Morgunblaðið - 25.10.2016, Page 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 2016
þriðjudaginn 25. október, kl. 18
Listmunauppboð
í Gallerí Fold
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is
þriðjudag kl. 10–17
Jóhann Briem Tolli
Uppboð í 20 ár
Forsýning á verkunum
Björn Þorfinnsson, alþjóð-legur skákmeistari, er37 ára í dag. Hann hef-
ur náð tveimur stórmeistara-
áföngum en til að verða út-
nefndur stórmeistari þarf að fá
þrjá stórmeistaraáfanga auk
þess að ná 2.500 ELO-stigum.
Björn stefnir á að ná stórmeist-
aratitlinum áður en hann verð-
ur fertugur.
„Ég var aldrei með neinar
gloríur um að verða stórmeist-
ari, ég ætlaði mér að verða al-
þjóðlegur meistari en setti mér
ekki hærri markmið en það. Ég
hélt samt áfram að tefla. Það er
hægt að tefla fram eftir öllu,
maður þarf ekki að hætta í
skák út af aldri eða meiðslum.
Eftir að ég eignaðist tvö börn þá hafði ég minni tíma til að sinna skák-
inni, en þá gerðist það að ég náði stórmeistaraáfanga í einu móti og þá
fór maður að láta sig dreyma. Ég náði öðrum stórmeistaraáfanganum
í fyrra og það er spurning hvort þriðji stórmeistaraáfanginn kemur
með þriðja barninu. Það er því enginn tími til að sinna öðrum áhuga-
málum, skákin tekur það mikinn tíma. Það var reynt að draga mig í
golfið en það verður að bíða þangað til ég er orðinn stórmeistari.“
Einu mótin sem Björn er búinn að fastsetja eru hér innanlands,
Opna Reykjavíkurskákmótið og Íslandsmótið í skák, en hann hyggur
á að keppa í fleiri mótum erlendis. „Það er kannski ekki gott fyrir
vinnuveitendurna að lesa það hér í Mogganum að ég sé að fara að
sækja um frí til að keppa á mótum, en ég er að skoða t.d. mót í
Bangkok í Taílandi sem verður haldið um páskana. Það eru haldin
skákmót í öllum kimum veraldarinnar og því fæ ég líka útrás fyrir
ólæknandi ferðabakteríu í skákinni.“
Björn starfar sem blaðamaður á DV og hefur verið duglegur að
skrifa um skák þar. „Jú, ég geri það í og með. Ég er búinn að vera á
DV í tæplega tvö ár og þetta er mjög fjölbreytt og skemmtilegt starf .
Ég skrifa fréttir um allt milli himins og jarðar, bara það sem kemur
upp hverju sinni.“
Eiginkona Björns er Kristín Erla Jóhannsdóttir, forstöðumaður
eignastýringar Landsbankans, og börn þeirra eru Brynja Mist 6 ára
og Róbert Óliver sem verður 4 ára í nóvember.
„Í tilefni þess að ég bý í Garðabæ og við erum loksins búin að fá ann-
an veitingastað en IKEA í bæinn þá ætlum við fjölskyldan út að borða í
Mathúsi Garðabæjar í kvöld. Sá staður er í göngufæri og ég ætla að
leggja mitt af mörkum til þess að halda honum á floti.“
Skákmeistarinn Björn Þorfinnsson.
Stefnir á stórmeist-
aratitil fyrir fertugt
Björn Þorfinnsson er 37 ára í dag
Ó
lafur Maríusson fæddist
í Reykjavík 25.10. 1921
og ólst þar upp: „Það
var mikið basl á fólki á
kreppuárunum – mikið
atvinnuleysi og þótti gott að hafa í
sig og á. Við vorum sex systkinin,
pabbi var stundum atvinnulaus eins
og svo margir aðrir og húsnæði var
almennt lítið og lélegt, en við börnin
höfðum ekki miklar áhyggur af því.
Við bjuggum á tímabili á Berg-
þórugötunni og við krakkarnir lék-
um okkur á Skólavörðuholtinu. Síð-
an fluttum við vestur í bæ, á
Ljósvallagötuna, og þá var kirkju-
garðurinn aðalleiksvæði okkar.
Síðan bjuggum við á Sólvallagötu
6, hjá Markúsi Ívarssyni, forstjóra
Vélsmiðjunnar Héðins. Markús var
heiðursmaður, mikill málverkasafn-
ari, hafði gaman af að sýna okkur
myndir og kenndi okkur að skoða
þær og meta. Af Sólvallagötunni
fluttum við síðan á Brávallagötu 4.
Ég hafði alltaf haft gaman af
myndlist, dundaði mér snemma við
að krafsa út myndir með steinum á
svelli. Ég fór svo í Myndlista- og
handíðaskólann á unglingsárunum,
hann var þá á Grundarstígnum. Þar
lærði ég hjá Kurt Zier sem var með
okkur, nokkra nemendur, í kvöld-
tímum, enda var ég að vinna á dag-
inn. Þar man ég sérstaklega eftir
Kristjáni Eldjárn sem síðar varð
þjóðminjavörður og forseti.“
Þú hefur byrjað ungur að vinna?
„Já, já, en ég vann alltaf á sama
stað. Ég byrjaði 10 ára sem sendi-
sveinn í Haraldarbúð sem var í
Austurstræti og ein vinsælasta fata-
Ólafur Maríusson kaupmaður – 95 ára
Stór hópur Ólafur með börnum sínum, tengdabörnum, barnabörnum og langafabörnum er hann varð níræður.
„Allt frá hatti o’ní skó
– Herradeild PÓ“
Glæsiverslun og flottir strákar Ólafur og Pétur með verslunarmönnum sín-
um, m.a. þeim Ólafi Maríusi, syni Ólafs, og Garðari, síðar í Herragarðinum.
Reykjavík Agnar Hörð-
ur fæddist 28. júní 2016
klukkan 00.07. Hann vó
3.828 g og var 52 cm að
lengd. Foreldrar hans
eru Thelma Hinriks-
dóttir og Axel Guðni
Úlfarsson.
Nýir borgarar
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is