Morgunblaðið - 03.11.2016, Blaðsíða 19
19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2016
Iceland Airwaves 2016 Íslenska tónlistarhátíðin hófst í gær og meðal annars spilaði hljómsveitin Boogie Trouble á Grund við mikla ánægju viðstaddra, þar á meðal Guðlaugar Pétursdóttur.
Eggert
Forseti Íslands átti
fundi með leiðtogum
allra þeirra sjö stjórn-
málaflokka sem eiga
fulltrúa á Alþingi eftir
kosningarnar síðastlið-
inn laugardag. Bæði
fyrir og eftir fundina
fór af stað samkvæm-
isleikur fjölmiðlunga,
stjórnmálaskýrenda
og stjórnmálamanna,
um hver leiðtoganna sjö ætti að fá
umboð til að mynda nýja rík-
isstjórn. Hinir djúpvitrustu lýstu
því strax yfir að Guðna Th. Jó-
hannessyni forseta væri vandi á
höndum – staðan væri flókin og
stjórnarmyndunarviðræður yrðu
erfiðar.
Í gærmorgun tilkynnti forseti
um ákvörðun sína enda gat hún
varla vafist fyrir manni sem býr yf-
ir betri þekkingu á embætti forseta
Íslands en flestir aðrir. Bjarni
Benediktsson, formaður Sjálfstæð-
isflokksins, hefur fengið umboð til
að mynda ríkisstjórn.
Sjálfstæðisflokkurinn var sig-
urvegari kosninganna og Bjarni
Benediktsson er óumdeildur sterk-
asti stjórnmálaleiðtogi landsins.
Flokkurinn bætti við sig tveimur
þingmönnum. Þingflokkur sjálf-
stæðismanna er stærri en sam-
anlagðir þingflokkar Pírata og
Vinstri grænna. Björt framtíð, Við-
reisn og Samfylkingin eru samtals
með 14 þingmenn, sjö þingmönnum
færri en Sjálfstæðisflokkurinn.
Sjálfstæðisflokkurinn er stærsti
flokkurinn í öllum kjördæmum
landsins. Í kjördæmi
formannsins meira en
tvisvar sinnum stærri
en sá flokkur sem
næst kemur.
Framhjá þessum
staðreyndum gat for-
seti eðlilega ekki litið.
Hann valdi því væn-
legasta kostinn.
Ákall um minni-
hlutastjórn
Það hefði verið frá-
leitt og ábyrgðarlaust
ef forseti lýðveldisins hefði látið
kröfuna um myndun minnihluta-
stjórnar hafa áhrif á sig. Ákall Pí-
rata um minnihlutastjórn með
stuðningi þeirra breytir þar engu
enda aðeins vanmáttug tilraun til
að koma í veg fyrir ríkisstjórn með
þátttöku Sjálfstæðisflokksins. Pí-
ratar reyndu einnig slíkt fyrir
kosningar en voru gerðir afturreka
síðastliðinn laugardag.
Þorbjörn Þórðarson skrifar í for-
ystugrein Fréttablaðsins í gær,
þriðjudag:
„Þjóðin hafnaði vinstristjórn
undir forystu Pírata með afgerandi
hætti í alþingiskosningunum og
Sjálfstæðisflokkurinn er sigurveg-
ari kosninganna.“
Þessi orð lýsa í hnotskurn nið-
urstöðu kosninganna og undirstrika
hversu fráleitt það er að koma á
lappirnar minnihluta-vinstristjórn
sem varin er af Pírötum. Rík-
isstjórn sem á allt sitt undir Píröt-
um verður hvorki til stórræðanna
né langlíf.
„Við höfum lagt til, ef það myndi
hjálpa til, að við værum tilbúin til
þess að styðja minnihlutastjórn
sem gæti þá verið sett þannig upp
að það væri Viðreisn, Björt framtíð
og Vinstri-græn og við og Samfylk-
ingin stutt hana án þess að eiga
ráðherrasæti.“
Þetta sagði Birgitta Jónsdóttir
eftir fund með forseta Íslands á
mánudag. Í frásögn mbl.is kemur
fram að Birgitta telji mikilvægt að
hafa fyrirkomulagið einfalt:
„Það er flókið ef það sitja for-
menn úr fimm flokkum við rík-
isstjórnarborðið.“
Í ógöngum
Síðast þegar forystumenn ann-
arra vinstri flokkanna létu Birgittu
teyma sig lentu þeir í ógöngum.
„Lækjarbrekkustjórnin“ var sjálf-
dauð áður en gengið var að kjör-
borði. Björt framtíð missti flugið,
Samfylkingin þurrkaðist nær út í
kosningunum og Vinstri græn náðu
ekki þeim árangri sem þeir von-
uðust og skoðanakannanir höfðu
gefið tilefni til.
