Morgunblaðið - 03.11.2016, Blaðsíða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2016
Hlynur Hallsson,
safnstjóri Lista-
safnsins á Ak-
ureyri, tekur á
móti gestum í
dag kl. 12.15 og
fræðir þá um
sýningar Ásdísar
Sifjar Gunn-
arsdóttur, Sýn í
þokunni, og Joan
Jonas, Eldur og
saga, 1985, sem voru opnaðar sl.
laugardag, en Hlynur er sýning-
arstjóri beggja sýninga. Aðgangur
er ókeypis. Sýningarnar standa
báðar til 8. janúar 2017.
Leiðsögn í Lista-
safninu á Akureyri
Hlynur
Hallsson
Undanfarin fjögur ár hefur Sinfón-
íuhljómsveit Íslands tekið þátt í
hinni sívaxandi Iceland Airwaves-
hátíð. Á tónleikum hljómsveit-
arinnar á hátíðinni að þessu sinni, en
þeir verða í kvöld, fimmtudagskvöld,
verða listamenn tengdir Bedroom
Community-útgáfunni í forgrunni.
Bedroom Community varð til árið
2006 í samstarfi Valgeirs Sigurðs-
sonar, tónlistarmanns og upptöku-
stjóra við Nico Muhly, og Ben Frost.
Síðar bættust fleiri listamenn í hóp-
inn, þau Sam Amidon, Daníel
Bjarnason, Puzzle Muteson, Paul
Corley, Nadia Sirota, James McVin-
nie, Emily Hall og Jodie Landau. Í
hópnum eru nú skapandi einstak-
lingar frá ýmsum heimshornum,
sem fást við ólíkar tegundir tónlistar
en eiga margt sameiginlegt, og
starfa að tónlist í stúdíói Valgeirs í
Seljahverfi, Gróðurhúsinu, þar sem
tónlistin verður til. Í ár fagnar
Bedroom Community tíu ára afmæli
sínu og hafa félagar hópsins að
undanförnu verið á tónleikaferð um
Evrópu undir yfirskriftinni „Whale
Watching Tour“.
Á tónleikunum á Airwaves í kvöld
verða meðal annars leikin hljóm-
sveitarverk eftir Nico Muhly, Val-
geir, Daníel og Ben Frost, undir
stjórn þýska hljómsveitarstjórans
André de Ridder. Einnig verða flutt
önnur elektrónísk verk þar sem
meðlimir Bedroom Community og
fleiri listamenn stíga á svið.
Á fyrri tónleikum Sinfóníunnar á
Iceland Airwaves hefur m.a. verið
unnið með Ólafi Arnalds, Jóhanni
Jóhannssyni og John Grant.
Bedroom Comm-
unity og Sinfó
Sinfóníuhljómsveitin flytur verk eft-
ir Valgeir Sigurðsson og félaga í kvöld
Morgunblaðið/Kristinn
Samstarfsmenn Nico Muhly, Val-
geir Sigurðsson og Ben Frost.
Salka Guðmundsdóttir heldurótrauð áfram að skoða leiðirtil að láta leikhúsið tala viðog skoða okkar nánasta sam-
tíma. Það er gott, önnur réttlæting
fyrir tilvist leikhússins er vandfundin.
Að þessu sinni verða tvö áberandi
einkenni síðustu ára henni að meg-
inefni: ferðamannasprengjan með öll-
um sínum skammsýna gullgreftri og
svo andlitslaus valdataka fasteigna-
félaga og ábyrgðarlaus gróðahyggja
almennt.
