Morgunblaðið - 03.11.2016, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2016
LANDSKJÖRSTJÓRN
Fundur um úthlutun þingsæta
Landskjörstjórn kemur saman til fundar
mánudaginn 7. nóvember, kl. 16 til að
úthluta þingsætum á grundvelli kosningaúrslita í
kjördæmum eftir almennar alþingiskosningar sem
fram fóru 29. október sl.
Hér með er umboðsmönnum þeirra
stjórnmálasamtaka sem buðu fram við
alþingiskosningarnar gefinn kostur á að koma til
fundarins, sem haldinn verður á
2. hæð í Austurstræti 8-10, Reykjavík,
húsnæði nefndasviðs Alþingis.
Gengið er inn frá Vallarstræti.
Reykjavík, 1. nóvember 2016.
Landskjörstjórn.
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Einn þeirra sem nú setjast á þing er
Njáll Trausti Friðbertsson, flug-
umferðarstjóri á Akureyri. Þar sem
flugumferð-
arstjórar eru ekki
á hverju strái á
Akureyri snéri
Morgunblaðið sér
til Isavia og
spurðist fyrir um
hvernig brugðist
yrði við því að
einn af þremur
flugumferð-
arstjórum á
Akureyrar-
flugvelli léti nú af störfum.
„Verið er að skoða hvernig við get-
um áfram sinnt sem bestri þjónustu
til notenda flugvallarins í ljósi þess að
einn af starfandi flugumferðastjórum
hefur verið kosinn á þing,“ segir
Gunnar K. Sigurðsson hjá Isavia.
Þrír flugumferðarstjórar eru nú
þegar í þjálfun fyrir Akureyr-
arflugvöll að sögn Gunnars. Þeir
verða komnir með réttindi til þess
haustið 2017 en þangað til verða tveir
fastir flugumferðarstjórar á Akureyri
í fullu starfi. Þá sé verið að skoða
möguleikann á því að manna einstaka
tímabil með fluguferðarstjóra úr
Reykjavík, sem hefur réttindi á Ak-
ureyri. Gunnar segir að á þeim tíma-
bilum sem ekki sé hægt að veita flug-
umferðarþjónustu verði veitt
AFIS-þjónusta líkt og t.d. á flugvöll-
unum á Egilsstöðum og Ísafirði.
Í AFIS-þjónustu felst flugupplýs-
ingaþjónusta þar sem ekki er um að
ræða beina stjórnun flugumferðar.
Þess í stað eru flugmanni veittar
nauðsynlegar upplýsingar um veð-
urskilyrði, ástand brauta og aðra
flugumferð sem varðar öryggi flugs-
ins að flugvellinum og lendingu á hon-
um, segir Gunnar.
Flugfélag Íslands flýgur margar
ferðir á dag til Akureyrar. Á Ak-
ureyrarflugvelli hefur Norlandair
bækistöðvar sínar og þar er miðstöð
sjúkraflugs á Íslandi sem Mýflug
sinnir.
Fækkar um einn í flug-
turninum á Akureyri
Njáll Trausti
Friðbertsson
Tveir flugumferðarstjórar verða í föstu starfi á vellinum
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Umferð Frá Akureyrarflugvelli.
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Niðurstaðan núna er að fela for-
manni Sjálfstæðisflokksins umboð
til myndunar ríkisstjórnar sem njóti
stuðnings meirihluta á Alþingi,“
sagði Guðni Th. Jóhannesson, for-
seti Íslands, er hann ávarpaði fjöl-
miðlamenn á Bessastöðum í gær
eftir fund sinn með Bjarna Bene-
diktssyni, formanni Sjálfstæðis-
flokksins.
Eftir nýliðnar alþingiskosningar
er Sjálfstæðisflokkurinn langstærsti
flokkurinn á þingi, með tæplega
30% fylgi í kosningunum og 21
þingmann.
„Það er ljóst að í stöðunni, eins
og hún er núna, er þessi kostur
vænlegastur til árangurs,“ sagði
Guðni Th. ennfremur, en hann bað
jafnframt Bjarna um að gefa sér
„skýrslu“ um gang stjórnarmynd-
unarviðræðna. Að sögn forseta mun
Bjarni setja hann inn í gang mála
um helgina eða við upphaf næstu
viku.