Formaður Viðreisnar var hins
vegar hrifinn og sagði útspil Pírata
„áhugavert“. Hann taldi það eðli-
legt að flokkur með sjö þingmenn –
þrisvar sinnum færri en Sjálfstæð-
isflokkurinn – fengi umboð frá for-
setanum til að mynda ríkisstjórn.
Benedikt Jóhannesson segist sann-
færður um að Viðreisn sé í lyk-
ilstöðu. Ef hann trúir því í einlægni
þá hefur hann fallið í gryfju of-
mats. Margir sem á undan hafa
komið hafa mislesið í pólitíska
stöðu, en líklega er Benedikt aðeins
að reyna að ná einhverri samnings-
stöðu, sýna klókindi og minna á sjö
manna þingflokkinn.
Tíminn leiðir í ljós hvort pólitísk
klókindi formanns Viðreisnar skila
árangri. Daginn áður en hann lýsti
því yfir að hugmynd Pírata um
minnihlutastjórn væri áhugaverð,
var annað hljóð í strokknum. Í um-
ræðuþætti á Stöð 2 daginn eftir
kjördag sagði Benedikt að sér
hugnaðist ekki stjórnarsamstarf
með Pírötum, Vinstri grænum,
Bjartri framtíð og Samfylkingu.
Sér geðjaðist ekki að því að „ganga
sem fimmti flokkur inn í Pírata-
bandalagið“. Hann er hins vegar á
því að það sé áhugavert fyrir Við-
reisn að mynda stjórn sem starfar í
skjóli Pírata og á líf sitt undir
þeim!
Valkreppa VG
Katrín Jakobsdóttir, formaður
Vinstri grænna, hefur þurft að
sýna pólitísk hyggindi eftir kosn-
ingarnar. Hún hefur neyðst til að
leggja áherslu á að mynduð verði
vinstri stjórn – en það er varla til
annars en til heimabrúks. Samfylk-
ingin er ekki á vetur setjandi, eftir
blóðuga útreið. VG á litla samleið
með Viðreisn. Pírötum verður ekki
meira treyst en fram að næstu
hugdettu Birgittu eða niðurstöðum
kosningakerfis en kjörnir fulltrúar
Pírata eiga að fylgja þeim eftir á
„viðeigandi vettvangi, eins og segir
á heimasíðu þeirra“. Smölun villi-
katta í síðustu vinstri stjórn verður
eins og léttur gamanleikur miðað
við sundurlyndi í nýrri vinstri
stjórn, komist hún á koppinn á
annað borð. Að ekki sé talað um
harða 29 manna stjórnarandstöðu.
Draumurinn um vinstri stjórn
varð að engu síðastliðinn laug-
ardag. Valkreppa Katrínar Jak-
obsdóttur og félaga hennar í
Vinstri grænum snýst um hvort
flokkurinn ætlar að vera utan rík-
isstjórnar eða gera tilraun til að ná
stefnumálum sínum fram í rík-
isstjórn með Sjálfstæðisflokknum
og einhverjum þriðja stjórn-
málaflokki – Framsókn, Viðreisn
eða Bjartri framtíð.
Næstu daga og hugsanlega vikur
verða forystumenn stjórn-
armálaflokkanna uppteknir við að
mynda ríkisstjórn. Tíminn er hins
vegar knappur enda bíða mikilvæg
verkefni. Afgreiða þarf fjárlög fyrir
lok ársins og tækifærið til að jafna
lífeyrisréttindi landsmanna er enn
til staðar.
Fjárlög og jöfnun lífeyrisréttinda
geta lagt grunninn að frekari sókn
til bættra lífskjara og uppbyggingu
innviða samfélagsins. Íslendingar
hafa aldrei verið í betri stöðu til að
byggja upp heilbrigðiskerfi í
fremstu röð, efla menntun og
tryggja öflugt almannatrygg-
ingakerfi. Formenn stjórn-
málaflokkanna geta hæglega glutr-
að niður góðri stöðu eða spilað úr
henni af skynsemi með því að
mynda sterka meirihlutastjórn á
Alþingi.
Eftir Óla Björn
Kárason » Smölun villikatta í
síðustu vinstri stjórn
verður eins og léttur
gamanleikur miðað við
sundurlyndi í nýrri
vinstri stjórn, komist
hún á koppinn.
Óli Björn Kárason
Höfundur er þingmaður
Sjálfstæðisflokksins.
Einföld ákvörðun forsetans og valkreppa vinstri manna