Morgunblaðið - 03.11.2016, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 03.11.2016, Qupperneq 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2016 Hlynur Hallsson, safnstjóri Lista- safnsins á Ak- ureyri, tekur á móti gestum í dag kl. 12.15 og fræðir þá um sýningar Ásdísar Sifjar Gunn- arsdóttur, Sýn í þokunni, og Joan Jonas, Eldur og saga, 1985, sem voru opnaðar sl. laugardag, en Hlynur er sýning- arstjóri beggja sýninga. Aðgangur er ókeypis. Sýningarnar standa báðar til 8. janúar 2017. Leiðsögn í Lista- safninu á Akureyri Hlynur Hallsson Undanfarin fjögur ár hefur Sinfón- íuhljómsveit Íslands tekið þátt í hinni sívaxandi Iceland Airwaves- hátíð. Á tónleikum hljómsveit- arinnar á hátíðinni að þessu sinni, en þeir verða í kvöld, fimmtudagskvöld, verða listamenn tengdir Bedroom Community-útgáfunni í forgrunni. Bedroom Community varð til árið 2006 í samstarfi Valgeirs Sigurðs- sonar, tónlistarmanns og upptöku- stjóra við Nico Muhly, og Ben Frost. Síðar bættust fleiri listamenn í hóp- inn, þau Sam Amidon, Daníel Bjarnason, Puzzle Muteson, Paul Corley, Nadia Sirota, James McVin- nie, Emily Hall og Jodie Landau. Í hópnum eru nú skapandi einstak- lingar frá ýmsum heimshornum, sem fást við ólíkar tegundir tónlistar en eiga margt sameiginlegt, og starfa að tónlist í stúdíói Valgeirs í Seljahverfi, Gróðurhúsinu, þar sem tónlistin verður til. Í ár fagnar Bedroom Community tíu ára afmæli sínu og hafa félagar hópsins að undanförnu verið á tónleikaferð um Evrópu undir yfirskriftinni „Whale Watching Tour“. Á tónleikunum á Airwaves í kvöld verða meðal annars leikin hljóm- sveitarverk eftir Nico Muhly, Val- geir, Daníel og Ben Frost, undir stjórn þýska hljómsveitarstjórans André de Ridder. Einnig verða flutt önnur elektrónísk verk þar sem meðlimir Bedroom Community og fleiri listamenn stíga á svið. Á fyrri tónleikum Sinfóníunnar á Iceland Airwaves hefur m.a. verið unnið með Ólafi Arnalds, Jóhanni Jóhannssyni og John Grant. Bedroom Comm- unity og Sinfó  Sinfóníuhljómsveitin flytur verk eft- ir Valgeir Sigurðsson og félaga í kvöld Morgunblaðið/Kristinn Samstarfsmenn Nico Muhly, Val- geir Sigurðsson og Ben Frost. Salka Guðmundsdóttir heldurótrauð áfram að skoða leiðirtil að láta leikhúsið tala viðog skoða okkar nánasta sam- tíma. Það er gott, önnur réttlæting fyrir tilvist leikhússins er vandfundin. Að þessu sinni verða tvö áberandi einkenni síðustu ára henni að meg- inefni: ferðamannasprengjan með öll- um sínum skammsýna gullgreftri og svo andlitslaus valdataka fasteigna- félaga og ábyrgðarlaus gróðahyggja almennt. Félagsleg blokk lendir í eignasafni andlitslauss fasteignarisa sem flæmir íbúana á brott og breytir húsakynn- unum í verulega frumstætt hótel, Puffin etc., með einum starfsmanni: öryrkjanum Lýdíu. Hún virðist eiga að ganga þar í öll störf undir eftirliti hins ábúðarmikla Júlíusar, fulltrúa gráðuga fasteignabáknsins Porcellus- ar, launalaust gegn því að fá að halda sinni íbúð. Lýdía er á fullu í sjálfsrækt og markþjálfun að nútímahætti undir leiðsögn orku- og klisjubombunnar Solveigar en villist