Morgunblaðið - 25.10.2016, Blaðsíða 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 2016
hitataekni.is
Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - Sími 588 60 70 - hitataekni@hitataekni.is
Einstaklega hljóðlát tæki fyrir t.d.
kerfisloft eða á vegg
Baðviftur
Ein sú hljóðlátasta 17 – 25 dB(A)
Vatnskæld kælitæki
Bjóðum upp á fjölbreyttan búnað svo sem
loftræsingar, hitakerfi, kælikerfi, rakakerfi
sem og stjórnbúnað og stýringar.
Anddyris-
hitablásarar
Bjóðum upp á mikið úrval
loftræstikerfa
fyrir heimili og fyrirtæki
Hildur Loftsdóttir
hildurl@mbl.is
Fyrir rúmri viku var opnuð í Scand-
inavia House í New York samsýning
íslenskra listamanna undir nafninu
Borrowed Time – Icelandic Artists
looking forward, og stendur hún yfir
til 14. janúar 2017. Sýningarstjóri er
Ásthildur Björg Jónsdóttir, lektor við
Listaháskóla Íslands, og segir hún
markmið sýningarinnar vera að veita
sýningargestum tækifæri til að kynn-
ast málefnum sjálfbærni út frá list-
rænum nálgunum, og um leið varpa
fram spurningum um þessi mik-
ilvægu málefni sem allir ættu að láta
sig varða.
Á sýningunni má finna verk eftir
Ólöfu Norðdal, Pétur Thomsen, Libiu
Castro og Ólaf Ólafsson, Þorgerði
Ólafsdóttur, Hildi Bjarnadóttur,
Rósu Gísladóttur, Hrafnkel Sigurðs-
son, Bjarka Bragason, Kristínu
Bogadóttur, Bryndísi Snæbjörns-
dóttur og Mark Wilson, Önnu Líndal
og Gjörningaklúbbinn auk verks eftir
Ásthildi sjálfa.
Of mikið upplýsingaflóð
Uppruna sýningarinnar má rekja
til sýningarinnar Ákalls sem Ásthild-
ur setti upp í Listasafni Árnesinga,
janúar – maí 2015. Sú sýning er hluti
af doktorsnámi Ásthildar en í því
skoðar hún þá möguleika sem sam-
tímalist getur veitt menntun til sjálf-
bærni á öllum stigum samfélagsins.
„Síðastu áratugi hefur orðið mikil
vitundarvakning varðandi þau áhrif
sem listir og menning geta haft á við-
horf fólks til þeirra flóknu og illvið-
ráðanlegu vandamála sem heimurinn
stendur frammi fyrir,“ segir Ásthild-
ur. „Niðurstöður margra rannsókna
sýna að í umhverfismálum standi
mannkynið frammi fyrir þvílíku upp-
lýsingaflóði að venjulegt fólk veit ekki
sitt rjúkandi ráð og hættir að bregð-
ast við. Þá getur myndlíking og
myndtúlkun hentað vel því listaverk
með hnitmiðuðum efnistökum geta
veitt áhorfendum forsendur til að
skilja heiminn betur. Sumir vilja jafn-
vel meina að einhverjir eigi auðveld-
ara með að skilja listir en ritaðar upp-
lýsingar.“
Sýndi í Sameinuðu þjóðunum
Í samstarfi við fastanefnd Íslands í
New York var hluti af sýningunni
Ákall sett upp í aðalbyggingu Sam-
einuðu þjóðanna í tengslum við
tveggja vikna fund háttsettra ráða-
manna um sjálfbærnimarkmið Sam-
einuðu þjóðanna. Fyrir tæpu ári
sömdu öll 193 aðildarríki SÞ um
sautján ný þróunarmarkmið. Þessi
markmið taka til allra og marka sjálf-
bæra leið til þróunar fyrir alla jarð-
arbúa þar sem jafnvægis er gætt milli
tækifæra til efnahags- og fé-
lagslegrar þróunar á sama tíma og
umhverfi og náttúra eru varðveitt
komandi kynslóðum til handa.
Sýningin var sett upp undir heitinu
Art for Actions: Icelandic art in the
Service of Sustainability og féll vel að
áherslum UNESCO um að skapa að-
stæður svo fólk verði meðvitað um
auðlindir náttúrunnar og geti tekið
afstöðu til skynsamlegrar nýtingar
þeirra, með því að meta á gagnrýninn
hátt gildi upplýsinga um náttúru og
verða þannig ábyrgur borgari í um-
hverfi sínu. Starfsmenn fastanefnd-
arinnar, Einar Gunnarsson og Nick
Hannigan, eru á einu máli um að sýn-
ingin sem Ásthildur setti upp í SÞ í
Áhrif listar á
viðhorf fólks
Umhverfisvernd og sjálfbærni í for-
grunni á samsýningu íslenskra mynd-
listarmanna í New York
Spáð í spilin Ásthildur Björg Jónsdóttir og Ari Tiziani, verkefnastjóri list-
sýninga í Scandinavia House, við uppsetningu sýningarinnar.
Opnun Ásthildur Björg Jónsdóttir við verk sitt ásamt Helgu
Leifsdóttur og Einari Gunnarssyni, sendiherra við fastanefnd SÞ.
Revelation III Verk Hrafnkels Sig-
urðssonar hefur vakið athygli.
Ljósmynd/Linda Haglund
Tengsl Í listasmiðjunni tengja áhorfendur við
eigin reynslu og ímyndunarafl.