Fréttablaðið - 24.08.2016, Page 24

Fréttablaðið - 24.08.2016, Page 24
Ingi Rúnar Eðvarðsson tók í sumar við stöðu deildarfor-seta viðskiptafræðideildar Háskóla Íslands. Enginn háskóli hefur á að skipa stærri viðskiptafræðideild en rúm- lega 1.400 manns voru við nám í deildinni síðastliðinn vetur. Nú í haust hefja rösklega 400 manns þar nám. Þar af eru 222 nemar í meist- aranámi en 210 í grunnámi. Ingi Rúnar settist niður með blaðamanni Markaðarins og sagði frá starfsemi deildarinnar, möguleikum við- skiptafræðinga á atvinnumarkaði og sýn sinni á íslenskt viðskiptalíf eins og það er í dag. Tækifæri eftir meistarapróf Ingi Rúnar segir þá sem ljúka meist- araprófi í viðskiptafræði í dag eiga ágæta möguleika á vinnumarkaði. En að B.Sc. próf sé fyrst og fremst góður grunnur. „Það er grunnur sem ekki veitir vinnu eftir námið en það er meira svona undanfari,“ segir Ingi Rúnar. Hann segir að atvinnumögu- leikarnir fari bæði eftir stöðunni á vinnumarkaði hverju sinni en líka því á hvaða sviði nemendur hafi menntað sig. „Við verðum vör við að þeir sem hafa lokið hjá okkur mannauðs- stjórnunarnámi og markaðsfræði fá ágætis störf hjá ýmsum fyrirtækj- um.“ Ingi Rúnar segir að þeir sem fara í meistaranám í fjármálum sæki helst í fjármálafyrirtækin en þeir sem fara í stjórnun og stefnumótun geti verið með mjög víðan grunn. Þeir geti farið í fyrirtæki um land allt og gerst millistjórnendur, verk- efnastjórar, gæðastjórar og síðan tekið að sér að stjórna fyrirtækjum af öllum stærðum og gerðum. „Þann- ig að það fer svolítið mikið eftir því á hvaða sviði þú ert búinn að mennta þig hvaða atvinnutækifæri bíða þín,“ segir Ingi Rúnar. „Almennt finnst manni eins og vinnumarkaðurinn sé að taka við sér,“ segir Ingi Rúnar. Þetta megi sjá í því að nemendur eigi auðveldara með að finna vinnu en áður og að aðsókn í viðskiptafræðinám og annað háskólanám sé að minnka. Fyrst eftir hrunið, þegar efnahags- lífið var í lægð, hafi aftur á móti margir sótt í háskólanám til að bæta stöðu sína. Þú ert í rauninni að segja að staða efnahagslífsins hafi áhrif á aðsókn að viðskiptafræðinámi? „Hún gerir það og hefur gert mjög lengi. Þegar kreppir að þá eru margir sem fara inn í námið og inn í háskólana til að bæta stöðu sína. Þegar hún batnar þá dregur aftur úr aðsókninni. Ég held að það sé þannig með alla við- skiptaháskólana. Ég er ekki búinn að kynna mér tölurnar en mig grunar að það sé niðurstaðan,“ segir Ingi Rúnar. Í tengslum við bankahrunið var mikið rætt um siðferði í viðskiptum. Hefur það haft áhrif ánámið? „Já, bæði hafa verið stofnuð ný nám- skeið, en síðan er þetta líka komið miklu meira inn í allar kennslu- bækur,“ segir Ingi Rúnar. Í öllum kennslubókum séu nú kaflar um viðskiptasiðferði og um stjórnar- hætti. „Það er orðið miklu meira um þetta fjallað og þetta er orðið hluti af náminu. Sem var alls ekki áður,“ segir hann. En bætir við að einnig sé fjallað meira um umhverfisábyrgð og samfélagslega ábyrgð. Ingi Rúnar segir að eftir banka- hrunið sé fólk orðið gagnrýnna á viðskiptalífið og viðteknar venjur og hefðir. Fólk sé ekki eins blint á það sem er að gerast í atvinnulífinu og það var áður. „Í skýrslu Rann- sóknarnefndar Alþingis var kvartað yfir því að fjölmiðlar og háskólar hefðu svolítið sofnað á verðinum og ég held að núna sé meiri gagnrýni.“ Hvernig horfir þú sjálfur á við- skiptalífið í dag? „Ég held að það sé mjög margt jákvætt að gerast. Skuldir ríkisins lækka eftir upp- gjörið. Það er hagvöxtur, það eru miklar breytingar, atvinnuleysið er að minnka. Og við sjáum að það eru ákveðin þáttaskil sem eru að eiga sér stað,“ segir Ingi Rúnar. Undirstöðu atvinnuvegirnir séu nú þrír; sjávarútvegur, áliðnaður og ferðaþjónusta og síðasta greinin hafi vaxið mjög hratt. Þurfum að horfa fram veginn Ingi Rúnar telur þó að Íslendingar verði að skoða betur hvert þeir ætli að stefna í atvinnulífinu. „Við erum að mennta mjög mikið af fólki í íslenskum háskólum en er það að nýtast í atvinnulífinu? Það er eitt af því sem ég held að við þyrftum að skoða betur.“ Hann bendir á að núna sé meginvöxturinn í bygg- ingageiranum og ferðaþjónustu. „Hvað eigum við þá að gera við alla þessa háskólaborgara sem virðast ekki nýtast þarna? Þarna virðist mér vera ástæða til að skoða frekar,“ segir Ingi Rúnar. Og bætir við að í framhaldinu þurfi Hagstofan og aðrir aðilar að skoða fólksflutn- inga úr landi, hverjir það eru sem Fleiri í framhaldsnámi en grunnnámi Rösklega 400 manns hefja nám í viðskiptafræði við Háskóla Íslands í haust. Fleiri eru í framhaldsnámi en grunnnámi. Forseti viðskiptadeildarinnar segir að áherslan á siðferði í viðskiptum, umhverfisábyrgð og samfélagslega ábyrgð hafi aukist eftir hrun. Ingi Rúnar Eðvarðsson bendir á að hagvöxtur sé drifinn áfram af byggingaframkvæmdum og ferðaþjónustu. Hann spyr hvað eigi að verða um háskólaborgarana. FRéTTablaðIð/GVa Jón Hákon Halldórsson jonhakon@365.is 222 nemendur hefja framhaldsnám núna í haust. 2 4 . á g ú s t 2 0 1 6 M I Ð V I K U D A g U R6 markaðurinn 2 4 -0 8 -2 0 1 6 0 3 :5 0 F B 0 5 6 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A 5 3 -B B 1 C 1 A 5 3 -B 9 E 0 1 A 5 3 -B 8 A 4 1 A 5 3 -B 7 6 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 5 6 s _ 2 3 _ 8 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.