Morgunblaðið - 25.10.2016, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 2016
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Þetta er hámark ósvífninnar.
Þetta gera bara sálarlausir
menn,“ segir Karl Viðar Pálsson,
sem rekur bílaverkstæði í Mý-
vatnssveit. Komið var með nánast
ónýtan bílaleigubíl til hans og
beðið um viðgerð en hann treysti
sér ekki til að taka hann inn á
verkstæði sitt. Bíllinn verður
væntanlega seldur í varahluti.
Framendinn að detta af
Karl var beðinn um að gera við
bremsulausan bílaleigubíl. Þegar
leigutakinn kom með bílinn
morguninn eftir trúði Karl Viðar
varla sínum eigin augum. Bíllinn
er jeppi, yfir tuttugu ára gamall.
„Það er varla hægt að lýsa
þessu. Bíllinn var haugryðgaður.
Framendinn var að detta af hon-
um og annað frambrettið að rifna
upp. Rafgeymirinn var að fara
niður úr hvalbaknum út af ryði.
Svo var búið að setja límband yf-
ir óþverrann inni í brettunum,“
segir Karl. Hann segist ekki hafa
treyst sér til að setja bílinn á
bílalyftu í verkstæði sínu vegna
þess að hann óttaðist að hann
myndi detta í sundur þegar hon-
um yrði lyft.
Leigutakinn, ungur ástralskur
ljósmyndari, hafði tekið bílinn á
leigu tveimur dögum fyrr. Karl
hefur eftir honum að hann hafi
gengið frá leigunni á netinu.
Hann tók flugrútuna frá Kefla-
víkurflugvelli og á stoppistöð á
leiðinni hitti hann ungan mann
sem rétti honum lyklana, benti í
áttina til bílsins og lét sig svo
hverfa. Þetta var í myrkri og
leigutakanum gafst ekki kostur á
að skoða bílinn áður, eftir því
sem hann sagði Karli.
Ekki með bílaleigutryggingu
Karl segir að Ástralinn hafi
greitt 144 þúsund krónur fyrir
nokkurra daga leigu og hann
hafi hvorki haft kvittun né leigu-
samning, aðeins nafnið á mann-
inum sem leigði honum bílinn.
Bíllinn mun ekki hafa haft bíla-
leigutryggingu eins og skylt er.
Karl tilkynnti þetta til lögregl-
unnar á Húsavík og kom mann-
inum í samband við bílaleigu á
Húsavík svo hann gæti haldið
áfram för sinni.
„Þetta er ekki forsvaranlegt.
Málið snýr ekki aðeins að mann-
inum sem leigði frá sér bíl með
þessum hætti og í þessu ástandi
heldur ekki síður að eftirlitinu,“
segir Karl. Hann bendir á að bíll-
inn hafi komist í gegnum skoðun
á Selfossi í febrúar og sé með
gilda skoðun fram á næsta ár.
Vítavert sé að hleypa slíku öku-
tæki út á vegina.
Karl segist hafa verið farinn að
vona að búið væri að stöðva út-
leigu á druslum. Þetta dæmi sýni
að taka þurfti umræðuna á ný og
viðeigandi eftirlitsaðilar þurfi að
taka sig á.
„Þetta gera bara sálarlausir menn“
Bifvélavirki í Mývatnssveit treysti sér ekki til að taka við haugryðguðum og biluðum 20 ára
gömlum bílaleigubíl Gagnrýnir að slíkir bílar fái skoðun og að enn sé verið að leigja út druslur
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Drusla Bílaleigubíllinn er haugryðgaður og varla má koma við hann án þess
að eitthvað detti í sundur. Karl Viðar Pálsson treysti sér ekki í viðgerð.
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Jóhann Guðmundsson, formaður ís-
lensku sendinefndarinnar á fundi Al-
þjóðahvalveiðiráðsins í Slóveníu,
segir að flest bendi til þess að fátt
muni breytast í afstöðu ríkja fundar-
ins til hvalveiða. Bann við hval-
veiðum hefur staðið yfir í 30 ár.
Fulltrúar Íslands og Noregs bókuðu
m.a. mótmæli gegn banninu við veið-
um í atvinnuskyni. Þá kröfðust Jap-
anir þess að bann við hvalveiðum
yrði afnumið. Fundurinn mun
standa alla vikuna.
„Það er enginn munur á þessum
fundi og venjulega,“ segir Jóhann.
Hann segir að í grunninn séu tveir
skoðanahópar á fundinum. Annars
vegar sá sem Íslendingar tilheyra,
sem er hlynntur nýtingu hvala-
stofna, og hins vegar þeir sem leggj-
ast gegn hvalveiðum. Fulltrúar 66
þjóða eru á fundinum.
Að sögn Jóhanns njóta Íslend-
ingar, Norðmenn, Japanir og Græn-
lendingar, sem eru hlynntir veið-
unum, stuðnings þjóða í Afríku og
Karíbahafinu. Alls þarf stuðning um
¾ hluta þeirra þjóða sem sækja
fundinn til ákvarðanatöku, m.a. um
afléttingu bannsins. Eru þjóðir sem
hlynntar eru nýtingu í nokkrum
minnihluta, að sögn Jóhanns.
