Morgunblaðið - 25.10.2016, Page 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 2016
Hringbraut-Fjölmiðlar ehf. | Eiðistorgi 17 | 170 Seltjarnarnesi | www.hringbraut.is | Sími +354 561 3100
Missið ekki af áhugaverðum þætti um hvalaskoðanir
og viðtali við eiganda Gentle Giants auk starfsmanna. Hringbraut næst á rásum7 (Síminn) og 25 (Vodafone)
ATVINNULÍFIÐ ÁdagskráHringbrautar
í kvöld kl. 20.00
Heimsókn til Gentle Giants – Hvalaferða ehf.
í þættinum Atvinnulífið sem er á dagskráHringbrautar
kl. 20.00 í kvöld (ath. breyttan frumsýn.tíma)
• Fjölskyldufyrirtæki á Húsavík
með sögu síðan 1860
• Skjálfandaflói er miðstöð
hvalaskoðana við Ísland
• Rib-bátar er nýjung
í hvalaskoðunum
• Allt að 20 ferðir á dag
og ekkert lát á eftirspurn
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Sveitir Kúrda hafa umkringt borg-
ina Bashiqa, sem er lykilborg í sókn
Íraka gegn Íslamska ríkinu sem
ræður ríkjum í Mosul, annarri
stærstu borginni í Írak. Mosul féll í
hendur Íslamska ríkisins í júní árið
2014. Bashiqa liggur í aðeins 12 kíló-
metra fjarlægð frá Mosul. Pesh-
merga-sveitir Kúrda hafa áður sótt
að Bashiqa en þurftu frá að hverfa í
fyrra skiptið. En nú virðast miklar
líkur á að þær muni sigrast á her-
mönnum Íslamska ríkisins og kom-
ast yfir þessa mikilvægu smáborg á
leið sinni til Mosul, sem er aðalmark-
mið herferðarinnar. Hersveitir
Kúrda fara sér hægt út af tíðum
sjálfsmorðssprengjuárásum her-
manna Íslamska ríkisins, að sögn
BBC.
Í gær hafði sveitum Kúrda tekist
að umkringja borgina og voru að
grafa skotgrafir allt í kring, áður en
lokasóknin hæfist.
Miklar loftárásir
Bandamenn undir forystu Banda-
ríkjanna, sem berjast við hlið íraskra
hersveita, hófu það sem þeir kalla
fordæmalausa öldu loftárása í orr-
ustunni um Mosul.
Mannúðarsamtök hafa miklar
áhyggjur af því að óbreyttir borg-
arar verði innlyksa í Mosul á meðan
árásirnar standa yfir. Nokkur dæmi
eru um að hermenn Íslamska rík-
isins noti borgara sem mannlega
skildi
Vika er síðan íraski herinn hóf
sókn sína að Mosul. Þeir sem fara
fyrir hersveitum Bandaríkjamanna í
aðgerðunum segja að loftárásirnar í
gær hafi verið þær mestu í stríðinu
hingað til.
Búið að frelsa 78 þorp
Á sjö daga tímabili, frá 17.-23.
október, voru gerðar 32 loftárásir
þar sem 1.776 sprengjum var varp-
að. Þetta var staðfest af talsmanni
bandarísku hersveitanna, hershöfð-
ingjanum John Dorrian, í samtali við
AFP.
Samkvæmt fréttum frá CNN hef-
ur íraska hernum tekist að frelsa 78
þorp á leið sinni til Mosul. Yfir 800
hermenn Íslamska ríkisins hafa fall-
ið en hermenn þess veita enn harða
mótspyrnu.
Íslamska ríkið hefur vitað af því
að sókn íraska hersins væri yfirvof-
andi og hefur haft langan tíma til að
undirbúa varnir og gildrur, ekki að-
eins gagnvart hermönnunum held-
ur einnig gagnvart almennum borg-
urum sem snúa aftur til heimila
sinna. Mörg dæmi eru um sprengju-
gildrur í ísskápum á heimilum og
inni í stofum og svefnherbergjum
venjulegs fólks sem er að snúa aftur
eftir að hafa flúið grimmd Íslamska
ríkisins.
Þá hafa sveitir Íslamska ríkisins
verið með óvæntar árásir utan
Mosul, eins og í Kirkuk, til að dreifa
athygli íraskra hersveita.
Flestir herfræðingar telja þó
nokkuð ljóst að íraski herinn muni
vinna Mosul og þar með hrekja Ísl-
amska ríkið frá mikilvægasta vígi
sínu í Írak, en spurningin sé hve
langan tíma það taki og hve mikið
mannfall það muni kosta.
Sóknin að Mosul gengur vel
Hersveitir Kúrda umkringdu mikilvæga borg í nágrenni Mosul 78 þorp í ná-
grenni Mosul komin í hendur íraska hersins Miklar loftárásir bandamanna
AFP
Sigur Íraskir hermenn sýna sigurmerki í sókn sinni til Mosul. Sveitunum hefur gengið betur en búist var við.
Í frönskumæl-
andi hluta Belg-
íu, Vallóníu, er
hörð andstaða
við fríversl-
unarsamning við
Kanada. And-
staðan leiddi til
þess að fríversl-
unarsamningur
Evrópusam-
bandsins við
Kanada, sem er búinn að vera í und-
irbúningi í sjö ár, var stoppaður.
Hin 27 ríki Evrópusambandsins
vilja samþykkja samninginn. Sósíal-
istar eru öflugastir í andstöðunni
og óttast meiri alþjóðavæðingu í
viðskiptum.
BELGÍA
Belgar á móti samn-
ingi við Kanada
CETA Sumir vilja
ekki samning.
Kjörstaðir í Flór-
ída voru opnaðir
í gær en Flórída
er lykilfylki í
kosningabaráttu
milli Donalds
Trump og
Hillary Clinton.
Nú þegar hafa 6
milljón manns
kosið í kosning-
unum og talið er
að um 46 milljónir manna verði
búnar að kjósa þegar kemur að
kjördeginum sjálfum eða um 40%
þeirra sem munu kjósa. Í Flórída er
mjótt á mununum en samkvæmt
könnunum er Hillary Clinton með
46% en Donald Trump með 43%.
BANDARÍKIN
Kjörstaðir hafa verið
opnaðir í Flórída
Hillary
Clinton