Morgunblaðið - 01.09.2016, Page 30

Morgunblaðið - 01.09.2016, Page 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2016 Laufey Rún Ketilsdóttir laufey@mbl.is „Þessi sýning er óbeint framhald af síðustu tveimur einkasýningum þar sem ég hef verið að gera tilraun með að búa til eitt heildrænt umhverfi sem áhorfandinn gengur í gegnum,“ segir Sigurður Guðjónsson, mynd- listarmaður, sem opnar sýningu á morgun kl. 17-19 í BERG Contem- porary við Klapparstíg 16 í miðbæ Reykjavíkur. Sýningar Sigurðar mynda sterka heild og verk hans hafa skýr höfund- areinkenni. Hann notar vídeó og hljóð, náttúruleg hljóð og hluti, vél- ar, manngert umhverfi og gömul tæki, af minimalískum aga en nær þó að draga fram í þessum viðfangs- efnum mörg lög af merkingu og tilfinningum. Svona lýsir Jón Proppé heimspekingur sýningu Sig- urðar í sýningarskrá. „Þetta er fyrsta einkasýningin mín hjá BERG og ég er að sýna ný verk sem öll eru unnin á þessu ári sérstaklega fyrir sýninguna,“ segir Sigurður en sýningin samanstandi af þremur vídeóverkum sem eigi í sam- tali í sýningarsalnum og séu hugsuð sem einn samfelldur hljóð- og mynd- heimur. Úrelt tækni með nýrri tækni „Ég er að skoða gamla tækni með nýrri tækni – eiginlega allt tækni sem er hætt að virka nema ég filma hana með nýjustu tækninni sem við höfum í dag og gefum henni nýja merkingu,“ segir hann en sýningin samanstendur af þremur verkum „AV Machine“, „Tape“ og „Well“. Þegar maður gengur inn á sýn- inguna heyrir maður fyrst hljóð: Rafsuð, vélrænt surg og í fjarska drýpur vatn. Svona lýsir Jón upphafi sýningarinnar en spurður um nán- ara inntak verka sinna vísar Sig- urður í texta Jóns sem sé byggður á samtali þeirra á milli. Í verkinu „AV Machine“ sjáum við sambyggt kassettutæki og sjónvarp þar sem skjárinn er litlu stærri en nafnspjald. Í sjónvarpinu sést bara „snjór“ eða raftruflanir þar sem tækið leitar en finnur enga útsend- ingu. „Þetta er enn eitt rafmagns- tækið sem hefur úrelst og hefur ekki lengur tilgang,“ skrifar Jón en bend- ir á að ef fólk einbeiti sér að mynd- inni gæti það lesið meira úr því sem það sér og heyrir. Verkið „Tape“ sýnir nærmynd af hljóðsnældu eða kassettu þar sem hljóðbandið vindist af annarri spól- unni yfir á hina. „Séð svona í nær- mynd fær þetta vélræna ferli meiri vídd,“ skrifar Jón en margt sé hægt að sjá út úr verkinu. „Dæmið er óleysanlegt vegna þess að það er vél- rænt en ófyrirsjáanlegt – og það er einmitt það sem heillar okkur.“ Að síðustu er það verkið „Well“ sem er vídeómynd skotin niður í steyptan, manngerðan brunn, af þeirri gerð sem við notum til að fá aðgang að holræsum og leiðslunum sem liggja undir fótum okkar. „Þar sem við horfum niður í brunninn sjáum við dagsbirtuna endurkastast af vatninu sem fyllir botninn og heyrum í dropunum sem falla niður í vatnið og óma í brunninum eins og kólfur í bjöllu,“ skrifar Jón um verk- ið. Ganga í gegnum skúlptúr „Það eru hljóð sem draga mig svo- lítið áfram eins og einhvers konar hljóðvirkni þessara tækja eða hreyf- ing, jafnvel einhver fúnksjón, sem ég er að horfa eftir í þessum hlutum sem mér finnst áhugavert að skoða,“ segir Sigurður en hann vinnur með aðra nálgun gagnvart nýju verkum sínum í samanburði við þau eldri. „Þau voru unnin meira í klippiferli í tímalínu þar sem ég var að safna brotum saman á tímalínu og vann þá línulega eða ólínulega frásögn sem var sýnd á einum skjá eins og kvik- mynd,“ segir hann en nú klippi hann verkið beint inn í rýmið og leiki sér með það hvernig áhorfandinn geng- ur í gegnum það svipað og um væri að ræða skúlptúr. „Þetta er því meiri innsetning heldur en eldri verkin mín.