Morgunblaðið - 25.10.2016, Síða 1

Morgunblaðið - 25.10.2016, Síða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 5. O K T Ó B E R 2 0 1 6 Stofnað 1913  250. tölublað  104. árgangur  BRÝNT AÐ SJÁ SIG EKKI SEM SJÚKLING HEIMUR VAFÞRÚÐNIS- MÁLA ÍSLENSKIR LISTA- MENN SÝNA Í NEW YORK DAGLEGT LÍF 12 ÁHRIF LISTAR 30MERGÆXLI RÆDD 4 Samstöðufundir í tilefni kvennafrídagsins voru haldnir víða um land í gær, í fimmta sinn frá árinu 1975. Fjölmennast var á Austurvelli, en þar kom m.a. fram að kon- ur hefðu að meðaltali 70,3% af vinnutekjum karla. Því var boðað til kvennafrís kl. 14.38, á þeirri mínútu þegar konur hætta að með- altali að fá tekjur samanborið við karla. Lögðu þúsundir kvenna því niður störf á þeim tíma. Árið 2010 voru störf lögð niður kl. 14.25. Var á það bent í yfirlýsingu BSRB sem lesin var upp á Austurvelli að með sama hraða tæki 52 ár að ná launajafnrétti. Krafa fundargesta var hins vegar ljós, að jafna launamun strax. Kynnt var framtíðarstefna um launajafnrétti á ráðstefnu í gær, þar sem m.a. kom fram að mun færri karlar störfuðu í hefðbundnum kvennastörfum hér en á hinum Norðurlandaríkjunum. »6 og 18 Krafa á fjöldafundi um tafarlaust launajafnrétti Morgunblaðið/Árni Sæberg Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Hinar miklu rigningar í október hafa reynst Landsvirkjun sannkölluð himnasending. Mikið innrennsli hefur verið í öll lón Landsvirkjunar, samkvæmt upp- lýsingum Magnúsar Þórs Gylfason- ar, yfirmanns samskiptasviðs Lands- virkjunar. Nýtt vatnsár hófst hjá fyrirtækinu 1. október og í meðalári er reiknað með að orkuverin byrji að nýta vatnið úr lónunum um það leyti. Í gær, 24. október, var niðurdráttur í miðlunum á vatnasvæðum Lands- virkjunar ekki enn hafinn; þvert á móti bættist enn í lónin. Það sem af er október hefur orkan í innrennsli til miðlunarlóna Lands- virkjunar verið um 78% yfir vænt- ingum miðað við sama tíma í meðal- ári, samkvæmt upplýsingum Magnúsar. Hálslón er enn fullt og hefur verið það síðan 20. ágúst. Því hefur runnið vatn á yfirfalli og myndað fossinn Hverfanda í rúma tvo mánuði. Það stendur nú í 625,64 metrum yfir sjávarmáli og rennur á yfirfalli við 625 m y.s. Framhjárennslið við Háls- lón í dag er 133 m3 á sekúndu, sem er mun meira en Fljótsdalsstöð notar núna, sem er 108 m3/sek. Minnkar líkur á skerðingu Þórisvatn hefur hækkað um heilan metra í október og er stutt í að það fyllist. Það stendur nú í 578,97 m y.s. og vantar aðeins 3 cm á að það fyllist, sem er við 579 m y.s. Þórisvatn miðl- ar vatni til virkjana á Þjórsársvæð- inu. Blöndulón hefur hækkað um hálf- an metra í október. Það stendur nú í 477,81 m y.s. og vantar aðeins 19 cm á að það fyllist, sem er við 478 m y.s. „Þessi staða minnkar líkur á því að takmarka þurfi framboð af skamm- tíma eða skerðanlegri orku síðar í vetur þótt ekkert sé hægt að fullyrða í þeim efnum,“ segir Magnús. „Þetta eru góð tíðindi fyrir Lands- virkjun en minnir okkur líka á hvað við höfum mikil tækifæri til að full- nýta auðlindina betur og finna leiðir til að nýta þessa orku betur í svona góðum árum,“ bætir hann við. Rennsli í miðlunarlón langt yfir væntingum  Rigningin í október er himnasending fyrir Landsvirkjun Ljósmynd/Landsvirkjun Búrfellsvirkjun Vonir standa til að virkjanir fái nægt vatn í vetur. Póst- og fjarskiptastofnun hefur ekki lagt dagsektir á 365 miðla þrátt fyrir að fyrirtækið hafi á eng- um tímapunkti uppfyllt útbreiðslu- skilmála sem það undirgekkst þeg- ar það tryggði sér einkarétt á mikilvægu tíðnisviði á fjarnetsþjón- ustu árið 2013, þ.e. fyrir 3G og 4G- netin. Samkvæmt útboðslýsingu bar fyrirtækinu að tryggja 98% út- breiðslu og uppbyggingu kerfisins fyrir árslok 2014 og 99,5% út- breiðslu fyrir árslok 2016. Enginn reki hefur verið gerður að því fram til þess að mæta þessum kröfum. Samkvæmt sömu útboðslýsingu áskilur PFS sér rétt til að leggja dagsektir á fyrirtækið að fjárhæð 100.000 krónur þar til útbreiðslu- kröfum verður náð. Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri PFS, segir að stofnunin hafi ákveðið að veita til- slakanir gagnvart fyrirtækinu þar sem það hafi lagt fram áætlanir um með hvaða hætti það hygðist standa við skilyrðin. Ákvörðun um fyrr- nefndar tilslakanir lá fyrir 30. des- ember síðastliðinn en þrátt fyrir það hefur 365 ekki enn hafist handa við uppbyggingu kerfisins. »16 365 slepp- ur undan dagsektum  Uppfyllir ekki skil- mála um útbreiðslu  Aðeins þrjú kúabú eru í lífrænni framleiðslu hér á landi og mun þeim líklega ekki fjölga á næstunni. Á sama tíma hefur eftirspurn eftir lífrænum vörum aukist mikið. „Það er stöðug aukning, við sem erum í þessu nú þegar höfum orðið að auka framleiðslu okkar til að geta svarað markaðnum og kælirinn hjá Bio-Bú er alltaf tómur,“ segir Krist- ján Oddsson, eigandi Bío-Bú; fram- tíð matvælaframleiðslu sé í lífrænni ræktun. »14-15 Segir framtíðina í lífrænni ræktun

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.