Fréttablaðið - 24.08.2016, Síða 12

Fréttablaðið - 24.08.2016, Síða 12
Frá degi til dags Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is lífið: Gyða Lóa Ólafsdóttir gydaloa@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is Halldór Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is Á síðasta kjörtímabili þrýsti vinstri stjórnin þeirri lagabreytingu í gegnum þingið að skylt yrði að fjölga borgarfulltrúum í Reykjavík við næstu borgarstjórnarkosningar úr 15 í að lágmarki 23 en í allt að 31. Borgarfulltrúar í Reykjavík eru nú 15 og hafa aldrei verið fleiri að einu kjörtímabili undanskildu. Á kjörtímabilinu 1978-1982 var ákveðið að fjölga borgarfulltrúum úr 15 í 21 en á næsta kjörtímabili ákvað borgarstjórn að fækka þeim aftur og hefur síðan ekki séð ástæðu til að fjölga þeim aftur. Engin ástæða er til að löggjafinn þvingi borgaryfirvöld til fjölgunar borgarfulltrúa og að stækka þannig kerfið. Nú eru um átta þúsund kjósendur að baki hverjum borgarfulltrúa og er það svipað hlutfall og tíðkast í höfuðborgum Norðurlandanna. Sigríður hefur því ásamt sjö öðrum þingmönn- um lagt fram og mælt fyrir frumvarpi á Alþingi sem afnemur þessa skyldu til fjölgunar borgarfull- trúa. Frumvarpið bíður þess nú að verða afgreitt úr nefnd til annarrar umræðu. Kjartan hefur ásamt öðrum borgarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins flutt tillögu um að borgarstjórn skori á Alþingi að breyta umræddu lagaákvæði þannig að borgar- stjórn hafi sjálfdæmi um hvort borgarfulltrúum verði fjölgað eða ekki. Í umsögn forsætisnefndar borgarinnar um frum- varp Sigríðar er lagst gegn því. Vinstri flokkarnir í borgarstjórn, Samfylking, Björt framtíð, Píratar og Vinstri græn, styðja þar með að borgarfulltrúum í Reykjavík verði fjölgað um a.m.k. 53 prósent. Það vekur sérstaka athygli að vinstri flokkarnir í borgarstjórn styðji með þessum hætti að Alþingi taki ráðin af borgarstjórninni. En þar sem um er að ræða útþenslu kerfisins þarf það ekki að koma á óvart að vinstri flokkarnir líti til fjölgunar borgar- fulltrúa með sérstakri velþóknun. Vinstri menn vilja fjölga borgarfulltrúum Sigríður Á. Andersen þingmaður Kjartan Magnússon borgarfulltrúi Það vekur athygli að vinstri flokkarnir í borgarstjórn styðji með þessum hætti að Alþingi taki ráðin af borgarstjórn. Innrettingar Fosshálsi 1 • 110 Reykjavík • Sími 577 1170 Fax 577 1172 • www.innx.is • innx@innx.is ALLT AÐ 50% AFSLÁTTUR AF HÁGÆÐA FATASKÁPAEFNI. Ekki missa af þessu tækifæri! Hægt að fá fataskápa í eik, hvíttaðri eik og hvítu háglans. Tilboð gildir út ágúst eða á meðan birgðir endast. Að byrja í skóla er stór og mótandi við-burður í lífi sérhvers barns. Tími sem við deilum öll í minningunni en upp-lifum þó hvert og eitt með ólíkum hætti. Hvernig okkur líður, hvernig okkur er tekið og ekki síst hvernig við upplifum okkur sjálf í þessu stóra og mótandi samfélagi sem grunnskólinn er hefur mótandi áhrif um ókomna tíð. Það liggur því mikið við fyrir skóla jafnt sem foreldra að vel takist til. Börnin sem eru að hefja skólagöngu sína eru auð- vitað jafn ólík og þau eru mörg. Sum full af sjálfstrausti og eftirvæntingu, önnur kannski lítil í sér og bangin við þennan stóra heim og allt þar á milli. En við, sem sendum börnin í skólann, tökum við þeim þar og viljum auðvitað öll að þeim líði sem best, hljótum að sjá sóma okkar í því að þau njóti þess atlætis sem þarf til að blómstra við þessar nýju og framandi aðstæður. Þannig er það ekki í dag því miður. Samtökin Barnaheill Save the Children á Íslandi standa um þessar mundir fyrir undirskriftasöfnun til þess að þrýsta á að réttur barna til gjaldfrjálsrar grunnmenntunar sé virtur á Íslandi. Staðreyndin er að kostnaðurinn við