“ Sigurður verður með reglulegar sýningar í BERG á næstunni en hann vinnur nú í fyrsta skipti með galleríi hér landi. „Það er alveg nýtt fyrir mig að vinna með galleríi á Ís- landi en ég hef áður unnið með gall- eríi í Þýskalandi,“ segir hann en á móti kynni galleríið hann erlendis sem myndlistarmann. „Það er alveg frábært og heillandi við BERG að þeir eru að taka þetta alla leið – ekki tomma gefin eftir. Þeir styðja við bakið á listamanninum og hafa óbil- andi trú á því sem við erum að gera og það er mjög mikilvægt í svona samstarfi.“ Lög af merkingu og tilfinningum  Sigurður Guðjónsson opnar sýningu í BERG Contemporary á morgun Morgunblaðið/Ófeigur Tækni Sigurður Guðjónsson myndlistarmaður vinnur nú í fyrsta skipti hér á landi með galleríi. Upplifðu haustið á hálendi Íslands Gistihúsið Hrauneyjar og Hótel Háland eru aðeins í 150km fjarlægð frá Reykjavík 50% afsláttur af gistingu allar helgar í september Vöruhús veitingamannsins allt á einum stað Höfðabakka 9 | 110 Reykjavík | Sími 595 6200 | bakoisberg.is Opið virka daga kl. 8.30-16.30 Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves sendi frá sér tilkynningu í gær þar sem tilkynnt var um síðustu áttatíu og níu listamennina sem bætast við hátíðina sem fer fram 2. til 6. nóv- ember næstkomandi. Þar ber helst að nefna enska grime-rapparann Stormzy sem notið hefur gríðarlegra vinsælda síðustu tvö árin. Hann er hvað þekktastur fyrir lagið „Shut Up“ sem hefur verið skoðað hátt í fjörutíu milljón sinnum á vefsíðunni YouTube en þar að auki hafa lögin „Scary“, „Know Me From“ og „Hear Dis“ verið skoðuð hátt í tíu milljón sinnum hvert. Þá muna kannski margir eftir því þegar íþróttavöru- framleiðandinn Adidas fékk hann til að koma fram í myndbandi með knattspyrnumanninum Paul Pogba þegar það var verið að kynna þann síðarnefnda til leiks hjá Manchester United. Wesen, Endless Dark og Sóley Meðal annarra er- lendra listamanna sem kynntir voru til sög- unnar í gær eru Be- liefs frá Kanada, Gaika frá Bretlandi, Go Dark, Thunderpussy og Kelsey Lu frá Banda- ríkjunum og Pertti Ku- rikan Nimipäivät frá Finn- landi. Meðal heimamanna sem bættust við listann eru sóley, Ben Frost, Árstíðir, We- sen, Benny Crespo’s Gang, Berndsen, Cyber, End- less Dark, HAM, Högni og Herra Hnetusmjör, Stafrænn Há- kon, Lord Pusswhip og Landaboi$. Alls eru listamennirnir sem koma fram um tvö hundruð og tuttugu talsins en þar af eru sjötíu erlendar sveitir. Meðal sveita sem höfðu áður boð- að komu sína eru bandaríska ind- írokksveitin Warpaint, Santigold, PJ Harvey, Lush, Úlfur Úlfur, Sturla Atlas, Frankie Cosmos og Bára Gísladóttir. Miðasalan er á heima- síðu Iceland Airwaves og hvetja skipuleggjendur áhugasama um tryggja sér miða í tíma þar sem undanfarin ár hefur selst upp á hátíðina í byrjun september. Stormzy á Airwaves  89 listamenn bætast við hátíðina Iceland Airwaves  Alls munu um tvö hundruð og tuttugu koma þar fram Ljósmynd/Ella Mullins Rokk Bretinn PJ Harvey hefur not- ið mikilla vinsælda síðan árið 1988. Slagari Santigold hefur meðal ann- ars gefið út lagið „L.E.S. Art- istes“. Vinsæll Stormzy er meðal vinsæl- ustu rappara Bretlandseyja í dag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.