Bjarni og Katrín
funda næst
Fyrstu skref Bjarna, eftir að hafa
fundað með þingflokki sínum í Val-
höll að loknum fundi með forseta,
var að eiga samtal með Sigurði Inga
Jóhannssyni, formanni Framsókn-
arflokksins. Hittust þeir í ráð-
herrabústaðnum við Tjörnina í
Reykjavík.
Bjarni vildi ekki veita viðtal að
fundi loknum en sagðist þó ætla að
funda næst með Katrínu Jakobs-
dóttur, formanni Vinstri grænna.
Munu þau hittast klukkan 10 í dag
en því næst ætlar Bjarni að ræða
við hina formenn stjórnmálaflokka á
þingi og verða þeir fundir haldnir í
röð sem ákvarðast eftir þingstyrk
flokkanna.
Áður en Bjarni fór frá Bessastöð-
um í gær ræddi hann stuttlega við
fjölmiðlamenn. Sagðist hann m.a.
ætla að nýta næstu daga vel. „En
þetta getur auðvitað alltaf tekið ein-
hvern tíma, sérstaklega þegar fyrir
liggur að það mun ekki duga að fá
tvo flokka saman til að mynda
meirihluta,“ sagði hann.
Þá sagðist Bjarni ekki vera með
„neina fyrirframgefna niðurstöðu“
og útilokar því enga valkosti – þeir
ráðast af samtölum hans við for-
menn hinna stjórnmálaflokkanna.
Horfi í átt til framtíðar
Formenn allra flokka á þingi hafa
undanfarna daga átt í samtölum sín
á milli, þótt engar formlegar við-
ræður hafi hafist fyrr en í gær, og
sagði Bjarni þessi samtöl m.a. hafa
leitt í ljós að menn væru að verða
„afslappaðri“ með hverjum degi.
„Mér hefur þótt vera ákveðin
þversögn í því að menn segi annars
vegar að það séu skilaboð í þessum
kosningum að menn vilji breiðara
samstarf, en síðan eru menn upp-
teknir í því að útiloka hver annan.
Mér fannst það ekki alveg nógu góð
byrjun á því að vinna úr niðurstöðu
kosninganna. En ég er ágætlega
bjartsýnn á að við náum að horfa
aðeins lengra inn í framtíðina og líta
á kosningarnar sem upphaf á nýju
kjörtímabili þar sem öllu skiptir að
velta fyrir sér málefnasamningi inn
í framtíðina, en vera ekki of upp-
tekin af því hvað var á dagskrá á
síðasta kjörtímabili,“ sagði Bjarni
við fjölmiðlamenn.
Var hann á fundinum m.a. spurð-
ur út í hugsanlegt stjórnarmynstur
Sjálfstæðisflokks, Bjartrar framtíð-
ar og Viðreisnar, sem gæfi 32 þing-
menn. Sagði Bjarni það vera „mjög
knappan“ meirihluta.
Málefnin ráða för
Katrín Jakobsdóttir, formaður
Vinstri grænna, staðfesti við Morg-
unblaðið í gærkvöldi að hún ætti
fyrsta fund með Bjarna í dag.
„Ég var kosin til að vinna að mál-
efnum félagshyggjunnar. Það hefur
auðvitað verið langt á milli okkar
málefnalega, en auðvitað fer ég og
hitti Bjarna og heyri hvað hann hef-
ur að segja,“ sagði hún. „Samtal er
alltaf þess virði – sama hverju það
kann að skila.“
Birgitta Jónsdóttir, þingmaður
Pírata, sagði í samtali við blaðið það
hafa verið „frekar óraunhæft“ hjá
Benedikt Jóhannessyni, formanni
Viðreisnar, að sækjast eftir því að
leiða stjórnarmyndun. „Ég held að
forseti vilji stíga varlega til jarðar
og átti því ekki von á neinu öðru en
að Bjarni fengi umboðið,“ sagði
hún.
Aðspurð sagðist hún ekki eiga sér
neitt óska stjórnarmynstur sem
innihéldi Sjálfstæðisflokkinn sem
leiðandi afl. „Mér þætti hins vegar
mjög jákvætt ef hægt yrði að koma
á minnihlutastjórn. Það væri mjög
hollt fyrir lýðræðið okkar, einkum í
ljósi þess að áhersla hefur verið á
að ná fram meiri sátt og breyta
andanum á þingi,“ sagði Birgitta.