Félagsleg blokk lendir í eignasafni
andlitslauss fasteignarisa sem flæmir
íbúana á brott og breytir húsakynn-
unum í verulega frumstætt hótel,
Puffin etc., með einum starfsmanni:
öryrkjanum Lýdíu. Hún virðist eiga
að ganga þar í öll störf undir eftirliti
hins ábúðarmikla Júlíusar, fulltrúa
gráðuga fasteignabáknsins Porcellus-
ar, launalaust gegn því að fá að halda
sinni íbúð. Lýdía er á fullu í sjálfsrækt
og markþjálfun að nútímahætti undir
leiðsögn orku- og klisjubombunnar
Solveigar en villist af þeirri leið þegar
hún uppgötvar feluleigjandann
G.Núma, uppflosnaðan sagn-
fræðinema með hinar aðskiljanleg-
ustu raskanir, í geymslunni. Hann
hefur í smíðum gríðarlega Reykjavík-
urrevíu í anda blómaskeiðsins sem
það merka form átti um miðja síðustu
öld. En blokkin er að hruni komin,
kapítalistagrísirnir í Porcellus svífast
einskis og það er óhreint mjöl í poka-
horni Solveigar, allavega í orkuteinu
sem karríerkonan er að láta Lýdíu
pranga inn á fólk til að komast með á
pepphátíðina Extravaganza í Düssel-
dorf.
Þó verkið tali beint inn í lundafyllt-
an samtímann er sterklega reynt að
staðsetja okkur í fortíðinni. Það er t.d.
gert með fornfálegum húsgögnunum í
leikmynd Brynju Björnsdóttur. Hér
er notast við snúrusíma og enginn
minnist á samfélagsmiðla, ekki einu
sinni þegar einmanaleika og vinaleysi
ber á góma. Hljóðkerfi blokkarinnar
er kassettudrifið, kostulegar nætur-
útvarpssenur Lýdíu eru eitt það
skemmtilegasta í sýningunni. Og reví-
an fjallar m.a. um borgarstjórahring-
ekjuna í kringum REI-málið, muni
einhver eftir því. En samt er viðfangs-
efnið nákvæmlega samtíminn. Þetta
virðist vera vísvitað hjá höfundi, en ég
næ ekki sambandi við hvað þetta á að
þýða.
Það eru ýmis leikhúsform og stíl-
brögð reynd og nýtt í leikritinu og
sýningunni. Kringumstæðurnar og
ógnin að utan eru beint upp úr hand-
bók absúrdleikhússins og fyrrnefnd
tímaóreiða undirstrikar þann andblæ.
Það brestur stundum á með sál-
fræðilegu raunsæi með ljóðrænu yf-
irbragði í samskiptum Lýdíu og
Núma, en svo er þarna líka farsaþráð-
ur, þar sem þau skötuhjúin reyna að
fela revíuáform sín fyrir útsendara
Porcellusar, m.a. með því að ljá Núma
þýskt ríkisfang. Leikmyndin er líka
farsaættuð, með sínum hurðaríka
bakvegg.
Og svo er náttúrulega revíuformið
sjálft.
Reyndar fer revían sérkennilega
illa út úr þessu sambýli. Henni er ýtt
yfir í það hlutverk að vera spaugilegt
viðfangsefni frekar en gild aðferð í
nútímaleikhúsi. Extravaganza á þá
klemmu sameiginlega með Djöflaeyj-
unni í Þjóðleikhúsinu að það er eins
og höfundana langi að vinna með form
(revíu hér, söngleik þar) sem þeir
hafa ekki fyllilega á valdi sínu og –
það sem verra er – hafi ekki nema
takmarkaða trú á.
Hér verður það beinlínis ein af
þungamiðjum sýningarinnar að skop-
stæla viðvaningslega tilburði persón-
anna til að tjá sig í gamanvísum. Sem
er í sjálfu sér ekkert alveg óskemmti-
legt. Verra er að það er eiginlega
ómögulegt að sjá hvers vegna við ætt-
um að vilja beina sjónum okkar og að-
hlátri í þessa átt. Að flissa að mátt-
vana tilraunum fúskara til að setja
fram góðlátlega ádeilu á níræðu og
smáðu leikhúsformi. Er það brýnt er-
indi í verki sem að öðru leyti er með
hin ýmsu samfélagsmein undir? Það
þarf þá að vera verulega fyndið, sem
það er ekki hér. Svolítið spaugilegt en
ekki nægjanlega.
Þessi samþætting gengur sem sagt
ekki nógu vel upp. Sundurgerð í formi
og stíl er alls ekki sjálfkrafa uppskrift
að vandræðum en hér tekst ekki að
láta hin ólíku efnistök njóta sín í sam-
býlinu og skila okkur áhugaverðri
sýn. Fyndnin er ekki nógu fyndin, bit-
ið ekki nógu beitt.