af þeirri leið þegar hún uppgötvar feluleigjandann G.Núma, uppflosnaðan sagn- fræðinema með hinar aðskiljanleg- ustu raskanir, í geymslunni. Hann hefur í smíðum gríðarlega Reykjavík- urrevíu í anda blómaskeiðsins sem það merka form átti um miðja síðustu öld. En blokkin er að hruni komin, kapítalistagrísirnir í Porcellus svífast einskis og það er óhreint mjöl í poka- horni Solveigar, allavega í orkuteinu sem karríerkonan er að láta Lýdíu pranga inn á fólk til að komast með á pepphátíðina Extravaganza í Düssel- dorf. Þó verkið tali beint inn í lundafyllt- an samtímann er sterklega reynt að staðsetja okkur í fortíðinni. Það er t.d. gert með fornfálegum húsgögnunum í leikmynd Brynju Björnsdóttur. Hér er notast við snúrusíma og enginn minnist á samfélagsmiðla, ekki einu sinni þegar einmanaleika og vinaleysi ber á góma. Hljóðkerfi blokkarinnar er kassettudrifið, kostulegar nætur- útvarpssenur Lýdíu eru eitt það skemmtilegasta í sýningunni. Og reví- an fjallar m.a. um borgarstjórahring- ekjuna í kringum REI-málið, muni einhver eftir því. En samt er viðfangs- efnið nákvæmlega samtíminn. Þetta virðist vera vísvitað hjá höfundi, en ég næ ekki sambandi við hvað þetta á að þýða. Það eru ýmis leikhúsform og stíl- brögð reynd og nýtt í leikritinu og sýningunni. Kringumstæðurnar og ógnin að utan eru beint upp úr hand- bók absúrdleikhússins og fyrrnefnd tímaóreiða undirstrikar þann andblæ. Það brestur stundum á með sál- fræðilegu raunsæi með ljóðrænu yf- irbragði í samskiptum Lýdíu og Núma, en svo er þarna líka farsaþráð- ur, þar sem þau skötuhjúin reyna að fela revíuáform sín fyrir útsendara Porcellusar, m.a. með því að ljá Núma þýskt ríkisfang. Leikmyndin er líka farsaættuð, með sínum hurðaríka bakvegg. Og svo er náttúrulega revíuformið sjálft. Reyndar fer revían sérkennilega illa út úr þessu sambýli. Henni er ýtt yfir í það hlutverk að vera spaugilegt viðfangsefni frekar en gild aðferð í nútímaleikhúsi. Extravaganza á þá klemmu sameiginlega með Djöflaeyj- unni í Þjóðleikhúsinu að það er eins og höfundana langi að vinna með form (revíu hér, söngleik þar) sem þeir hafa ekki fyllilega á valdi sínu og – það sem verra er – hafi ekki nema takmarkaða trú á. Hér verður það beinlínis ein af þungamiðjum sýningarinnar að skop- stæla viðvaningslega tilburði persón- anna til að tjá sig í gamanvísum. Sem er í sjálfu sér ekkert alveg óskemmti- legt. Verra er að það er eiginlega ómögulegt að sjá hvers vegna við ætt- um að vilja beina sjónum okkar og að- hlátri í þessa átt. Að flissa að mátt- vana tilraunum fúskara til að setja fram góðlátlega ádeilu á níræðu og smáðu leikhúsformi. Er það brýnt er- indi í verki sem að öðru leyti er með hin ýmsu samfélagsmein undir? Það þarf þá að vera verulega fyndið, sem það er ekki hér. Svolítið spaugilegt en ekki nægjanlega. Þessi samþætting gengur sem sagt ekki nógu vel upp. Sundurgerð í formi og stíl er alls ekki sjálfkrafa uppskrift að vandræðum en hér tekst ekki að láta hin ólíku efnistök njóta sín í sam- býlinu og skila okkur áhugaverðri sýn. Fyndnin er ekki nógu fyndin, bit- ið ekki