Í dag verður m.a. lögð fram tillaga
Argentínu, Brasilíu, Gabon, Suður-
Afríku og Úrúgvæ um að stofna
griðasvæði fyrir hvali í sunnanverðu
Atlantshafi. Sú tillaga nýtur stuðn-
ings ESB og fleiri ríkja. „Þeir hafa
aldrei náð þessu í gegn þar sem við
nýtingarþjóðir höfum alltaf stoppað
þetta,“ segir Jóhann. Hann telur
ólíklegt að breyting verði á því í ár.
Bókuðu
mótmæli við
hvalveiðibanni
Ekki er búist við stórum tíðindum
frá fundi Alþjóðahvalveiðiráðsins
AFP
Slóvenía Kristján Loftsson og Jó-
hann Guðmundsson á fundi ráðsins.
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Stærsti hluti tæknibúnaðar vegna
jáeindaskannans, gjafar Íslenskrar
erfðagreiningar (ÍE) til þjóðarinnar,
var hífður í jörð á Landspítalalóð-
inni í gær, en þó ekki skanninn sjálf-
ur.
Eins og fram hefur komið eru já-
eindaskanninn og byggingin tilkom-
in fyrir tilstilli peningagjafar Ís-
lenskrar erfðagreiningar upp á 5,5
milljónir dollara, eða sem nemur 726
milljónum króna. Bæði kaupin á já-
eindaskannanum og ný bygging eru
fjármögnuð að fullu af gjafafénu. Í
byggingunni verður framleiðsluein-
ing til þess að búa til ísótópa (geisla-
virkar samsætur), og tilraunastofa
til að búa til efnin.
Jáeindaskanni er fyrst og fremst
nýttur til greiningar á krabbameini,
bæði til að finna meinið fyrr og að
finna útbreiðslu þess til þess að
finna út bestu aðferðir við að með-
höndla meinið. Um 200 manns voru
sendir í jáeindaskanna erlendis á
síðastliðnu ári.
Þrjár afhendingar
Guðmundur Hreiðarsson, fram-
kvæmdastjóri hjá General Electric,
stjórnaði flutningum búnaðarins og
framkvæmdunum í gær.
„Landspítalinn er að taka á móti
„Gjöf til þjóðar“ frá Íslenskri erfða-
greiningu. Jáeindaskanninn kemur
hingað til lands í þremur afhending-
um,“ sagði Guðmundur í samtali við
Morgunblaðið í gær.
„Fyrsta skrefið er rafeindarafall
sem býr til ísótópana, geislavirka
efnið sem jáeindaskanninn notar.
Umfang fyrsta skrefsins er gríðar-
lega mikið og kannski veigamesti
þátturinn í uppsetningunni. Það er
verið að hífa í gegnum gat, niður í
kjallara (bunker) sem er búið að út-
búa, þar sem rafallinn verður stað-
settur. Rafallinn vegur 60 tonn,
þannig að hann er hífður í skömmt-
um hér niður,“ sagði Guðmundur.
Guðmundur segir að tvær hurðir
séu á rafalnum og hvor um sig vegi
7,8 tonn og svo sé 12 tonna hleri sem
verði hífður niður á hvelfinguna. Út-
búnaðurinn sem verið sé að koma
fyrir núna vegna jáeindarafalsins sé
í þremur gámum, en gærdagurinn
fór í að losa búnaðinn úr gámunum
og hífa niður um gatið.
„Það þarf að vera geysilega öflug
einangrun, vegna geislavirkninnar.
Rafallinn sjálfur er ekkert mikill um
sig en skermingin er sá hluti bún-
aðarins sem er svo þungur, því það á
engin geislun að sleppa út þegar efn-
in eru búin til,“ sagði Guðmundur.
Í gær komu þrír aðrir gámar til
landsins sem innihalda rannsókna-
stofuna sem tekur við efninu og full-
vinnur það þegar það er búið í fram-
leiðslu.
Guðmundur segir að uppsetning
úr þessum gámum fari einnig fram í
þessari viku og gert sé ráð fyrir að
fyrir lok vikunnar hafi þeir verið
tæmdir og einingum komið í hús. Í
desembermánuði verði svo jáeinda-
skannanum komið fyrir.
Morgunblaðið/Golli
Nýji jáeindaskanninn Veigamesti áfanginn í uppsetningu tækisins hafinn.
60 tonnum komið í
jörð við Landspítala
Byrjað að koma jáeindaskannanum frá ÍE fyrir
Bíll valt á veginum um Blönduhlíð í
Skagafirði á móts við bæinn Flugu-
mýrarhvamm síðdegis í gær. Tveir
erlendir ferðamenn á þrítugsaldri
voru í bílnum og sakaði þá ekki.
Að sögn lögreglunnar á Norður-
landi vestra liggur ekki fyrir hverj-
ar orsakir þessar voru, en aksturs-
aðstæður voru hinar bestu.
Bíllinn fór í loftköstum út af veg-
inum, endastakkst og hafnaði á
hvolfi ofan í Hvammsá. Þar skriðu
mennirnir út úr bílnum, ómeiddir.
Segir lögreglan það vera með mikl-
um ólíkindum, en hér hafi bílbeltin
sennilega bjargað öllu. Bíllinn er
hins vegar gjörónýtur eftir þessa
veltu.
Bíll fór í loftköstum og lenti á hvolfi úti í á
Velta Ökumaður og farþegi sluppu ómeidd-
ir en bíllinn er gjörónýtur eins og sjá má.