Fréttablaðið - 24.08.2016, Side 38

Fréttablaðið - 24.08.2016, Side 38
Íslenska úrvalsvísitalan 1.705,87 -21,94 (1,26%) Miðvikudagur 24. ágúst 2016 Stjórnar - maðurinn @stjornarmadur fylgirit fréttablaðsins um Viðskipti og fjármál | Markað rinn Viðskiptavefur Vísis@VisirVidskiptiwww.visir.is vilja Samtök atvinnulífsins fá á tryggingagjaldið. Það myndi samsvara því að gjaldið lækkaði um samtals 18 milljarða króna. Samtök atvinnulífsins segja að þrátt fyrir lækkun gjaldsins dygðu tekjur af því til þess að standa undir hækkun fæðingarorlofs í allt að 600 þúsund krónur á mánuði eins og félagsmálaráðherra hefur lagt til. Samtök atvinnulífsins styðja það. 1,5% lækkun hagnaður var af starfsemi Vodafone á öðrum fjórðungi ársins. Það er 17% lækkun frá öðrum ársfjórðungi 2015. Tekjuaukningin nam 2% miðað við annan ársfjórðung 2015. EBITDA hagnaður nam 751 milljón og lækk- aði um 3% milli ára. Stefán Sigurðs- son forstjóri sagði í afkomutilkynn- ingu að reksturinn væri í samræmi við væntingar. 248 milljóna 22.8.2016 Aðild Færeyja að EFTA myndi styrkja samtökin, auka fjölbreytni í samstarfinu og skapa tækifæri fyrir frændur okkar og vini í Færeyjum. Með aðild gætu Færeyingar t.a.m. gengið inn í fríverslunarsamninga EFTA við 37 ríki utan samtakanna. Við sækjumst eftir enn nánara samstarfi við Færeyjar, enda fara hagsmunir landanna saman á margan hátt. Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra SH50-Fjórdálkur x 30-Auka-2 copy.pdf 1 15.8.2016 20:18 Fróðlegt hefur verið að fylgjast með þingmanninum Ögmundi Jónassyni í opinberri umræðu undanfarna daga. Hafi framganga hans verið hönnuð til þess að vekja athygli má segja að ætlunar- verkið hafi lukkast. Í leiðinni varð hann hins vegar uppvís að hræsni á háu stigi eins og ofsatrúarmönn- um af öllum gerðum og flokkum er svo tamt. Ögmundi hefur allan sinn feril verið launajöfnuður hug- leikinn. Það er gott og blessað og að mörgu leyti göfugt markmið. Nýjasta útspil hans í þeim efnum er að hvetja til lagasetningar sem takmarkar hæstu laun ríkis- starfsmanna þannig þau verði að hámarki þreföld laun hinna lægst launuðu. Nú er þetta út af fyrir sig ekki svo galin hugmynd þótt vissulega þurfi ríkið eins og aðrir að geta fengið til liðs við sig gott starfsfólk og borgað í samræmi við það. Varla eru það hins vegar gild rök að halda því fram að því hærri laun sem vinnuveitandi greiði því verri starfskraftur fáist líkt og Ögmundur gerði. Svona ummæli dæma þann sem mælir úr leik í umræðunni. Ef Ögmundur vill láta taka sig alvar- lega væri kannski réttara að hann afsalaði sér þeim ríkulegu eftir- launum sem hann hefur áunnið sér sem þingmaður og ráðherra og þekkjast hvergi annars staðar í atvinnulífinu. Samkvæmt Ögmundarlógík yrði hann þá sennilega betri starfskraftur fyrir vikið! Sósíalistinn og femínistinn Ögmundur lét þó ekki þarna við sitja heldur sakaði konur í stjórn- málum um að beita fyrir sig kyni sínu sér til framdráttar. Uppskar hann fyrir vikið skammir frá ung- liðahreyfingu síns flokks og varð að athlægi meðal annarra sem fylgjast með pólitík. Ögmundur er að sjálfsögðu yfirlýstur femínisti á tyllidögum. Í útvarpsviðtalinu góða sást þó líklega glitta í hans raunverulega hugarheim. Það er alls ekkert eins- dæmi í stjórnmálum að annað sé í orði en á borði, en fyrr má nú rota en dauðrota. Gallinn við pólitískan rétttrúnað er sá að lífið er ekki bara svart og hvítt. Einfaldar patentlausnir eru sjaldnast raunhæfar. Fólk sem ætlar að hafa vit fyrir öðrum þarf að vera með sitt á hreinu. Fæstir eru það. Breyskleiki Ögmundar er holl áminning um það. Bylur hæst í tómri tunnu 2 4 -0 8 -2 0 1 6 0 3 :5 0 F B 0 5 6 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A 5 3 -A 7 5 C 1 A 5 3 -A 6 2 0 1 A 5 3 -A 4 E 4 1 A 5 3 -A 3 A 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 5 6 s _ 2 3 _ 8 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.