nógu beitt. Leikhópurinn nær ekki að bæta spennandi vídd við efniviðinn. Skila ágætu verki, en ögn fyrirsjáanlegu. María Heba Þorkelsdóttir hefur áður sýnt að henni lætur vel að sýna okkur velmeinandi en pínu ráðvilltar konur með lága valdastöðu. Lýdía er sú per- sóna sem kemst næst því að vera í þrí- vídd og er hér í öruggum höndum. Eins er um Júlíus hjá Hannes Óla Ágústssyni. Hrokagikkir með hæpna innistæðu fyrir valdi sínu eru hans heimavöllur. Auðvitað finnur Sveinn Ólafur Gunnarsson leiðir til að gera taugabúnt eins og G.Núma sannfær- andi, brjóstumkennanlegan og hlægi- legan. Og Aðalbjörg Árnadóttir finnur flesta kæki sem „prýða“ hressa leið- toga í markaðsdrifnum sjálfshjálpar- iðnaðinum og nýtir þá vel. En þó týpurnar standi fyrir sínu virkaði samleikurinn stirður og óör- uggur á annarri sýningu. Meiri ná- kvæmni og nostur við smáatriði hefði hjálpað. Sviðsetningin virkar frum- stæð. Hið breiða en grunna leikrými takmarkaði möguleika og skapaði einsleitni í staðsetningum og samleik. Fjölmargar hurðir á bakvegg skapa möguleika á óvæntum uppbrotum og voru dálítið nýttar þannig, en nokkuð skorti á öryggi í þeim atriðum og kannski fleiri og fjölbreyttari útfærsl- ur. Hér hefði bæði þurft fastari tök og fleiri hugmyndir frá leikstjóranum Ragnheiði Skúladóttur. Ég gæti líka trúað að úrvinnsla sem hefði nýtt sam- band sviðs og salar betur, í revíuand- anum, hefði hjálpað verkinu, þó það sé vissulega að miklu leyti skrifað með traustan fjórða vegg í huga. Tónlistarflutningur er oftast vísvit- andi klaufalegur, en það óöryggi smit- aðist líka yfir upphafs- og lokaatriði sem ættu að standa utan revíuskop- stælingarinnar. Það er mörgum boltum kastað á loft í Extravaganza bæði hvað varðar form og innihald, handrit og úrvinnslu á svið- inu. Meiri tími, yfirvegun og yfirlega hefði trúlega skilað áhrifameira verki, þó margt sé sniðugt og sýni hvert stefnt var. Hugsanlega hefði hluti þeirrar vinnu falist í að velja og hafna bæði viðfangsefnum og meðulum. Lík- lega hefði Borgarleikhúsð átt að standa af meiri ábyrgð og fagmennsku að baki opinbers leikskálds síns. En við verðum að bíða enn um stund eftir skotheldum gamanleik um glóruleysi gróðapunganna á ferða- mannaakrinum og kvikindislegri af- hjúpun siðleysingja í fasteignabraski. Ætli revíuformið myndi kannski henta? Yfirvegun „Meiri tími, yfirvegun og yfirlega hefði trúlega skilað áhrifa- meira verki, þó margt sé sniðugt og sýni hvert stefnt var,“ segir í rýni. Borgarleikhúsið Extravaganza bbnnn Eftir Sölku Guðmundsdóttur. Leik- stjórn: Ragnheiður Skúladóttir. Leik- mynd: Brynja Björnsdóttir. Búningar: Þórunn Elísabet Sveinsdóttir. Lýsing: Ólafur Ágúst Stefánsson. Tónlist og hljóðmynd: Ólafur Björn Ólafsson. Leik- arar: Aðalbjörg Árnadóttir, Hannes Óli Ágústsson, María Heba Þorkelsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson. Frumsýning á Nýja sviði Borgarleikhússins föstu- daginn 28. október 2016. Rýnt í aðra sýningu laugardaginn 29. október. ÞORGEIR TRYGGVASON LEIKLIST Nútíminn er lundi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.