept. Kenndir verða samkvæmisdansar kl. 17–
18, línudans kl. 18–19 og samkvæmisdansar framhald kl. 19–20.
Kennslugjald 3000 kr. fyrir hver fjögur skipti, kennari Lizy Steinsdóttir.
Vesturgata 7 Föstudaginn 26. ágúst kl. 13-14 hófst söngstund við
flygilnn við undirleik Gylfa Gunnars, allir velkomnir. Kaffisala kl. 13-
14. Glerskurður (Tiffanys) hefst þriðju-daginn 6. sept. kl. 13-16, leið-
beinandi Vigdís Hansen. Enska framhald hefst föstudag-inn 16. sept.
kl. 10-12, leiðbeinandi Peter Vosicky.Tréútskurður byrjar í október,
leiðbeinandi Lúðvík Einars. Nánari upplýsingar og skráning á nám-
skeiðin í síma 535-2740. Allir velkomnir óháð aldri.
Smáauglýsingar 569
Geymslur
Ferðavagnageymsla
Borgarfirði
Geymum tjaldvagna, fellihýsi, hjól-
hýsi, báta og fleira í upphituðu rými.
Gott verð. Sími 499-3070.
Sólbakki.
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Iðnaðarmenn
Ýmislegt
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Hjólbarðar
Rýmingarsala á vöubíladekkjum
Matador, Sava, Fulda. Ýmsar stærðir.
13 R 22.5, 12 R 22.5, 11 R 22.5,
275/70 R 22.5
245/70 R 19.5 265/70 R 19.5
Kaldasel ehf., Dalvegur 16 b,
201 Kópavogur.
S. 5444333 og 8201070.
Húsviðhald
mbl.is
alltaf - allstaðar
✝ Rose Eagles,Rose Guðjóns-
son eða Rósa Vil-
hjálmsdóttir fædd-
ist hinn 6. mars
1925 í Stoke-On-
Trend í Englandi.
Hún lést af slysför-
um 9. júní 2016.
Foreldrar henn-
ar voru Annie Eag-
les og William Eag-
les.
Rose vann fyrst við postulín-
gerð sem var þá aðalatvinnu-
vegur á þessum slóðum. Hún
vann við að vera „Ladies Maid“
hjá hefðarkonu. Á meðan hún
vann hjá henni ferðaðist hún víðs
vegar um Evrópu.
Vegir Rose lágu svo til Íslands
2. ágúst 1951 til að vinna sem au-
pair við breska sendiráðið í
Reykjavík. Þar hitti hún tilvon-
andi eiginmann sinn, Guðberg
Óskar Guðjónsson, á fyrsta degi.
Þau giftu sig í Stoke-On-Trend
24. október 1956. Tæplega ári
síðar, 8. september 1957 fæddist
þeim sonur sem nefndur var Örn
Andrew, Margrét Annie fæddist
28. apríl 1960 og síðan fæddist
Grétar William 6. mars 1963 á af-
mælisdegi móður sinnar. Rose
og Guðberg Óskar tóku að sér
fósturbarn, Oddrúnu Ein-
arsdóttur í nokkur
ár.
Fyrstu hjúskap-
arárin bjuggu þau í
bragga á Melunum í
Reykjavík. Síðan
fluttu þau í Soga-
blett við Bústaðaveg
og síðar lágu leiðir
þeirra í B-götu 10 í
Blesugróf árið 1963.
Rose var heimavinn-
andi húsmóðir til
1967, þá byrjaði hún að vinna
sem kokkur og bústýra í breska
sendiráðinu að Laufásvegi 33 í
Reykjavík. Fjölskyldan flutti aft-
ur í Blesugrófina 1970. Stuttu
seinna hóf Rose störf í banda-
ríska sendiráðinu sem matráðs-
kona. Hún vann í sendiráðinu
þegar Nixon kom til Íslands til að
hitta De Gaulle og fékk þakk-
arkort fyrir þjónustu sína. Þegar
hún hætti að starfa hjá ameríska
sendiráðinu hóf hún störf hjá
heimilisþjónustunni í Reykjavík,
var hún þar þangað til hún lauk
störfum. Rose var þekkt fyrir að
ganga lengra í störfum sínum en
krafist var af henni. Hún var
einnig kærleiksrík og hjálpaði
börnum úti í Indlandi og Afríku.
Sendi þeim peninga og gjafir.