Óttarr Proppé, formaður Bjartr-
ar framtíðar, sagði tíðindi gærdags-
ins ekki hafa komið sér á óvart.
„Þetta er bara næsta skref í þessari
óvenjulegu og óljósu stöðu. Það
verður eflaust þrautin þyngri að
koma þessu saman,“ sagði hann og
bætti við:
„Björt framtíð og Viðreisn hafa
ákveðið að standa saman, ef til kem-
ur, í stjórnarmyndunarviðræðum.
Við tökum auðvitað ábyrgðina al-
varlega, þ.e. að mynda starfhæfa
stjórn, en við tökum ekki þátt í
slíku nema það sé utan um málefni
og áherslur sem við trúum á og
treystum.“
Logi Már Einarsson, nýr formað-
ur Samfylkingarinnar, sagði að
hann hefði heldur viljað sjá for-
mann Vinstri grænna fá tækifæri til
að mynda nýja ríkisstjórn.
Ekki náðist í Benedikt Jóhann-
esson, formann Viðreisnar.
Sjálfstæðisflokkurinn er
„vænlegastur til árangurs“
Bjarni Benediktsson fékk umboð til myndunar nýrrar ríkisstjórnar Íslands
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bessastaðir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, hittust
á fundi í gær þar sem Bjarni fékk umboð til að mynda næstu ríkisstjórn. Fyrsti fundur hans var með Framsókn.
Nafn Gunnars Braga Sveinssonar,
oddvita Framsóknarflokks í Norð-
vesturkjördæmi, var oftast strikað
út af nöfnum þeirra sem buðu sig
fram í kjördæminu. Nafn hans var
alls strikað út 371 sinni, eða í
10,65% atkvæða B-listans, sem
voru 3.482 talsins.
Alls strikuðu 198 manns yfir
nafn Birgittu Jónsdóttur, oddvita
Pírata í Reykjavíkurkjördæmi
norður, eða 2,98% þeirra sem
kusu flokkinn í kjördæminu. Á
lista Sjálfstæðisflokks var oftast
strikað yfir nafn oddvitans Guð-
laugs Þórs Þórðarsonar, en 161
strikaði út nafn hans, sem jafn-
gildir 1,89% atkvæða flokksins.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, í
2. sæti listans, var strikuð út 123
sinnum.
Í Reykjavíkurkjördæmi suður
var oftast strikað yfir nafn Ólafar
Nordal efsta manns á lista Sjálf-
stæðisflokksins, alls 111 sinnum
eða í 1,24% tilvika.
Í Suðurkjördæmi var oftast
strikað yfir nafn sjálfstæð-
ismannsins Ásmundar Friðriks-
sonar eða 168 sinn-um sem nemur
um tveimur prósentum af at-
kvæðatölu listans.
Í Norðausturkjördæmi var oft-
ast strikað yfir nafn Sigmundar
Davíðs Gunnlaugssonar og í Suð-
vesturkjördæmi yfir nafn Þorgerð-
ar Katrínar Gunnarsdóttttur eins
og greint var frá í blaðinu í gær.
Byggt er á skýrslum yfirkjör-
stjórna til landskjörstjórnar og
Hagstofu Íslands.
Gunnar
Bragi oft
strikaður út
Hæstiréttur hefur heimilað fram-
kvæmd krufningar á líki óþekkts
einstaklings sem fannst við Sela-
tanga skammt frá Grindavík í síð-
ustu viku. Hugsanlega er líkið af
skipstjóra frönsku seglskútunnar
Red Hélol sem hefur verið saknað
síðan í sumar.
Héraðsdómur Reykjaness hafði
áður hafnað beiðni lögreglustjór-
ans á Suðurnesjum um réttarkrufn-
ingu. Í beiðni lögreglustjóra kemur
fram að ekki er unnt að útiloka að
dauðsfall hins látna verði rakið til
refsiverðrar háttsemi og af þeim
sökum sé nauðsynlegt að kryfja lík
viðkomandi einstaklings.
Fram kom fyrir dómi að leit-
arhópar hafi fundið hægri fótlegg
og síðar um daginn búk.
Hæstiréttur heim-
ilar krufningu