Leikhópurinn nær ekki að bæta
spennandi vídd við efniviðinn. Skila
ágætu verki, en ögn fyrirsjáanlegu.
María Heba Þorkelsdóttir hefur áður
sýnt að henni lætur vel að sýna okkur
velmeinandi en pínu ráðvilltar konur
með lága valdastöðu. Lýdía er sú per-
sóna sem kemst næst því að vera í þrí-
vídd og er hér í öruggum höndum.
Eins er um Júlíus hjá Hannes Óla
Ágústssyni. Hrokagikkir með hæpna
innistæðu fyrir valdi sínu eru hans
heimavöllur. Auðvitað finnur Sveinn
Ólafur Gunnarsson leiðir til að gera
taugabúnt eins og G.Núma sannfær-
andi, brjóstumkennanlegan og hlægi-
legan. Og Aðalbjörg Árnadóttir finnur
flesta kæki sem „prýða“ hressa leið-
toga í markaðsdrifnum sjálfshjálpar-
iðnaðinum og nýtir þá vel.
En þó týpurnar standi fyrir sínu
virkaði samleikurinn stirður og óör-
uggur á annarri sýningu. Meiri ná-
kvæmni og nostur við smáatriði hefði
hjálpað. Sviðsetningin virkar frum-
stæð. Hið breiða en grunna leikrými
takmarkaði möguleika og skapaði
einsleitni í staðsetningum og samleik.
Fjölmargar hurðir á bakvegg skapa
möguleika á óvæntum uppbrotum og
voru dálítið nýttar þannig, en nokkuð
skorti á öryggi í þeim atriðum og
kannski fleiri og fjölbreyttari útfærsl-
ur. Hér hefði bæði þurft fastari tök og
fleiri hugmyndir frá leikstjóranum
Ragnheiði Skúladóttur. Ég gæti líka
trúað að úrvinnsla sem hefði nýtt sam-
band sviðs og salar betur, í revíuand-
anum, hefði hjálpað verkinu, þó það sé
vissulega að miklu leyti skrifað með
traustan fjórða vegg í huga.
Tónlistarflutningur er oftast vísvit-
andi klaufalegur, en það óöryggi smit-
aðist líka yfir upphafs- og lokaatriði
sem ættu að standa utan revíuskop-
stælingarinnar.
Það er mörgum boltum kastað á loft
í Extravaganza bæði hvað varðar form
og innihald, handrit og úrvinnslu á svið-
inu. Meiri tími, yfirvegun og yfirlega
hefði trúlega skilað áhrifameira verki,
þó margt sé sniðugt og sýni hvert
stefnt var. Hugsanlega hefði hluti
þeirrar vinnu falist í að velja og hafna
bæði viðfangsefnum og meðulum. Lík-
lega hefði Borgarleikhúsð átt að standa
af meiri ábyrgð og fagmennsku að baki
opinbers leikskálds síns.
En við verðum að bíða enn um
stund eftir skotheldum gamanleik um
glóruleysi gróðapunganna á ferða-
mannaakrinum og kvikindislegri af-
hjúpun siðleysingja í fasteignabraski.
Ætli revíuformið myndi kannski
henta?
Yfirvegun „Meiri tími, yfirvegun og yfirlega hefði trúlega skilað áhrifa-
meira verki, þó margt sé sniðugt og sýni hvert stefnt var,“ segir í rýni.
Borgarleikhúsið
Extravaganza bbnnn
Eftir Sölku Guðmundsdóttur. Leik-
stjórn: Ragnheiður Skúladóttir. Leik-
mynd: Brynja Björnsdóttir. Búningar:
Þórunn Elísabet Sveinsdóttir. Lýsing:
Ólafur Ágúst Stefánsson. Tónlist og
hljóðmynd: Ólafur Björn Ólafsson. Leik-
arar: Aðalbjörg Árnadóttir, Hannes Óli
Ágústsson, María Heba Þorkelsdóttir og
Sveinn Ólafur Gunnarsson. Frumsýning
á Nýja sviði Borgarleikhússins föstu-
daginn 28. október 2016. Rýnt í aðra
sýningu laugardaginn 29. október.
ÞORGEIR
TRYGGVASON
LEIKLIST
Nútíminn er lundi