Útförin hefur farið fram í
kyrrþey.
Síminn hringir og ég tek upp
tólið: „Halló, þetta er Rose, lang-
ar ykkur að koma í „fish and
chips“ á laugardaginn“.
Mörg voru matarboðin sem við
fórum í full tilhlökkunar og þegar
Tinna og Telma dætur mínar voru
yngri fengu þær að bjóða vinkonu
með og þegar þær urðu eldri voru
kærastarnir velkomnir.
Eftir því sem að árin liðu þá
urðum við Rose vinkonur og hún
var eins og amma fyrir Tinnu og
Telmu.
Það var svo gott að koma til
þeirra Begga, ást og umhyggja lá
í loftinu og mikill húmor og lífs-
gleði.
Öllum leið vel nálægt Rose og
hún snerti hjörtu allra sem kynnt-
ust henni, var svo mannblendin og
kát og fylgdist vel með öllu og öll-
um, þjóðmálum hérlendis sem er-
lendis og þá sérlega málefnum
sem tengdust þeim sem minna
máttu sín.
Rose vildi láta gott af sér leiða
og styrkti m.a. munaðarlaus börn
og þó að hún væri sjálf komin í
hjólastól síðustu árin þá var hún
að aðstoða aðra vistmenn á Mörk
þar sem hún bjó. Hún var trygg-
lynd og frændrækin, gleymdi
engum afmælisdögum og vildi
gleðja alla með gjöfum og falleg-
um kveðjum.
Hún hugsaði vel um heilsuna,
mataræðið og hafði óbilandi trú á
vítamínunum sem hún tók inn
daglega og var minnugri en flest-
ir. Drakk te við hinum og þessum
kvillum eins og sönnum Breta
sæmir. Rose var nægjusöm og
þakklát manneskja en með ein-
dæmum viljasterk, skemmtileg
og lífsglöð og góð við dýr og
menn. En hún hafði samt skoð-
anir og skap sem betur fer og það
gerði hana að einstökum karakt-
er. Hún lifði viðburðaríkri ævi,
var „ladys maid“ og ferðaðist sem
slík með skipum og lestum um
alla Evrópu, starfaði í leirkera-
verksmiðju eftir stríð og við hót-
elmóttöku og þar æxluðust hlut-
irnir þannig að Rose kom til
Íslands með Gullfossi og hitti
Begga sinn, og það var ást sem
entist ævilangt.
Á Íslandi starfaði Rose fyrst
sem „au-pair“ en lengst af sem
kokkur í breska og bandaríska
sendiráðinu en seinni starfsárin
sín vann Rose við heimilishjálp og
eignaðist þar marga góða vini.
Þau Beggi höfðu gaman af að
ferðast hér heima og fóru út um
allt land og lentu í ýmsum æv-
intýrum því að í þá daga var vega-
kerfið með öðrum hætti en í dag.
Eins ferðuðust þau erlendis og þá
gjarnan að heimsækja ættingja
Rose í Bretlandi.
Ég er þakklát og glöð yfir að
hafa kynnst Rose og að börnin
mín hafi notið hennar við, hún var
hvunndagshetjan mín og fyrir-
mynd og hver samverustund með
henni gleðistund.
Ég brosi og verð glöð í hjarta
mínu þegar ég hugsa til hennar.
Minningin lifir.
Guðrún Bergmann
Reynisdóttir.
Rósa
Vilhjálmsdóttir
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar endurgjaldslaust
alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Smellt á Morgunblaðs-
lógóið í hægra horninu efst og við-
eigandi liður, „Senda inn minning-
argrein,“ valinn úr
felliglugganum. Einnig er hægt
að slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar en
á hádegi tveimur virkum dögum
fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein
berist áður en skilafrestur rennur
út.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt
að senda lengri grein. Lengri
greinar eru eingöngu birtar á
vefnum. Hægt er að senda ör-
stutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er
unnt að tengja viðhengi við síð-
una.
Myndir | Hafi mynd birst í til-
kynningu er hún sjálfkrafa notuð
með minningargrein nema beðið
sé um annað. Ef nota á nýja mynd
skal senda hana með æviágripi í
innsendikerfinu. Hafi æviágrip
þegar verið sent er ráðlegt að
senda myndina á netfangið minn-
ing@mbl.is og láta umsjón-
armenn minningargreina vita.
Minningargreinar