að barn hefji skólagöngu getur verið allt frá 400 kr. og upp í 22.000 kr. á hvert og eitt barn samkvæmt úttekt Sambands íslenskra sveitarfélaga. Þó svo einhverjum kunni að finnast að hér sé ekki um stórar upphæðir að ræða, jafnvel þó svo horft sé til hærri tölunnar, þá er það staðreynd að fyrir efnaminni fjölskyldur getur svo sannarlega munað um minni útgjöld. Í þessu er auðvitað fólgin gróf mismunum. Mismunun sem er ekki einvörðungu fólgin í mis- góðum efnahag foreldranna með tilheyrandi álagi á viðkomandi, heldur einnig í aðstæðumun barnanna. Mismunun sem getur haft áhrif á upplifun þeirra af því að byrja í skóla. Barn sem skynjar að þessi tímamót feli í sér fjárhags- legar byrðar fyrir heimilið og upplifir strax í upphafi skólagöngunnar efnahagslegt misrétti í samanburði við önnur börn nýtur þeirra daga ekki sem skyldi. Þessi gjaldtaka getur hæglega leitt til vanmáttarkenndar og óöryggis sem eru ekki góðir fylgifiskar inn í vonandi langt og farsælt skólastarf. Skólinn á að vera staður þar sem öll börn fá að njóta sín og blómstra á sínum forsendum en þessi smánarlega gjaldtaka fyrir það sem börnin þurfa til skólagöngunnar gengur þvert gegn slíkum markmiðum. Ísland er aðili að barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og samkvæmt honum eiga öll börn rétt á grunnmenntun án endurgjalds. Að bjóða börnin velkomin og rétta foreldrum þeirra reikning eða inn- kaupalista er augljóst brot á þeirri sátt. Brot sem ráða- menn hafa valið að lögfesta til þess að reyna að létta byrðina á þegar sveltu skólakerfi. Það er því full ástæða til þess að hvetja bæði Alþingi og sveitarstjórnir til þess að sjá til þess að látið verði af þessum ósóma. Hvetja til þess að það verði tryggt í raun að öll börn njóti sama réttar til náms án innkaupalista og reikninga og mæti til skólastarfsins sem jafningjar á jafningjagrunni. Innkaupalisti Þessi gjald- taka getur hæglega leitt til vanmáttar- kenndar og óöryggis sem eru ekki góðir fylgifiskar inn í vonandi langt og farsælt skólastarf. fámennt í stjórnarliðinu Fimm þingfundardagar eru þar til þingi verður slitið og boðað til kosninga. Ríkisstjórnarflokkarnir töldu það gríðarlega mikilvægt að halda áfram samstarfi inn í haustið til að ljúka mikilvægum málum eins og það var orðað á sínum tíma. Hins vegar voru sex þingmannamál á dagskrá í dag og stóru mál ríkisstjórnarflokk- anna hvergi sjáanleg. Í gær voru til að mynda sautján þingmenn stjórnarflokkanna sem mættu ekki til vinnu eða rétt tæplega helmingur þeirra. Til hvers að halda þing ef engin eru málin og menn mæta ekki í vinnuna? Viðreisn safnar fólki Pawel Bartoszek stærðfræðingur og Þorsteinn Víglundsson, fyrr- verandi framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, hafa ákveðið að ganga til liðs við Viðreisn og hyggja á framboð til Alþingis. Er nokkuð áhugavert að sjá að menn, sem beinlínis hafa verið virkir þátttakendur í Sjálfstæðisflokknum, skuli stökkva af vagni flokksins og ganga til liðs við evrópusinnaðan flokk Viðreisnar. Skal ósagt látið hvort þessar fréttir séu ástæða þess að fjármálaráðherra hefur verið einkennilega stuttur í spuna í viðtölum hingað til. Hins vegar verður erfitt fyrir Þorstein Víglundsson að berjast fyrir hag ungra barnafjölskyldna, rétt eftir að hann gagnrýndi hækkun fæðingarorlofs harðlega. sveinn@frettabladid.is 2 4 . á g ú s t 2 0 1 6 M I Ð V I K U D A g U R12 s K o Ð U n ∙ F R É t t A B L A Ð I Ð SKOÐUN 2 4 -0 8 -2 0 1 6 0 3 :5 0 F B 0 5 6 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A 5 3 -9 D 7 C 1 A 5 3 -9 C 4 0 1 A 5 3 -9 B 0 4 1 A 5 3 -9 9 C 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 5 6 s _ 2 3 _ 8 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.